Leita í fréttum mbl.is

Skellt í lás

Ég hef oft talað mér til hita og blóðþrýstingshækkunar um s.k. hjálparstofnanir.

Þá á ég við góðgerðarstofnanir sem gefa bágstöddum að borða.

Ekki misskilja mig, bæði Fjölskylduhjálpin og Mæðrastyrksnefnd hafa eflaust bjargað mörgu og ég er svo sannarlega ekki að gagnrýna það góða starf.

Það er hins vegar hugmyndafræðin sem stendur í mér.

Ég er einfaldlega með þá skoðun að hvert samfélag sem vill geta staðið undir sjálfu sér með stolti byggi félagslegt net sem sér til þess að enginn þurfi að standa í röð og fá afhentan mat fyrir sig og sína upp á von og óvon.

Ég geri þá kröfu til samfélagsins að það láti ekki þegna sína svelta.

Ég hafna súpueldhúsahugmyndinni þar sem ráðamenn geta hallað sér aftur í leðursófanum og látið vandamálið renna yfir til félagasamtaka sem eru upp á gjafir og velvilja komnar.

Aldrei varð þetta ljósara fyrir mér en einmitt í síðast liðnum mánuði.

Þá fóru öll góðgerðarfélögin (kirkjan þar með talin) í sumarfrí.

Alls staðar skellt í lás - ekkert að hafa fyrir þurfandi fjölskyldur.

Áður en einhver fer á límingunum þá er ekkert að því að fólk og félög fari í sumarfrí en þetta sýnir bara að kerfi sem byggir á velvilja og styrkjum getur ekki gengið upp sem bjargráðalausn.

Það er hægt að spara út um allt.

En vinsamlegast sparið flottræfilsháttinn og bætið kerfið fyrir þá sem eiga ekki mat fyrir sig og sína.

Það er hreinlega skömm að þessu.

Þetta er aumingjaskapur sem við höfum ekki efni á.

Og hana nú.


mbl.is Búast við mikilli fjölgun beiðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek heilshugar undir þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.8.2009 kl. 10:01

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Tek undir það.

Eitt af þeim fyrirtækjum sem allajafna lætur lítið yfir sér er Matstofa Samhjálpar. Þar er unnið mjög gott og óeigingjarnt starf. Það eru u þ b 200 manns á dag sem þangað fara til að fá fría máltíð að borða. Um þessar mundir eru þau m a að selja gamla diska eftir Magnús Þór Sigmundsson til ágóða fyrir starfsemina. Þau standa við Krónubúðirnar á föstudögum.

Marta B Helgadóttir, 7.8.2009 kl. 10:06

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Marta: Ég veit um Samhjálp svo maður tali nú ekki um Hjálpræðisherinn og það verður seint fullþakkað.

Málið er að auðvitað verður alltaf einhver þörf fyrir svona en núna sýnist mér sem félagsmálabatteríið sé farið að reikna með þessum reddingum góðgerðastofnana og það gengur ekki upp ef við viljum kallast fólk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2009 kl. 10:11

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það á að hafa þetta eins og á Haiti - þar er enga vinnu að hafa og stjórnvöld sjá til þess að allir fái að borða!

Hrönn Sigurðardóttir, 7.8.2009 kl. 10:16

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er þér svo sammála.

Sigrún Jónsdóttir, 7.8.2009 kl. 10:42

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

vá hvað ég er sammála!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 7.8.2009 kl. 10:46

7 identicon

Dagsetrið lokaði á Eyjaslóð í 2 vikur EN OPNAÐI Á MEÐAN Í SAMKOMUSAL Hersins að Kirkjustræti 2.Aðeins um breytingar á húsnæði á meðan við máluðum og saumuðum.Og það er ALDREI FRÍ í matarúthlutunum.Allir fá mat sem sækja um.Fólk verður svangt og er jafn peningalítið á sumrin sem og á veturna.Og við erum búin að opna afturÞað er mikil hamingja með það hjá þeim sem ekkert heimili eiga.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 10:54

8 identicon

Nákvæmlega, stjórnvöld sem reiða sig á aðstoð góðgerðarfélaga til að sjá um sína smæstu þegna er til skammar. Það er til nóg af mat á Íslandi, enginn ætti að þurfa að betla mat. Það er samfélagið sem er bilað.

steina (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 11:35

9 identicon

Hvernig væri nú að moldríkir útrásarvíkingar létti á samvisku sinni og gefi tugi milljóna til Mæðrastyrksnefndar ( þeim munar ekkert um það ). Hvað með t.d. milljarðamæringana Bjarna Ármannsson, Lárus Welding, Hreiðar Má, Sigurð Einarsson, Sigurjón Þ Árnason, Halldór J Kristjánsson ?  Nei annars, það er örugglega til of mikils ætlast að slíkir eiginhagsmunapúkar láti nokkuð fé renna til góðgerðamála. Það væri reyndar búið að ákæra alla þessa menn í Danmörku. Þar er líka um siðmenntað og réttlátt þjóðfélag að ræða. Hér ríkir bara Suður-Amerískur auðmanna fasismi, sama hverjir stjórna.

Stefán (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 12:18

10 identicon

Þetta að loka hjá hjálparstafi kirkjunar í innan landsaðstoð er hreinasta skömm, Kirkjur og prestar eru um alt land hjá þjóðkirkjunni sem ættu vel að geta úthlutað mat til þeirra er þurfa. Eða snýst þetta um krónur og aura eða pólitíska sýndarmensku. Það er mikið af fólki sem hefur enga vinnu, fast í skuldum og á hvorki í sig og á. Hvað er þessi Velferðavakt, virðist vera upp á punnt. sjá hér:

Velferðarvaktin óskar eftir ábendingum frá stofnunum, félögum eða einstaklingum um málefni sem ætla má að þarfnist skoðunar og varða félagslegar eða fjárhagslegar afleiðingar bankahrunsins fyrir heimilin. Einnig þiggur vaktin tillögur eða upplýsingar um aðgerðir til að mæta vandanum sem gætu verið öðrum góð fyrirmynd. Velferðarvaktin tekur ekki til afgreiðslu málefni einstaklinga.


En hér er linkur á Vaktinafyrir þá sem vilja senda ábendingu til vaktarinnar

http://www.felagsmalaraduneyti.is/velferdarvaktin/abending/

Björn (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 13:31

11 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

amen

Brjánn Guðjónsson, 7.8.2009 kl. 14:40

12 identicon

Að treysta á, að hluti þjóðarinnar lifi á bónbjörgum er mikil skömm fyrir samfélag, sem hefur einhverja reisn  og státar af öllum lifsins gæðum. Svo ég vitni nú í slagorð fyrrverandi bæjarstjóra á Akureyri. Starf hjálpræðishersins, ( sem sjaldan talar um sín góðverk), mæðrastyrksnefndar og fleirri góðgerðastofnanna er samt göfugt og þakkarvert.   

Kolbrún Bára (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985714

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband