Leita í fréttum mbl.is

Frá Hruni í leigubíla og viskídrykkju

Ástandið í þjóðmálum er að ná mér.

Ég þessi einstaka, frábæra, geðgóða, jafnlynda, fullkomna, yndislega og ljúfa kona, er ekki nema skugginn af sjálfri mér.

Og hvað gera byltingarsinnar þá?

Jú þeir lesa heilu bækurnar um hrunið.

Fyrst tók ég þessa.

Ég var ekki búin að fá nóg, þegar hér var komið sögu og ég hellti mér út í Hrunið eftir hann Guðna.

Bækur um hrunið og aðdraganda þess eru auðvitað skyldulesning, þó ekki væri nema til að reyna að skilja hvernig við Íslendingar gátum misst allt niður um okkur á meðan við dönsuðum um allt algjörlega ómeðvituð um að hið óumflýjanlega væri að gerast.  Að við værum ekki ósnertanleg og ofurklár, komin með leyniformúluna að velgengninni.

Svo bara hrynur allt í hausinn á okkur.

Lygasögunni líkast að lesa um þennan skelfingarkafla Íslandssögunnar sem enn sér ekki fyrir endann á.

En..

Það er ekki hægt að lesa sér til þunglyndis endalaust.

79 af stöðinni

Svo ég skellti mér í gleðibókmenntir.

Í samanburði við hrunabókmenntirnar auðvitað.

Ég var smástelpa þegar 79 af stöðinni var frumsýnd.

Bönnuð "böddnum" nema hvað, ég var óhuggandi.

Þá náði ég mér í bókina á safninu og las.

Skildi lítið í tvíræðum "á milli línanna lýsinga" á sambandi karls og konu.

Karlinn var nýkominn á mölina, sveitalegur, trúgjarn og saklaus.

Konan í kananum, lausgirt, óheiðarleg og viskídrekkandi.

Nú las ég endurútkomna 79 af stöðinni og hafði gaman að.

Einhver sagði að Indriði væri að herma eftir Hemmingway.

Mér finnst bókin hins vegar séríslensk eftirstríðsbók um átök sveitapiltsins við nútímann í sér.

Þessi bók verður seint talin meistaraverk.

Það er svo krúttlegur byrjendabragur á henni, en hún er skemmtileg heimild um fólkið í borginni þar sem smalagenið, hæðir og hólar heimahaganna þvælast endalaust fyrir nútímavæðingunni.

Lesið, lesið, lesið.

Kreppan líður fljótar.

Það geri ég.

 


mbl.is Einblíni meira á niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Myndin 79 af stöðinni finnst mér bara nokkuð góð miðað við aldur, en vissulega vantaði höfundinum mikið upp á að verða Hemmingway Íslands, þar höfðum við meistara Haldór Laxnes. Jólabókin í ár gæti verið skrifuð af fólki búsettu í Bretlandi. Gæti t.d. heitið ,, Hvernig við prettuðum og svikum íslendinga " undirtitill ,, og komumst ekki upp með það " með kærri kveðju frá Hannesi og Unni.    

Stefán (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 14:07

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég man hvað ég grét yfir þessari mynd, þau voru flott Gunnar Eyjólfs og Ellý.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.6.2009 kl. 14:53

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég er að lesa bók sem heitir Ofvirkni sem vinkona mín lánaði mér.  Það er ótrúlega góð lesning, og þar sem stubburinn er í greiningu hjá BUGL þörf lesning hjá mér.  Annars höfðar Agata Christie og slíkir höfundar meira til mín en nokkuð annað meðan ég hef ekki tíma til að vera til.  Knús á þig Jenný mín elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2009 kl. 15:11

4 Smámynd: Dúa

Ég er að lesa Biblíuna

Dúa, 24.6.2009 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband