Leita í fréttum mbl.is

Íslenska leiðin - "the en-word"

Þegar íslenskir stjórnmálamenn eru króaðir út í horn eins og SER þá er viðkvæðið alltaf það sama.

Ég gerði mistök... EN (eins og núna, ég neytti víns EN fann ekki á mér.  Leim).

Væri ekki hægt að klippa "enið" aftanaf og segja: Ég gerði mistök.  Punktur Basta.

Bankarnir hrundu, guð blessi Ísland, við gerðum smá mistök EN það var heimskreppa.

En, en, en.  Þvílík ábyrgðarfælni í gangi á þessu landi hjá stjórnvöldum.

Mér finnast mistökin hans Sigmundar Ernis ekkert stórkostlega alvarleg varðandi rauðvínsþambið, að minnsta kosti ekkert til að setja neyðarlög út af.

Í besta falli eru þau hallærislegt dómgreindarleysi.

Það er hins vegar erfiðara að horfa fram hjá því að maðurinn var að borða og drekka með MP-banka.

Þar er hann kominn á hálan ís.

En í leiðinni fýsir mig að vita hvort alþingsmenn séu í því svona almennt og yfirleitt að væna og dæna með bönkum og öðrum fjármálastofnunum?

Mér dettur ekki í hug að það sé bara SER sem það hefur gert.

Og í Þórs nafni leynifélagsfrömuðir og ofstækismenn.

Farið nú ekki í að alkahólistavæða þingmanninn af ykkar alkunna spekingsskap og "sérfræðikunnáttu" og veina; meðferð, meðferð.

Fólk drekkur aktjúallí stundum á röngum stað og stund án þess að vera í þörf fyrir slopp.

Þetta segi ég sem útúrmeðferðuð með þriggja ára edrúmennsku á mínu fagra baki.

Á eigin vegum með stuðningi fólks sem svipað er ástatt um en engu helvítis heilagleika kjaftæði með innblöndun guðs, Billa og Bobs.

Ég hef heldur enga löngun til að breyta neinum öðrum en sjálfri mér og ætla að vera fullkomlega ábyrg á lífi mínu jafnt á góðum tímum og slæmum.

Enda það i och för sig ærið verkefni að vasast í eigin breyskleika.

Þar kem ég sko ekki að tómum kofanum, börnin mín södd og sæl.

Næsta mál á dagskrá takk.

Jamm.


mbl.is Fékk sér léttvín með mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eldur Ísidór

Æji, alltaf hittiru naglann á höfuðið og alltaf gaman að lesa innleggin þín.

Ég er sammála þér með alkólistavæðinguna; og já, jafnvel líka staðreyndinni hvar hann var að borða... en hins vegar var það ekki MP Banki sem var að reyna að berga SPRON en var svo hindrað af Kaupþingi ? (ef ég man þetta rétt.....er ekki þessi MP kall nokkuð heiðarlegur ? ef það eru til heiðarlegir bankamenn þ.e.a.s.....

Eldur Ísidór, 26.8.2009 kl. 15:40

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Sammála þessu,  það er komin gargandi þörf fyrir

 

http://jennystefania.blog.is/blog/jennystefania/#entry-937768

Jenný Stefanía Jensdóttir, 26.8.2009 kl. 16:00

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst það stórkostlega alvarlegt Jenný, út af fyrir sig og án samhengis við önnur mál, að alþingismaður stígi í ræðustól alþingis undir áhrifum áfengis. Það er meðvirkni af versta tagi, sem reyndar gengur nú út allt netið, ef mönnum finnst það ekki. Þingmaður sem sýnir þjóðinni aðra eins óvirðingu á ekki að vera á þingi. En það er eins og flestum finnist þetta ekkert mál svo sem. Meðvirkni þjóðarinnar í áfengismálum verður ekki betur lýst.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.8.2009 kl. 17:27

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sigurður: Ég á nú við í hinu stóra samhengi hlutanna, með öll þessi alvarlegu mál sem yfir okkur dynja.

Ég tel það enga meðvirkni ef maðurinn játar og biðst afsökunar þá er hægt að horfa fram hjá þessu atviki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2009 kl. 17:40

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Tek undir með Sigurði, en líka þér að mörgu leyti, Jenný

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.8.2009 kl. 18:01

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vitaskuld er það grafalvarlegt mál að mæta drukkinn í vinnu og líðst á fáum stöðum - einna helst á alþingi og hugsanlega í seðlabankanum.....

Það eru grafalvarleg mál sem þarf að leysa á alþingi þessa dagana og ef einhverjir þurfa á öllu sínu að halda þá eru það þingmenn. 

Maðurinn á vitaskuld að hysja upp um sig buxurnar og segja af sér - þá verður varamaður hans boðaður inn á þing og getur setið þar þar til hann missir vit og rænu - sem virðist vera býsna algengur sjúkdómur á alþingi þessar vikurnar!

Er kannski spurning að kalla heilbrigðiseftirlit og vinnueftirlit út? Er húsasótt að ganga á þingi? 

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2009 kl. 20:46

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Jenný: Sigmundur byrjar á því að ljúga og biðst síðan afsökunar.

Erum við ekki búin að fá nóg af slíku ?

Er hægt að treysta þannig fólki þegar á hólminn er komið ?

hilmar jónsson, 26.8.2009 kl. 23:35

8 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Hvort sem Sigmundur Ernir mætti hífaður í ræðustól eða ekki þá held ég að hann sé vita vonlaus pólitíkus... og hann er verri sem skáld.

Ekki skrítið þó maðurinn sé svolítið rávilltur og þ.a.l. ruglaður á stundum.

Emil Örn Kristjánsson, 27.8.2009 kl. 01:17

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Emil: Endilega koma því að hversu lélegt skáld þér finnst hann vera.

Háralitur mannsins er líka hneyksli, veit hann ekki að dökkt fer honum betur?

Liturinn á bílnum hans sökkar.

Svo er hann í asnalegum stjórnmálaflokkið og smyr brauðið sitt öfugu megin hef ég heyrt.

Kommon.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2009 kl. 09:54

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta með stjórnmálaflokkinn hans er reyndar alveg rétt

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.8.2009 kl. 10:04

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gunnar: Sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2009 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband