Leita í fréttum mbl.is

Koma svo BH

Ég vil óska nýkjörinni stjórn Borgarahreyfingarinnar til hamingju.

Ég gleðst persónulega yfir þessu kjöri en ég hefði svo sannarlega virt niðurstöðuna hver sem hún hefði orðið.

Það þarf ákveðinn félagsþroska til að taka þátt í pólitík krakkar mínir.

Það er líka nauðsynlegt að kyngja vonbrigðunum þegar maður verður undir í kosningu.

Látið mig vita það, hef þurft að lúta í gras oftar en ekki eftir að ég fór að kjósa og "mínir menn" oftast í minnihluta.

En þannig virkar lýðræðið.

Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að þingmenn hreyfingarinnar virði ekki niðurstöðu eigin landsfundar.

Ég ætla að skrifa barnalega hegðun þingmannanna að strunsa út af fundi í fússi vegna þess að þeir urðu undir í atkvæðagreiðslu, sem vanhugsaða í hita leiksins.

Það getur bara ekki verið að það sitji fólk á Alþingi Íslendinga (hehemm) sem myndi ekki meika dúkkuleik og matador án þess að fara í fýlu hvað þá alvöru stöff eins og landsfundi og kosningar almennt.

Það gengur einfaldlega ekki upp.

Svo vona ég að hreyfingin nái vopnum sínum og takist á við komandi vetur með blik í auga (já ég veit, smá sykur í tilefni dagsins) og skilji prímadonnustæla og sjálfshátíðartjöld eftir í geymslunni heima.

Komasvo.


mbl.is Valgeir fékk flest atkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Þingmennirnir gerðu að mínu mati rétt með því að ganga út. Flokkar gjörbreyta ekki stefnuskrá sinni rétt eftir kosningar og ætlast til að þeir sem kosnir voru á þing fylgi kúvendingunni. Réttara er að fylgja eftir fyrri loforðum, en því miður flæktist það mál á frekar klúðurslegan hátt þegar þingflokkurinn sundraðist.

Hrannar Baldursson, 13.9.2009 kl. 12:59

2 identicon

Jenný mín en og aftur þá gengu þingmenn ekki út fyrr en 2 tímar voru liðnir frá "tillögukjöri" og tóku fullan þátt í breytingatillögu kosninngum þangað til ! en þegar lagabreytinga liðnum var frestað vegna stjórnarkjörs varð þetta að eiga sér stað ! og ég ætlaði að taka þátt í breytingavinnunni en varð að draga framboð mitt til baka á sama tímapunti ! þar sem grundvallarmunur var á samþykktum tilögum og því sem ég greiddi athvæði mitt í vor !

EN hellingur er eftir af BH þótt þetta uppgjör hafi verið óumflýjanlegt, og í raun bara gott fyrir alla að "losa" þótt BorgaraHreyfinginn hafi þokkað sér undir hatt "hefðbundinna" flokka þá er samt enþá mikið sem skilur að og ánæjulegt að sjá hve Grasrótinn verður enþá sterk þótt reyndar að valdsvið stjórnar sé farið að minna of mikið á "miðstjórn" ! en meigi BH nærast á heiðarleika, sátt og Hugsjónum

Grétar Eir (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 13:50

3 Smámynd: Neddi

Hrannar, hverju í stefnuskránni hefur verið breytt? Ég var nú á þessum landsfundi og ekki minnist ég þess að hróflað hafi verið við stefnuskránni. Hins vegar voru loksins sett almenn lög í félaginu.

Neddi, 13.9.2009 kl. 21:41

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Stefnuskránni var ekki breytt.

Voðalega er þetta leiðinlegur misskilningur allt saman. Ný lög hreyfingarinnar verða tilbúin til birtingar á morgun.

Takk Jenný ;)

Heiða B. Heiðars, 13.9.2009 kl. 23:43

5 Smámynd: Baldvin Jónsson

Neddi, þetta var aðallega hugmyndafræðileg breyting. Þ.e. við ætluðum okkur aldrei að breyta henni neitt, en nú hefur verið samþykkt að það sé  hægt.

Baldvin Jónsson, 13.9.2009 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband