Leita í fréttum mbl.is

Ongoing shit

Eik fasteignafélag skuldaði Kaupþingi 86,2 milljónir evra, skv. lánaeftirliti frá september í fyrra.

Eiginkona forstjóra félagsins er í bankastjórn Nýja Kaupþings.

Hún víkur alltaf af fundum og svona þegar mál Eikar eru þar til umfjöllunar.

Það er mjög tillitssamt af konunni!

Á hverjum degi berast nýjar og nýjar fréttir af hagsmunaárekstrum, samtryggingu og spillingu.

Ekki bara frá því fyrir bankahrun eins og skynsömu fólki gæti orðið á að halda.

Gömlu aðferðirnar eru enn í fullu gildi.

Enda í góðu er það ekki?

Svo Íslenskt, krúttleg og siðspillt.

Ongoing shit.

GARG.


mbl.is Skuldar milljarða og eiginkona forstjórans í bankaráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hún skreppur út til að fá sér smók, á meðan gleyma hinir tilvist hennar, er það ekki ?

Finnur Bárðarson, 20.8.2009 kl. 16:44

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Eitthvað svo íslenskt já

Ásdís Sigurðardóttir, 20.8.2009 kl. 16:52

3 Smámynd: Hjörtur Sveinn Grétarsson

Íslenskt siðferði í hnotskurn. 

En varðandi upphæðirnar þá er þetta samkvæmt fréttinni  86,2 milljónir Evra eða 15,8 milljarðar.  Það breytir þó engu um sóðaskapinn.

Hjörtur Sveinn Grétarsson, 20.8.2009 kl. 17:16

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hjörtur, góður punktur manni finnst allt í einu að 15 milljarðar sé bara ekki neitt.

Finnur Bárðarson, 20.8.2009 kl. 17:22

5 identicon

ÉG elska að lesa um svona samhent hjón.Nice

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 20:13

6 identicon

Æji Jenný, hvað þú ert með á nótunum alltaf...

Mín spurning er einfaldlega: Hvar er glæpurinn í þessu máli?

Skoðum í alvörunni staðreyndirnar.

1. Eik skuldar 15 milljarða í Kaupþingi.

2. Eignir Eikar eru metnar á 20+ milljarða um síðustu áramót (sjá heimasíðu Eikar)

3. Fasteignafélög í eðli sínu eru skuldsett félög, talið er að um 70-90% veðsetning fasteigna sé normið með fasteignafélög.

4. Það er ekkert í fréttinni sem segir að Eik hafi fengið fyrirgreiðslu hjá Kaupþing eða að félagið eða forstjóri þess hafi hagnast á einhvern hátt með

því að eiginkona forstjórans sitji í stjórn Kaupþings.

5. Öll lánin eru veðsett á eignir félagsins. Það er nákvæmlega sama veðsetning í gangi þarna og er á heimilum þúsunda íslendinga, lán eru þinglýst á eignir og þær veðsettar fyrir lánunum.

6. Forstjórinn er starfsmaður félagsins og þiggur vissulega laun þaðan en hann er ekki skráður hluthafi og því langsótt að hann beiti eiginkonu sinni sér til framdráttar.

Þetta er tilraun MBL til að henda skít þar sem hann á ekki heima. Gaman þegar svona margir taka undir og æpa SPILLING SPILLING.

Bestu kveðjur,

Tómas

Tómas (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 00:37

7 identicon

Gömlu aðferðirnar..... og sama fólkið

Georg O. Well (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 2985734

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband