Leita í fréttum mbl.is

SIGURÐUR KÁRI ÓTTAST EKKI RAUÐ HVERFI

23

Í "Íslandi í dag" þar sem Sigurður Kári og Ögmundur sátu fyrir svörum var ma rætt um lögleiðinguna á vændi sem rann í gegn í þinginu á meðan fagnaðarlætin um fyrningarafnám á kynferðisafbrotum stóðu sem hæst.  Ég held að fæstir hafi áttað sig á þessu veiðileyfi sem búið er að gefa út á konur og nú geta íslenskir melludólgar fagnað.

En aftur að Sigurði Kára.  Aðspurður kvaðst hann ekki óttast að rauð hverfi muni rísa hér þar sem eftirspurnin væri einfaldlega ekki til staðar.  Það er þá í fyrsta sinn sem Sjálfstæðisflokkurinn telur það af hinu góða að skortur á eftirspurn skuli vera fyrir hendi.  Hvaðan Sigurður Kári hefur þessar upplýsingar um skort á eftirspurn eftir vændi vildi ég gjarnan fá að vita.

Nú eru klámkóngar þessa lands, eigendur staða þar sem mansal og vændi lifa góðu lífi, með ríkari mönnum.  Sumir þeirra flagga auðlegð sinni og senda samfélaginu fokkmerki, enda voru þeir nánast ósnertanlegir og núna eru þeir orðnir löglegir.  Eins og Eimskipafélagið og Aktavis.  Merkilegt að þessir staðir þar sem vændi er stundað og hingað fluttar erlendar konur sem koma oft úr sárri fátækt og neyð, skuli hagnast svona rosalega ef eftirspurn eftir vændiskonum er ekki til staðar.  Erfitt að sjá hvernig það á að ganga upp.

Nú er bara að setjast niður og bíða.  Lögin taka gildi um næstu helgi.  Ég hef á tilfinningunni að ýmislegt eigi eftir að breytast.  Núna er allt opið og leyfilegt og dólgarnir hljóta að fagna því.  Mansal og vændi er blómlegur bissniss.  Dúndrandi hagvöxtur í greininni. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Óþolandi - og auðvitað á að banna KAUP á vændi!!!!!

Hrönn Sigurðardóttir, 21.3.2007 kl. 13:30

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nákvæmlega og það er ótrúlegt að þetta hafi náð í gegn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.3.2007 kl. 13:52

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sorglegt ef þetta eykur hættu á mansali og kynlífsþrælkun, nóg er nú samt.  En fyrirgefiði að ég spyr, hefur ekki komið í ljós að þegar kaup á kynlífi í Svíþjóð var bannað, þá hafi þetta bara farið neðanjarðar og undirheimar grasserað.  Ég held að við þurfum að huga vel að öllum afleiðingum.  En ég þekki þetta ekki, ef til vill sem betur fer.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2007 kl. 13:55

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er það sama og með dópið Ásthildur það er neðanjarðar.  Við getum ekki leyft hluti vegna áhættu um að það fari neðanjarðar. Vændi hefur verið vel falið hér á landi og varla vinnandi vegur að láta menn svara til saka jafnvel þó allir viti að það grasseri á ákveðnum stöðum.  Núna er algjörlega útilokað að ná melludólgunum og gera þá ábyrga fyrir gjörðum sínum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.3.2007 kl. 14:10

5 Smámynd: halkatla

aumkunarverður Dlistadrengur sem lifir í eigin heimi

halkatla, 21.3.2007 kl. 14:25

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það á að banna bæði kaup og sölu á vændi og gera hvort tveggja refsivert -- en hlífa þeim, sem selt hafa líkama sinn, ef sterk líkindi eru til þess, að þær/þau hafi verið neydd til þess. Leið Björn Bjarnasonar er hneyksli, meðvirkni vinstriflokkanna sömuleiðis.

Jón Valur Jensson, 21.3.2007 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband