Leita í fréttum mbl.is

Lofttónleikar í þá tíð

 hippie-girl

Það er eitthvað svo ótrúlega plebblalegt, aumkunarvert nánast og í leiðinni ótrúlega fyndið að sjá fullorðið fólk spila á þykjustunni hljóðfæri.

Svo ég tali nú ekki um að keppa í greininni.

Aulahrollur alla leið niður í tær hjá undirritaðri en samt smá krúttlegt.

Ég man eftir böllum í Glaumbæ, Tjarnarbúð og víðar þegar strákarnir "dönsuðu" við stelpur en þær voru eiginlega leikmunir því þeir stóðu alveg intúitt á miðju gólfi í eigin heimi og með lokuð augun og spiluðu á luftgítar.

Sumir trommuðu, með tunguna út í annað munnvikið og vönduðu sig svakalega.

Þetta kostaði geðveikisleg hlátursköst hjá okkur vinkonunum.

Einu sinni sællar minningar var ég í minni elskuðu Tjarnarbúð og þar var heilt "band" á gólfinu með lofthljóðfæri.

Þeir voru svo ábúðarfullir að ég hef þá enn grunaða um að hafa æft og allt eins og í alvöru hljómsveit.

Við vinkonurnar görguðum úr hlátri en á þessum árum hlógum við eins og mótorbátar, hikstuðum, skríktum og æptum og vorum algjörlega óþolandi.

Hljóðið sem við frömdum hafði ekkert með lofthljóð að gera því píkuskrækirnir smugu inn í merg og bein.

Hvað um það, eftir að hafa dregið loftbandið sundur og saman í háði, af því við héldum að það væri svo hipp og kúl þá biðu þessir lofttónlistarmenn eða vonnabís í skjóli nætur og hentu okkur í Tjörnina þegar við komum út.

Ofbeldi segi ég og ég ætla ekki að lýsa fyrir ykkur útlitinu á uppstrílaðri mér þegar ég kom í "land" með tægjur í hárinu, sefgras og annan gróður.

Ég mæli ekki með að ganga of langt í fíflagangi og stríðni.

Því sumir hafa einfaldlega engan húmor fyrir sjálfum sér.

En þaðan sem ég sit núna og horfi til baka þá get ég allt að því skilið þessa strákfjanda.

En bara allt að því.


mbl.is Leikinn með luftgítar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

þessi er nú enginn plebbi

Brjánn Guðjónsson, 22.8.2009 kl. 13:59

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Iss það er nú ekkert Jenný. Ég þekki nokkra sem hafa orðið "þykistu rokkstjörnur" og alveg rosalega frægir, þrátt fyrir sama og enga athygli.

Brynjar Jóhannsson, 22.8.2009 kl. 14:12

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Sammála luftgitar er eitt af því hallærislegasta sem ég man eftir á árunum í Glaumbæ og Breiðfirðingabúð hehehe.... þegar ég las þetta hér að ofan mundi ég allt í einu eftir einum í ,,Búðinni"  sem bara stóð allt kvöldið fyrir framan Fjarkana. Tóna eða Toxic og spilaði eins og hann væri einn af hljómsveitinni á hverjum laugardegi og með Bill Haley greiðslu og alles!

Ía Jóhannsdóttir, 22.8.2009 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.