Leita í fréttum mbl.is

Sikiley norðursins

Ég beið eftir einhverju þessu líku.

Þ.e. að maðurinn sem bjó til tengslanetið um fyrirtæki og einstaklinga yrði stoppaður af.

Það gerðist og svo var bara að bíða eftir útskýringunum.

Og nú koma þær.

Maðurinn er grunaður um upplýsingastuld.

Svo er eftirfarandi lætt með svona til þess að gera fyrirtæki mannsins dálítið ótrúverðugt líka:

„Þá hefur forráðamaður IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf. lýst nauðsyn á auknu gagnsæi með kortlagningu eigenda félaga og rekstrar þeirra. Í ljósi þess vekur það athygli að það félag hefur á hinn bóginn ekki virt skýr fyrirmæli laga um afhendingu ársreikninga undanfarin þrjú ár,“ segir í tilkynningu ríkisskattstjóra."

Fyrirgefið, en ég skal hengja mig uppá að það hefur verið tekin um það ákvörðun í hæstu hæðum að þessar upplýsingar sem forrit mannsins getur gefið megi ekki komast í umferð.

Súmí - en þannig held ég að það sé.

Andskotans Sikiley norðursins.


mbl.is Grunaður um upplýsingastuld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Akkúrat! Rógsherferð og ekkert annað.

Skorrdal (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 09:54

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hrædd um að þú hafir rétt fyrir þér

Hólmdís Hjartardóttir, 17.9.2009 kl. 09:59

3 identicon

Hvaða hæstu hæðir ertu að tala um Jenný Anna?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 10:06

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Elín: Hátt uppi, valdboð frá einhverjum sem hefur eitthvað að segja og getur látið stoppa upplýsingaflæði.  Er það torskilið?

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2009 kl. 10:10

5 identicon

Ég hélt að fjármálaráðherra væri yfirmaður ríkisskattstjóra en þú talar um valdboð frá einhverjum sem hefur eitthvað um málið að segja.

Þetta er óneitanlega svolítið óljóst hjá þér og þ.a.l. torskilið.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 10:29

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Elín: Rétt, þetta er óljóst og það er vegna þess að ég veit ekkert um hver getur stöðvað svona.

Veit bara að það hefur gerst og það oftar en einu sinni.

Ég sé ekki fjármálaráðherra stoppa eitt né neitt, hann er ekki þeirrar gerðar síðast þegar ég vissi.

En hefurðu heyrt um samtryggingaklúbba valdsins?

Bræðraklíkur, skólaklíkur, stjórnmálaklíkur og því um líkt?

I rest my case.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2009 kl. 11:23

7 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Fyrst er reynt að taka hann af lífi mannorðslega. Ef það gengur ekki þá má búast við að öðrum aðferðum verði beitt. Persónulega er ég hissa á að hann skuli hreinlega vera á lífi.

Baldvin Björgvinsson, 17.9.2009 kl. 11:44

8 identicon

Hverrar gerðar er fjármálaráðherra? Þögn er sama og samþykki síðast þegar ég vissi.

Elin Sigurdardottir (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 12:37

9 identicon

Hefurðu aldrei séð Steingrím J. Sigfússon, Elín? Hafir þú séð hann áður þá ættir þú að geta lagt mat á hvernig persóna hann er, í.þ.m. opinberlega.

Jói á hjólinu (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 13:11

10 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Sko. Næst áætlaði hann að fara að rekja tilfærsur á veiðiheimildum innan hins frjálsa og heimsins besta fiskveiðistjórnunarkerfis. Þegar hann upplýsti það í kartljósi um daginn var ljóst að þetta gengi ekki!

Það er náttúrlega ekki hægt að fara að gera opinber þau viðskipti sem skrúfuðu verðið á  óveiddu þorskkílói upp í 4000 kall. Það sér hver maður

Haraldur Rafn Ingvason, 17.9.2009 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband