Leita í fréttum mbl.is

Varúð, ekki út eftir myrkur!

Ég hef alltaf verið skelfingu lostin við tilhugsunina um uppvakninga.

Æi þið vitið eins og maður hefur séð í bíó, þegar dauða liðið veður rykfallið með köngulóarvef í andlitinu upp úr gröfunum, gengur spastískum skrefum áfram, alveg dedd (í orðsins örgustu) á því að fara og drepa einhvern.

Úúúúúú - ég fæ hroll.

Þegar ég horfði á fréttirnar í kvöld um nýja formanninn hjá SUS, sem lét sér ekki muna um að leigja flugvél undir eitthvað lið til að kjósa sig, þá upplifði ég svona uppvakningsmóment.

Þessi náungi sem er ungur að árum er uppvakningur nefnilega.

Hann er úr Davíðsarminum sko.

Krípí?

Þeir eru að koma aftur - úúúúúú!

Davíð er kominn til að ryðja brautina - fylgismennirnir skipa sér á póstana.

Varúð, ekki út eftir myrkur!

Múhahahahaha!


mbl.is Smölun í tengslum við SUS kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Já guð... skerííí..... Sá einn svona uppvaknig um daginn.

Sá ók um á AUDI og var eitthvað að snuðra í kringum Valhöll við Háteigveg

Síðan hefur hans víst orðið töluvert við Hágegismóa.....

hilmar jónsson, 27.9.2009 kl. 20:07

2 Smámynd: hilmar  jónsson

vart....vantar.

hilmar jónsson, 27.9.2009 kl. 20:08

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

taldi mig hafa horft á fréttirnar en missti af þessu. var þetta kannski á Stöð 2?

Brjánn Guðjónsson, 27.9.2009 kl. 21:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Og maður er að missa af öllu fjörinu?  Æ nei uppvakningar eru ekki mín besta skemmtun.  Það er von að Susarar og Heimdellingar hagi sér svona í sínum eigin flokki, þegar þeir leigja sjálfa sig út til að kjósa hjá öðrum flokkum.  Þetta er sennilega það sem þeir kalla lýðræði. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.9.2009 kl. 22:54

5 identicon

Komdu sæl Jenný

 Nú barasta verð ég að skrifa þér. Það hef ég ALDREI  gert áður.

Þú ert einn af mínum uppáhaldsbloggurum (ég er ekki að smjaðra fyrir þér) og ég kíki á bloggið þitt mörgum sinnum á dag. Mér finnst þú orðheppin, óborganlega fyndin og ekki skaðar að ég er auðvitað nánast alltaf sammála þér.

 Ég sagði upp mogganum fyrir helgi - þarf ekki að skýra út af hverju - og af því að ég er prinsippmanneskja mun ég líka hætta að kíkja inn á mbl.is. Það þýðir að ég mun missa af blogginu þínu. Það þykir mér slæmt.

Nú vil ég vita af hverju þú hangir þarna enn? Mér segir svo hugur að það sé af prinsippástæðum - prinsippfólk getur verið erfitt.

Er einhver von til þess að þú flytjir þig annað?

Og ef þú gerir það - taktu þá Láru Hönnu með þér.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 23:17

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrafnhildur: Bíddu bara róleg.  Látum það duga í bili.

Takk fyrir falleg orð í minn garð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2009 kl. 00:00

7 identicon

Sæl Jenný.

Sá einmitt þessa frétt (fréttir, man ekki hvort hún kom á báðum stöðvum).  Gaurinn var ekkert smá skerí og bara við það að sjá hann labba þarna um sá ég hrokann leka af honum.

Það að mæta á kjörstað og bjóða sig fram hálf tíma áður en frestur rennur (með fulla þotu af kjósendum) út finnst mér svo barnalegt og yfirgengileg frekja að ég á ekki til orð.

Ef þetta eru erfingjar Sjáfstæðisflokksins þá hljóta þeir að deyja út, það getur engin skynsöm manneskja stutt svona hegðun (ekki að skynsemi hrjái sjálfstæðisfólk almennt, þannig að þetta er sennilega fjarlægur draumur).

Djö... hvað ég varð reið eftir að hlusta og horfa á þessa frétt.

Annars bara að kafna úr bjartsýni í snjónum.

Erna Kristín (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985713

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.