Leita í fréttum mbl.is

Ástríðufullar kjötbollur - takk fyrir

Það er eitthvað óstjórnlega krúttlegt og í leiðinni heimóttarlegt við Ora.

Svo eru þeir með vægt mikilmennskubrjálæði upp á íslensku.

Slagorðið er "Ora - ástríða í matargerð".

Hvernig hægt er að taka upp niðursuðudósir af ástríðu með vatn í munninum af tilhlökkun er mér lokuð bók, en það er gott að hafa trú á sér og sinni framleiðslu.

Ég hef alist upp með grænum baunum og svoleiðis dósamat.

Það er svona kaupfélagslegur fílingur yfir niðursoðinni vöru.  Svona fiftís eitthvað.

Man eftir saxbauta hérna í denn.  Sem var tekinn með í ferðalög.

Svo sé ég að Ora er að innkalla kjötbollur í brúnni sósu.

Einhver framleiðslugalli.

Okei, það getur alltaf komið fyrir og ég er ekkert hissa á því.

Kjötbollurnar hafa eflaust verið eldaðar af ástríðufullum kokki á meðan hann fékk margar matarfullnægingar yfir pottinum.

Sé hann fyrir mér troða bollunum og sósunni ofan í blikkdósina með ofsafengnum tilburðum þess sem vill koma bestu kjötbollum í heimi ofan í kreppuþjáða Íslendinga.

Málið er að ég er svo hissa að fólk skuli enn vera að kaupa niðursoðna kjötvöru.

Þegar það er allt fullt af góðu hráefni.

En ég verð að trúa því að það sé ástríðuhitinn í innihaldi blikkdósanna sem er að ganga svona vel í fólk.

Kannski maður fái sér grænar í kvöld.

Ég finn hvernig ég hitna öll að innan.

Hér er auglýsingin.

Ekki missa af henni.

Ótrúlegt hvað hægt er að elska það sem maður trúir á.

Líka niðursoðinn mat.


mbl.is Ora innkallar kjötbollur í brúnni sósu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

erótíkin yfir fiskibollunum hvarf þegar ég komst að því að þær voru gerðar úr færeyskum ufsa!!!

zappa (IP-tala skráð) 28.7.2009 kl. 15:56

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þessi auglýsing er... (hér vantar mig tilhlýðilegt lýsingarorð)! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.7.2009 kl. 16:22

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Saxbautinn klikkaði ekki. Ora grænar eru sígildar og samofnar þjóðarsálinni. Blandað grænmeti í dósum frá Ora er guðdómlegt. Ora er þjóðþrifafyrirtæki sem allir íslendingar ættu að eiga  hlutabréf í.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 28.7.2009 kl. 16:44

4 Smámynd:

Allt frá Ora er gott þó sumt sé betra en annað   og þessar blessuðu kjötbollur eru bara ágætar og fínt að eiga þegar maður nennir ómögulega að gúrmeast eitthvað (sem gerist æ oftar hjá mér - desverre  ) og sömu sögu er að segja með fiskbollur og fiskbúðing - algerir bjargvættir á mínu heimili

, 30.7.2009 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.