Leita í fréttum mbl.is

Lappalaus Húsi - nó biggí

Ég á helling af vinkonum sem eeeeelska Húsa lækni. (Ekki ég - ónei - frusssssss).

Myndu keyra yfir fólk til að komast að honum  þrátt fyrir að vera dagfarsprúðar með afbrigðum alla jafna.

Þekki líka kerlingar sem slökkva á síma, taka dyrabjöllur úr sambandi, fara í ríkið og kveikja á kertum til að eiga sínar einkastundir með þessum kjaftfora og bæklaða lækni.

Hann er ekki bara bæklaður á fæti maðurinn - hann er andlegur skarnahaugur og væri atvinnulaus ef hann væri til í alvörunni.

Vinkonur mínar eru löngu búnar að gleyma þessu smáatriði - þ.e. að Húsi er ekki til nema í sjónvarpinu.

Ég var líka ástfangin af hommanum Richard Camberlane í Turnfuglunum, eða hvað sá þáttur nú hét.

Húsi er að hugsa um að hætta af því að "bæklunin" á læknisómyndinni er farin að hafa áhrif á lappir og mjaðmir raunheimamannsins Hugh Laurie.

Húsi minn, konum sem fíla þig á annað borð er nákvæmlega sama hvort þú haltrar eða ekki.  Hættu því bara.

Hvað þær (mig) varðar máttu vera lappalaus.

Bara að þú fórnir ekki þínum skítakarakter, kvenfyrirlitningunni og almennri skítmennsku.

Það er í lagi að vera sjónvarpspersónu skíthæll og kvenhatari.

Ég hef meiri áhyggjur af raunheimaösnunum sem ekki verður þverfótað fyrir.

Úje.


mbl.is Of erfitt að leika Dr. House
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Honum vantar greinilega ekki vinnu, þessum dóna.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.9.2009 kl. 13:07

2 identicon

I always thought that show should just drop the whole "medical drama" thing because to me, it is really a comedy. House is a total crack up. Not quite candlelight fare.

Lissy (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 13:21

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Hugh Laurie er mikill snillingur. Þó hef ég aldrei fílað hann sem dr. House.

Snilldar verk hans eru þó þættirnir með Wooster og Jeeves, svo ég tali ekki um Black Adder.

Tímalaus snilld.

Brjánn Guðjónsson, 20.9.2009 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband