Leita í fréttum mbl.is

Litli Landsímamaðurinn hvað?

Það er talað við konu í Mogganum í dag sem lenti í því að klóakið stíflaðist í sumarbúðstaðnum sem hún dvaldi í og svo ætlaði hún á tónleika með Helga Björns í Valhöll en við vitum hvernig það fór.

Tónleikarnir hurfu í reyk.

Það sem ég skil hins vegar ekki af hverju fjölmiðlar hafa ekki hangið á mínum húni.

Ég var beisíklí síðast kaffigesturinn á þessu sögufræga hóteli eins og frægt er orðið.

En þar sem húsbandið gleymdi að taka með sér sígó og það var bara sitthvor í pakkanum þá stöldruðum við ekki lengur við en sem nemur svona korteri.

En þarna sátum við í sólinni með Norsurum og Svíum á þessu föstudagseftirmiðdegi sem verður skráður í sögubækur, og þá hefur sennilega verið farið að rjúka.

Vonandi var það ekki sígóstubburinn logandi sem ég henti inn um opinn glugga á hótelinu sem magnaði eldinn.

Nei, nei, en ég upplifi mig ógeðslega merkilega vegna nærveru minnar við þennan atburð sem er auðvitað hörmulegur og ekkert öðruvísi.

Skrýtið samt að ekki einn fjölmiðlungur hafi viljað taka við mig exklúsív opnuviðtal með mig reykjandi á forsíðu vegna nálægðar minnar við söguna.

Ég sem er litla Valahallarkonan með insæd informeisjón.

Litli Landsímamaðurinn hvað?

Skömm aðessu.


mbl.is Klóakið stíflaðist og hótelið brann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Guðiminnjerímías við höfum þá verið á sömu slóðum elskan ók framhjá og allt í ljósum logum, vorum á leið í sumarhúsið sem er í Búrfellslandi rétt hinumegin við vatnið, jæja verðum bara alveg saman næst þegar ég kem suður, sko var að pæla í kaffihúsi þar sem nokkrar gætu hist.
Knús í krús
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.7.2009 kl. 13:32

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég kíkti þarna í síðustu viku og það er bara allto horfið og grænt torfið stóð upprúllað tilbúið að hylja allar minjar og Valhöll, einu sinni var en verður aldrei aftur.  Þú ert yndi

Ásdís Sigurðardóttir, 31.7.2009 kl. 13:35

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 31.7.2009 kl. 14:57

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Dulítil sálgreining hér, frá helsta vasabókarsála þjóðarinnar:

Jenný mín; Þú ert greinilega haldin því, sem við proffurnar köllum "yfirgengilegri játningaþörf".

Búin að rembast eins og rjúpan við staurinn að játa á þig Valhallarbrunann frá fyrsta neista. (Stelur m.a. glæpnum af moi, sem fékk sér örugglega sígó þarna innandyra í brúðkaupsveislu Helga Björns og Villu villtu, vorið 2002).

Nema hvað, að nóg er nú t.d. af óupplýstum mannshvörfum hér á landi. Játa bara núna góða -og létta löggunni lífið.

Varst þú svo ekki örugglega líka að fá þér smók fyrir utan sjoppuna í Kef. sem Geirfinnur fór til að hringja í kvöldið örlagaríka ?

Grunti mig ekki !

Hildur Helga Sigurðardóttir, 31.7.2009 kl. 15:31

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Keyrði þarna fram hjá í fyrrakvöld. Búið a tyrfa og engin merki um stórbrunann,

  Ég vil fá þarna aftur hótel og greiðasölu eins fljótt og hægt er.  Lítið sætt ráðstefnuhótel með góðum veitingum og þjónustu sem hæfir kóngum, en það er víst of mikið til mælst. 

Ía Jóhannsdóttir, 31.7.2009 kl. 15:46

6 Smámynd: Garún

Já þetta minnir mig á þegar ég tók rafmagnið af öllu suðurlandi hér um árið í kvikmyndinni Myrkrahöfðinginn.  Búrfellsvirkjun bara stoppaði.  Það er ýmisslegt sem við dvergar getum gert ef við erum í þannig stuði sko.

Garún, 31.7.2009 kl. 22:44

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Hjartanlega sammála Íu -og Garún; áfram með játningarnar

Hildur Helga Sigurðardóttir, 1.8.2009 kl. 01:55

8 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

http://svartfugl.blogspot.com/2007/01/sminn-er-ekki-landssminn.html

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 1.8.2009 kl. 03:58

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir Með Íu það væri æðislegt að fá þarna Hótel á ný, maður er vanur að geta skroppið á Þingvöll og fengið sér kaffi, það er einnig komin hefð á staðinn.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.8.2009 kl. 09:01

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð ógeðslega fyndin villingarnir ykkar.

Játningar mínar munu koma út á bók mjög bráðlega.

Minn þáttur í stórum fíkniefnamálum, Geirfinnsmáli og fleiri óleystum málum mun verða til lykta leiddur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.8.2009 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30