Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

VERTÍÐ HJÁ FÍKNÓ!

 

Nú er vertíðarhelgi fíkniefnalögreglunnar framundan.  Töff hjá þeim að auglýsa það að þeir verði á ferð og flugi með alvæpni, ef ég má orða það svo.

Hlýtur að hafa fyrirbyggjandi áhrif.

Eða hvað?

Kallar það á flóknari aðgerðir dópsala, meira útfærðar og útpældar?

Stundum er baráttan gegn fíkniefnum eins og vindmylluslagur.

En vér gefumst ekki upp.

Súðebastards (sko dópsalana).

Úje


mbl.is Öflugt fíkniefnaeftirlit um verslunarmannahelgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FYRIRLIGGJANDI..

1

..steinliggjandi og nauðsynleg verkefni dagsins, fyrir utan bloggfikt af ýmsu tagi, eru:

..uppvask á tveimur diskum, 3 glösum og einhverjum bollapörum.

..móttaka á nýjum ísskáp með þátttöku Lúðrasveitar Seljahverfis, fulltrúa borgarstjóra og fleiri mektarfólki.

..flutningur gamla ísskáps í geymslu, þ.e. verkstjórn, aðrir í skítverkunum.

..endurgláp á Fanny og Alexander í minningu meistara Bergman.

Úff líf mitt er svo sannarlega flókið og merkilegt.

París Hilton og þið hinar stelpurnar í Hollý..

"Eat your heart´s out.

Ég er "vippari", ekki spurning.

Úje


ÉG VEIT EKKI MEÐ YKKUR..

 

..en ég er skíthrædd við Gary Oldman.  Hann er svo illilegur eitthvað.

Vilduð þið eiga hann fyrir pabba?

Ædónþeinksó! 


mbl.is Gary Oldman er „svalur pabbi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓRI BRÓÐIR Á VAKTINNI!

1

Stundum orðar fólk nákvæmlega það sem maður er að hugsa.  Upp á punkt og prik, upp á þrjár og þurrk.

Anna uppáhalds (www.anno.blog.is) , gerir það í dag sem reyndar oft áður.

"BIG BROTHER IS WATCHING YOU!

Það er eins gott að passa sig að gera nú allt rétt þegar maður mundar fingurna á lyklaborðið í þeim tilgangi að skrifa bloggfærslu. Miðað við það sem ég hef lesið á bloggrúntinum mínum í morgun er greinilega her manna og kvenna að fylgjast með því hvort við hin skrifum blogg eins og við „eigum að skrifa“ blogg. Police Ég verð að bíða með að skrifa meira þangað til ég er alveg viss 1) hvað ég má blogga um og 2) hvað má standa þar. Er farin að lesa manúalinn frá big brother. Sjáumst! "

Svona er nú það börnin góð.

Bætmí!

 

 


PIRRINGSBLOGG

28

Loksins þegar fjárans sumarstarfsmaðurinn spáir almennilega fyrir mér þá vantar mikilvægan hluta minna dásamlegu eiginleika í fj.. spána.

"Steingeit: Þú ert sérlega næmur, skilningsríkur og samúðarfullur við fólkið sem þú elskar - og líka við það sem þú þekkir varla. Það er þitt framlag til friðar á jörðu"

Ég viðurkenni að ég hef verið að bíða eftir viðurkenningu veraldarinnar á framlagi mínu til heimsfriðar, ásamt öðrum viðurkenningum sem ég á skilið.  Loksins kom örlítil viðurkenning á því að ég er dásamleg manneskja.  Betri en flestar aðrar.  Fullkomin eiginlega.  En af hverju í andskotanum stendur ekkert um hversu hógvær og lítillát ég er?  Ha??

Æmabát2börst!


LATERNA MAGICA

1

Ein af flottustu og eftirminnilegustu kvikmyndaleikstjórum í heimi, Ingmar Bergman er allur.  Það er svo sem ekki neitt sjokkerandi við það, maðurinn orðinn 89 ára gamall.  Bergman hefur alltaf heillað mig, myndirnar hans og hann sjálfur sem karakter.

