Leita í fréttum mbl.is

Ekki meir Geir

Geir talar flotta norsku, hugsaði ég þegar ég horfði á þetta viðtal við hann í norska (og sænska) sjónvarpinu.

Að því sögðu var blómum ekki bætt á fyrrverandi forsætisráðherra.

Svör hans jafn aulahrollsvekjandi og þegar hann útskýrði kreppuna í máli og myndum, bæði hér heima og í "maby I should have" þættinum í breska sjónvarpinu - eeeekki svo sællar minningar.

Fredrik Skalvan vissi ekki hvernig hann átti að vera þegar Geir byrjaði útskýringarnar á orsökum hrunsins.  Hann var bara vandræðalegur maðurinn, enda ábyggilega ekki kunnugur hinu íslenska stjórnmálamannaheilkenni - aldrei mér að kenna.

Sama þegar hann spurði Geir hvort hann ætti ekki að taka ábyrgðina og Geir fór í langar útskýringar um það mál.

Mig langaði til að gráta.

Hættu að tala.

Ekki meir Geir.

Plís, láttu kjurt liggja.

Við þjáumst nóg hérna úti í ballarhafi orðin að atlægi um allan hinn vestræna heim og got ef ekki Asíu líka.

Djísús.


mbl.is Hefðu átt að minnka umsvifin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann er gjörsamlega veruleikafirrtur og ætti að koma fyrir landsdóm og Ingibjörg líka,þetta er maður(Geir H)sem maður leit sem heiðarlegan og snjallan stjórnmálamann,en brást því trausti alveg herfilega,og núna lítur maður á hann (og Ingibjörgu)sem krimma af verstu gerð,og ættu að axla ábyrgð.

magnús steinar (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 14:15

2 identicon

Kærar þakkir fyrir slóðina á viðtalið.

Hversvegna fór aumingja vesalingurinn í viðtalið????????

Kannski langaði hann bara til að hitta Liv Ullmann? Kannski er hann illa haldinn athyglissjúklingur sem fær ekki lengur skammtinn sinn frá íslensku fjölmiðlunum?

"Var du ikke redd?  Ikke redd men...! Jú : Bankarnir voru orðnir of stórir og EES reglugerðin reyndist ekki nógu góð EN það er ekki hægt að ásaka einstaklinga um hvernig fór!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! OG svo hélt okkar fyrrverandi áfram að brosa sínu aulabrosi meðan þáttarstjórinn sneri sér að stjörnum kvöldins.

Er sjens á að Alþingi samþykki lög um að banna Geir Haarde að gefa viðtöl í erlendum fjölmiðlum?

Agla (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 14:21

3 Smámynd: Karl Tómasson

Ég kann nú alltaf ágætlega við Geir, enn hann getur ekki haldið svona áfram að ætla ekki að axla nokkra einustu ábyrgð á þessum hörmungum sem yfir okkur hafa gengið og ganga enn hér á klakanum.

Bestu kveðjur til þín kæra Jenný Anna frá Kalla Tomm úr Mosó. Eigðu góðan dag.

Karl Tómasson, 19.9.2009 kl. 15:01

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Jenný Arna:

Ég skil ekki heldur af hverju Geir H. Haarde, sem ég þekki aðeins í gegnum starf mitt innan Sjálfstæðisflokksins, getur ekki tekið ábyrgð á sínum þætti í hruninu, sem er að mínu mati umtalsverður líkt og annarra, sem voru í ríkisstjórn á árunum 2002 - 2008. Kynni mín af Geir eru einmitt að þetta sé góður maður og heiðarlegur og ég held mig enn við þá skoðun.

Ég man að hann sagðist myndu tjá sig ítarlega um hrunið, þegar skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis birti niðurstöður í nóvember. Kannski að við bíðum og sjáum hvað kemur út úr því!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 19.9.2009 kl. 16:10

5 identicon

Maðurinn er viðbjóðslegur drullusokkur.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 22:00

6 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ertu að meina að Geir hafi ekki verið betri á Norsku ???

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.9.2009 kl. 23:46

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

HH: Nei, hann var alveg jafn laus við að bera ábyrgð á því tungumáli og hann er á íslensku og maybyishouldhaveísku.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2009 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband