Leita í fréttum mbl.is

Slysfarir fram í tímann

Páll Hreinsson, formaður Rannsóknarnefndar þingsins um bankahrunið segir að nefndin muni færa þjóðinni verri fréttir en nokkur nefnd hafi áður þurft að gera.

Gott og vel, það bendir til þess að nefndin sé að vinna að heilindum og ætli að leggja allt á borðið.

Hvað um það, um leið og ég fagna því að við fáum að vita bitran og miður fallegan sannleikann þá skil ég ekki alveg þetta með dagsetninguna seint í haust, eða 1. nóvember.

Mér líður núna eins og ég ímynda mér að það væri að fá að vita um slysfarir sínar fram í tímann.

Alveg: 1. nóvember verðurðu fyrir bíl.  Það er óafturkallanleg ákvörðun og það eina sem þú getur gert er að vona það besta.

Núna hefur steinninn í maga þjóðarsálarinnar stækkað um nokkur tonn og var hann þungur fyrir.

Ég get ekki sagt að ég bíði spennt er alveg nógu tætt fyrir vegna allra "litlu" skandalanna af glæpunum sem hér tíðkaðust á meðan verðirnir sváfu.

Meiri andskotans verkunin.


mbl.is Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jenný mín getur verið að hann sé að slá þessu fram til að skjóta loku fyrir að menn verði beittir of miklum þrýstingi til að láta skýrsluna ekki koma fram í dagsljósið.  Þegar hann tekur þessu fram, þá verður um leið meiri vissa um að sannleikurinn komi upp á borðið.   Ég er ekki í neinum vafa um að nefndin situr undir gífurlegum þrýstingi manna og kvenna sem vita upp á sig skömm og vilja ekki láta opinbera það fyrir alþjóð. 

Þetta myndi þá vera kallað;  að slá Varnagla.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.8.2009 kl. 10:18

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Jenný mín skandalarnir fara með þeim en ekki okkur, tilgangslaust að vera að ergja sig á því sem við breytum ekki.
Knús

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.8.2009 kl. 11:41

3 identicon

Tíðindin munu ekki koma á óvart: Þau eru góð fyrir útrásarvíkingana, slæm fyrir þjóðina. Sem sagt: allt sem gert var er löglegt.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.8.2009 kl. 12:39

4 Smámynd: halkatla

við erum alveg sammála.

halkatla, 9.8.2009 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.