Þegar sjálfsævisaga hans kom út í Svíþjóð (Laterna Magica), var ég snögg að fjárfesta í henni.  Maðurinn var hreint ótrúlega litríkur karakter.  Hann var opinn og víðsýnn listamaður en alveg ótrúlega erfiður sjálfum sér í hinum smærri hlutum.  Ekki að maður kannist ekki við það.

Í bókinni Hrafninn flýgur, segir Hrafn Gunnlaugsson, skemmtilega frá kynnum sínum af Bergman. 

Eitt sinn skal hver deyja, þannig er nú það. 

Nú fer ég og les bókina hans einn ganginn enn. 

 Langt síðan að ég hef horft á Fanny og Alexander, best að leigja hana fljótlega.

Ójá.


mbl.is Ingmar Bergman látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í DAG ÆTLA ÉG AÐ..

 

..að fréttablogga með mínu nefi ef eitthvað kemur í fréttunum sem mér finnst athygli vert.

..búhúblogga ef ég verð rosalega viðkvæm eða leið.

..fíflablogga ef fíflaandinn tekur sér bólstað í mér eins og hann gerir stundum.

..reiðiblogga ef það fýkur snögglega í mig.

..tuð- og hneykslisblogga ef fólk leyfir sér að blogga öðruvísi en mér er þóknanlegt (þennan má taka með fyrirvara, þar sem fíflaandinn réðst á mig rétt í þessu og tók stjórnina).

..gleðiblogga við öll tækifæri, sjálfri mér til sælu og ánægju.

..snúrublogga ef ég þarf að sinna bataferlinu.

..yfirhöfuðblogga ef mér dettur það í hug.. OG..

Ég ætla að láta mér í léttu rúmi liggja ef einhver ætlar að kafna úr ergelsi yfir bloggaðferðum mínum.

Samningur gerður við almættið í morgunsárið, af gefnu tilefni. 

Ég,

öll að koma til

Súmí.


AÐ BREGÐAST VIÐ VONDUM FRÉTTUM

 

Það er misjafnt hvernig við bregðumst við válegum tíðindum.  Þegar barnabarnið mitt lést fyrir 10 árum síðan sló ég frá mér í blindri reiði og hjálparleysi.  Það var mín aðferð, þá.

Sumir skjóta sendiboðann.

Aðrir reyna að draga úr áhrifunum með því að tóna sig niður.

Sumir þegja og hugsa sitt.

Allt af þessu er leyfilegt.  Illgirni er það hins vegar ekki.

 

Stundum er ég alveg fáránlega viðkvæm.

NÓG KOMIÐ

 

..ég ítreka óskir mínar um að aðstandendur í þessu máli fái nauðsynlega hjálp og stuðning.  Stundum ná orð ekki hálfa leið til að lýsa líðan manns.

Samúðarkveðjur


mbl.is Árásarmaðurinn svipti sig lífi; fannst látinn á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG SNÆÐI LOPAPEYSUNA MÍNA..

..ef það er rétt að verið sé að borga meðlimum "Saving Iceland" fyrir að mótmæla.  Það er einfaldlega of ótrúlegt til að vera satt.  Ætli maður færi þá ekki í vinnu við að mótmæla nokkra tíma á dag til að ná sér í aukapening?  Mér finnst þetta full lygilegt fyrir minn smekk.

Nú krefjast samtökin að fréttastofa RÚV birti sannanir fyrir aðdróttunum sínum um að mótmælendur þiggi fé fyrir mótmæli og handtökur, að því er segir í tilkynningu frá samtökunum í gær.

Ég hef ekki verið neitt sérstaklega hrifin af framgangsmáta þessara samtaka undanfarið, þ.e. þegar þeir hafa verið að framkvæma eignaspjöll og þar fram eftir götunum, en ég hef ekki nokkurn hlut á móti því að þeir mótmæli.  Umhverfismál eru engin einkamál hvers lands fyrir sig.  Þau koma öllum heiminum við.

Ég á reyndar ekki lopapeysu, en mun fjárfesta í einni slíkri og snæða hana ef þetta fólk er á launum við mótmælaaðgerðir.

Bætmí.


mbl.is "Saving Iceland" krefur RÚV um sannanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985735

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband