Leita í fréttum mbl.is

Hva - audda reddast etta

Össur Skarpi segir að fyrirvararnir við Icesave-samninginn hljóti að halda.

Hljóti?  Halló!

Fólk hefur lagst til svefns með þá trú að það hljóti að vakna daginn eftir.

Við vitum nú hversu haldlítil sú trú er í mörgum tilfellum.

Við Íslendingar höfum haft að einkunnarorðum í gegnum árin að þetta muni reddast.

Í þetta skiptið verðum við að hafna þeirri trú enda hefur það sýnst sig að það reddast ekkert af því bara.

Skotheldir fyrirvarar eru algjört lágmark.

Ég held að ég fari og fái mér sígarettu.

Okei, það mun ekki klikka nema að ég detti dauð niður á leiðinni út í smók.

 


mbl.is Fyrirvararnir hljóta að halda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl; Jenný Anna !

Brezkir; og Hollenskir lagarefir, munu blása á alla fyrirvara, hverja íslenzkir þingmenn hyggjast setja, við helvítis plagginu.

Á ekki að vera, móðgun við 4 - 5 ára leikskólabörn, en,........ þau sæju þetta betur - en það fólk; hvert við teljum vera komið, til vits og ára, og sitja á stólum sínum, í steinnökkvanum, við Auturvöll, suður í Reykjavík.

Með; beztu landsbyggðar kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2009 kl. 01:09

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Óskar Helgi, stórvinur minn úr Árnesþingi, hefur slíðrað vopnin beitt og oddhvöss síðan í haust.  Fáum við nú enn að njóta orðhvassa ræðu, sem æ og einatt má stóla á úr hans ranni.

Auðvitað skulu þessir fyrirvarar vera skotheldari en öll kjarnorkumannvirki veraldar; neðanjarðar, að öðrum kosti skyldu steinnökkvabúar  ekki halda að sátt náist á meðal almúgans, um að skrifað verði undir.

Góða (menningar)nótt  nafna!

Jenný Stefanía Jensdóttir, 22.8.2009 kl. 02:29

3 identicon

Komið þið sælar; Nöfnur - sem og, aðrir hér, á síðu þessarri !

Jenný Stefanía !

Fjarri fer því; að ég hafi - eða; muni hyggjast slíðra sverð mitt, öðrum vopnum fremur, kæra vinkona - og spjallvinkona.

Nú fyrst; vil ég láta sverfa að þingheimi - og beina fallbyssu hlaupum nokkrum, að húsinu - þó; ei vildi, af fýra, nema tryggt væri, að enginn væri, innan dura (leiðist nýyrðið; dyr) þess.

Það er orðið tímabært; að íslenzk valdastétt, fari að rumska til vitundar um það - að fólk og atvinnulíf, lifir ekki, á loftinu einu, gott fólk !!!

Með; hinum beztu kveðjum, sem áður og fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2009 kl. 03:24

4 Smámynd: Alli

Hún á eftir að verða íslendingum dýr þráhyggja Samfylkingarinnar um inngöngu í ESB.  Þó það setji þjóðna á hausinn þá SKAL Ísland í ESB, hvað sem það kostar!

Áfrm Framsókn og InDefens, ekki gefast upp!  Þið eruð okkar eina von.

Alli, 22.8.2009 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband