Leita í fréttum mbl.is

MISNOTAÐI STJÚPDÓTTUR

65

Enn einn málamyndadómurinn er fallinn, nú í Héraðsdómi Vesturlands en þar er karlmaður dæmdur í 12 mánaða fangelsi þar af 9 mánuði skilorðsbundna.  Maðurinn situr þá inni í 3 mánuði svipað og í undanförnum dómum.  Það er eins og þeir séu að stela sælgæti í sjoppu, nánast.

Brotið var framið árið 2002 þegar stúlkan var 11 ára.  Hún var sofandi og varnarlaus þegar hann káfaði á henni innanklæða.  Enn einn þursinn sem mylur undan trausti barns á sínu nánasta umhverfi.

Nú er að koma tími á undirskriftalista.  Ég segi þetta ekki af heift eða af því ég er í hefndarhug heldur verða kynferðisafbrot að vera refsiverð í samræmi við alvarleika þeirra.


mbl.is Dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Lilja

Þetta er ekki nógu gott, þessu hefði eiginlega átt að vera snúið við. 3 mánuði skilorðsbundna og 9 mánuðir í fangelsi.

Anna Lilja, 21.3.2007 kl. 22:36

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Verð alltaf raunamædd yfir þessu skilningsleysi, sinnuleysi og þekkingarleysi, því það vantar allt of mikið upp á að dómarar hafi þekkingu á þeim skaða sem sakamenn af þessu tagi valda.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 21.3.2007 kl. 23:14

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Já þetta er ótrúlegt. Gæti það verið af því að þessir dómarar eru allir karlmenn að þeir geri sér ekki grein fyrir alvarleika þessarra brota. Hjá þeim virðist þetta vera eins og að fara út í sjoppu eins og þú segir Jenný. Það virðist engin breyting verða á þessum dómum, þó svo að mikið sé gert til að benda á alvarleikan sem að þeim fylgir.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 22.3.2007 kl. 00:37

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Mér verður óglatt þegar ég les svona! Það verður að fara gera eitthvað!!! 

Heiða B. Heiðars, 22.3.2007 kl. 00:40

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er óþolandi!!!! Er ekki hægt að gera eitthvað?

Hrönn Sigurðardóttir, 22.3.2007 kl. 08:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.