Leita í fréttum mbl.is

Minnisdapur skilanefndarformaður saddur og sæll

Gæti maður beðið um eins og einn dag án frétta af sukki og svínaríi?

Nei, því miður, ekki hægt eftir að Pandóruboxið var opnað s.l. haust.

Þá er að sættast við það.

Ég var að lesa DV og viti menn blóðþrýstingurinn fór upp úr öllu valdi.

Látum vera að maður þurfi að vera í andaslitrunum vegna gróðærissukksins en að fá eina svona sögu beint í æð, úr kreppunni, þ.e. af sukkveislu skilanefndar getur hreinlega gert mig óða.

Í apríl s.l. var starfsdagur hjá skilanefnd Glitnis.  Þeir buðu 45 starfsmönnum í mat á veitingastaðinn Panorama um kvöldið.

Reikningurinn var upp á 720 þúsund krónur, jájá.

Vín fyrir 380 þúsund, afgangurinn var sennilega borðaður með hnífi og gaffli.

Svo er talað við Árna Tómasson, formann skilanefndarinnar sem réttlætir þessa eyðslu á kostnað skattborgarana með öllum ráðum.

Hann vill reyndar meina að erlendir kröfuhafar greiði fyrir þetta, það breytir auðvitað málinu.  Allt í lagi að sukka á kostnað erlendra kröfuhafa.

Árni Tómasson HELDUR að þetta sé það eina sem hafi verið gert fyrir starfsmennina sem margir hverjir eru með þetta 15-25 þúsund krónur á tímann vesalings mennirnir.

Mér finnst reyndar áhyggjuefni hversu minnisdapur Árni Tómasson er, sem HELDUR að þetta sé það eina sem hafi verið gert fyrir starfsmenn skilanefndanna. (Ásamt mökum offkors).

Held að það sé dálítið issjú að vera með minnið á hreinu í svona skilanefndardjobbi.

Já og svo er líka talað við Steinunni Guðbjartsdóttur sem situr í slitastjórn Glitnis.

Hún réttlætir gjörninginn af miklum eldmóði líka.

Hvort sem það eru erlendir kröfuhafar eða íslenskir skattborgarar sem hirða nótuna þá langar mig að minna á það litla smáatriði sem er að Glitnir er friggings gjaldþrota.

Er kannski eftirsóknarvert að vera gjaldþrota fyrirtæki á Íslandi í dag?

Svei mér þá ef skilanefndirnar eru ekki hinir nýju útrásarvíkingar, fyrirgefið innrásarvíkingar.

Og megi maturinn og brennivínið standa í þeim og...

Nei, nei.

DV


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru ekki vinir og lögfræðingar útrásarvíkinganna,vinir og afkomendur embættismanna í þessum skilanefndum?Svo þetta er eðlilegt eða hvað???????En mætti Elton??????? x#$%&/ fávitar

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2009 kl. 10:52

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vels ritað að vanda, gæti ekki verið meira sammála. Takk fyrir mig

Ásdís Sigurðardóttir, 29.7.2009 kl. 10:52

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Þetta er nú varla fyrir samloku og öldollu á allt liðið.

Þröstur Unnar, 29.7.2009 kl. 13:08

4 Smámynd: Eygló

Var þetta ekki hópur "almennra" starfsmanna?  Starfsmenn í "neðri lögunum" hafa hreint ekki fengið það sem "upp"arnir hafa hrifsað til sín.

Er þetta ekki fólkið sem hefur þurfta að svara fyrir gerðir yfirmanna sinna?  Peðunum er stillt fremst.  Finnst ekki mikið þótt þeir hafi fengið flott boð í sárabætur.

Eygló, 29.7.2009 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.