Leita í fréttum mbl.is

Acta non verba!

fuck-you-guys 

Við erum á rassgatinu (fyrirgefið orðbragðið) Íslendingar og við þurfum að blæða fyrir stærsta bankarán sögunnar.

Það væri þolanlegt ef kreppan væri vegna utanaðkomandi aðstæðna eins og Geir Haarde og nótar hans reyna að halda fram þar til þeir eru að köfnun komnir vegna lygaþvælunnar í sjálfum sér.

En málið er ekki þannig.

Sumir hamra sífellt á því að við Íslendingar séum svo fá að það megi líta á okkur sem stóra fjölskyldu.

Já, er það ekki bara.  Á ekki að fara að fjölskylduvæða siðleysingjana og glæpamennina, þannig að maður hætti við að vilja koma þeim undir mannahendur?  Smart og lævís tilraun - en virkar ekki.

Ég kæri mig ekkert um þessa menn í mína familíu - einhver annar en þessi þjóð má ættleiða þá.

Ég vil ekki sjá að tengja mig við spillta stjórnmálamenn, hina eiginlegu hönnuði hrunsins og svo afæturnar sem enn ganga lausar og koma reglulega í viðtöl við miðla og senda okkur þolendum sínum fokkmerkið.

Mig langar heldur ekkert að ganga um bálill og full af heift, sem orsakast af vamáttakennd gagnvart ástandinu en ég get sagt ykkur það börnin mín sár og svekkt að ekkert okkar nær að byggja sig upp og lifa af þessa tíma óbrengluð, ef sökudólgarnir verða ekki látnir sæta ábyrgð.

Ég er orðin leið á að heyra að það sé verið að vinna svo svakalega mikið í þessum málum og ladídadída.

Tími orða er liðinn.  Nú er það framkvæmdin sem ég vil sjá og hana almennilega.

Acta non verba!

Eins gott að það verði kominn hreyfing á málið með að koma glæpamönnunum undir mannahendur áður en skattpíningin hefst.

Og eitt að lokum. 

Megi Þórlindur Kjartansson hafa vit á að halda kjafti en hann er einn af heilunum á bak við Icesave, næsti maður inn á eftir Sigurjóni Árnasyni, því tæra þróunarslysi.

Kemur stórhneykslaður í fjölmiðla og talar um að ríkisstjórnin sé að velta stórum skuldabagga á litla þjóð.

Afsakið á meðan ég frem kviðristu á sjálfri mér og hendi mér fyrir bíl til öryggis.

Annars góð bara.Cool


mbl.is Miklar skattahækkanir í farvatninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það allra besta sem Geir Haarde og Þórlindur Icesave-hugmyndasmiður geta gert þjóð sinni í dag er að steinhalda kjafti báðir tveir, á meðan verið er að reyna að vinna upp eftir þá öll skítverkin sem þeir skildu eftir sig. 

Stefán (IP-tala skráð) 21.9.2009 kl. 10:23

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Flottur pistill, sem margir vildu sagt hafa.

Hvað er þessi Þórlindur að vilja upp á dekk, hann á að vera í kolamokstrinum með hinum spunagosum Æsseif.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 21.9.2009 kl. 12:08

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyrðuð þið brandarann í útvarpinu í gærmorgun. Viðtal við Bjarna Ben, hann fullyrti að Sjálfstæðisflokkurinn væri Velferðarflokkur   Ég vaknaði upp við þessi orð og hélt að spaugstofan hefði verið endurvakinn.  Viðtalið er reyndar brandari út í gegn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2009 kl. 13:15

4 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Það er til lausn. Lausnin er Borgarahreyf........ Nei fyrirgefið það klikkaði víst eitthvað.

En er ekki allavega hægt að fá pottana og eitthvað af trésleifunum endurgreitt. Það myndi hjálpa smá.

S. Lúther Gestsson, 21.9.2009 kl. 13:17

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Lausnin er utanþingsstjórn.
Þú ert flott frænka.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.9.2009 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband