Leita í fréttum mbl.is

Össur og hinir strákarnir

 p

Hvað sem fólki annars finnst um Össur þá kann hann að koma fyrir sig orði.

Líka þegar hann bloggaði á nóttunni. Múha.

Núna ávarpaði hann alsherjarþing SÞ og mér sýnist hann ekkert hafa verið að skafa af því í púltinu.

Hjá mér hefur Össur alltaf framkallað sterk viðbrögð.

Krúttköst og pirring til skiptist.

Ég hef aldrei verið alveg: Já, já Össur, þú ert alltaf að segja sömu hlutina og síðan snúið mér yfir á hina hliðina og sofnað úr leiðindum.

Það eru bara móment sem maður á varðandi Össur.

Þess á milli reynir maður sitt besta til að gleyma honum.

Arg eða garg.

Já eða nei.

Brennandi heitt eða ískalt.

Ást eða hatur (ókei, ókei, ekki alveg en þið vitið hvað ég meina).

---

Svo að öðru: Vill minn kæri formaður Steingrímur J. (á engan formann en ég kaus flokkinn og ber þar með töluverða ábyrgð á Jóni Bjarnasyni) skipta út landbúnaðarráðherranum.  Er enn að jafna mig eftir Kastljóssviðtalið við þennan flækjufót og afturhaldssegg núna í vikunni.

---

Og að lokum.

Svar við erfiðri gátu í færslunni hér fyrir neðan.

thor-saari-alftanesi

Lalalalalalala

Úje og kræ mí a riverrrrrrrrrrrrrrrr


mbl.is Össur ávarpaði allsherjarþing SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Himmalingur

Pólitíkin er rotin og því fá menn eins og Jón Bjarnason djobbið.

Himmalingur, 27.9.2009 kl. 12:31

2 identicon

Þú hefur mikið til þíns máls, Jenný. Það þarf að senda þessa afturhaldsseggi, flækjufóta og rugludalla í sértæka meðferð ,sem byggir á normalingseringu og heilbrygðri skynsemi.

Svar við gátu: Mér sýnist maðurinn vera að hirða bestu spýturnar

Kolbrún Bára (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 12:34

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Sæl Jenný..Skemmtilegur pistill eins og þinn er vani. Já ekki leist mér á blessaðann landbúnaðarráðherrann..Virtist út og suður.

Kveðja Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 27.9.2009 kl. 13:00

4 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Ég var að horfa á hann Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra í Kastljósi og skildi eiginlega hvorki upp né niður hvað hann var að fara: Samkeppnislögin passa ekki við hinar typisku "íslensku aðstæður" og var að heyra á honum að verðsamráð væri í góðu lagi. Hvað máli skiptir svo sem verð á kjúklingum og svínakjöti? Aðalmálið er að sjálfsögðu að maturinn sem þið étið sé "þjóðhagkvæmur" og "félagslegur".

Jón Bragi Sigurðsson, 27.9.2009 kl. 17:03

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Æ, eru menn ekki stundum að þykjast hafa vit á einhverju sem þeir vita ekki haus né sporð á, hvað þú hanastél?

Jóhanna Magnúsdóttir, 27.9.2009 kl. 17:06

6 identicon

(hvísl) uss Jenný, má ekki segja... en JB fer annað í des.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband