Leita í fréttum mbl.is

Fréttaskýring Jennýjar Önnu um íhaldið í Kópavogi

0a_the_power_of_stupid_people 

"Þetta jaðrar við brjálæði",  sagði Gunnar I. Birgisson um aðför fjölmiðla, endurskoðendafyrirtækja, Kópavogsbúa og almennings alls á hendur sér.

Gunnar I. Birgisson, sem er algjörlega saklaus af öllum sköpuðum hlutum, en ætlar að hætta að verða bæjarstjóri og gerast óbreyttur bæjarfulltrúi í næstu viku, mun láta gera úttekt á vinnubrögðum Samfylkingarinnar í bæjarstjórn hið bráðasta.

Ástæður þess eru málefnalegar offkors enda engin mannanna verk yfir gagnrýni hafin, eins og þessi krúttvöndull sagði réttilega.

Gott að hann tók það fram að rannsóknin á Samfó væri málefnaleg því ég með minn sauruga hugsunarhátt var farin að halda að hann væri í hefndarhug þessi sómamaður.

Sem hann er auðvitað ekki.

Enda maðurinn eins og nýskeindur básúnuengill hjá Gunnari nafna í Krossinum sem talar um að sannleikurinn muni gera Gunnar frjálsan.

Sem er rétt.

Við erum stödd á Íslandi árið 2009 og fyrirkomulagið hjá íhaldinu í Kópavogi (þar sem Gunnar nýtur víðtæks stuðnings, er hreinlega KÓNGUR) færir mér heim sanninn um að það þarf meira en bankahrun til að Sjálfstæðisflokkurinn átti sig, án tillits til hvar hann er staddur svona landfræðilega séð.

Til hamingju Gunnar!

 


mbl.is „Þetta jaðrar við brjálæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

þetta er bara súrrealískt! óútskýranlegt með orðaforða jarðarbúa...

halkatla, 16.6.2009 kl. 15:50

2 Smámynd: Sigurður Sigurðarson

Mikið innilega er ég sammála þér Jenný. Í mínum bókum kallast þetta einkavinavæðing

Sigurður Sigurðarson, 16.6.2009 kl. 16:10

3 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Það er öllum hollt að sjá að enn hefur ekkert breyst hjá Sjálfstæðisflokknum. Burt séð frá mannkostum eða breyskleikum Gunnars Birgissonar þá bregst Sjálfstæðisflokkurinn hér nákvæmlega eins við og vegna ræða Davíðs Oddssonar á landsfundinum, lýðurinn ærist af fögnuði frami fyrir valdinu, valdinu sem þeir vita að er hefnigjarnt tyftunarvald. Enginn þorir að setja sig í skotlínuna, enginn þorir öðru en að klappa og stappa og hrópa húrra frami fyrir þeim sem svo ljóst er að hafa áfram strengi til að toga í og fúsa vendi til að tyfta þá sem dyrfast.... Nákvæmleg eins og flokksmenn valdaflokksins í alræðisríkjum hvort sem þau hefa kennt sig við kommúnista eða fasista.

Helgi Jóhann Hauksson, 16.6.2009 kl. 16:13

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sorglegt, sorglegra og sorglegast.......og ætlar engan endi að taka!!!

Táraflóð.......

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.6.2009 kl. 17:04

5 identicon

"Fréttaskýring Jennýjar Önnu". Það er nú meiri hátíðheitin. Þetta var ekki meiri "Fréttaskýring" en önnur blogg frá meðalgreindu fólki hérna á moggablogginu :) Góð mynd þarna fyrir neðan fyrirsögnina samt.

Kári (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 17:50

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kári: Ég var að grínast, halló!  Fréttaskýring minn afturendi.  Garg.

Takk öll fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2009 kl. 18:04

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þessi lögfræðiskrifstofa Lex er þetta ekki íhaldsbæli, sem m.a. hefur verið til ráðgjafar í kosningum og gaf grænt ljós á kosningasvik í þarsíðustu kosningum.  Ætti ekki að rannsaka eitthvað þar innanborðs.  Það skyldi þó ekki vera að þar leyndist eitthvað óhreint mjöl og drasl.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.6.2009 kl. 23:35

8 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Ég heyrði óminn af kvöldfréttunum á Stöð 2 þar sem íbúar í Kópavogi kepptust við að bera lof á Gunnar fyrir allt sem hann hefði gert fyrir bæinn. Enginn var spurður að því hvað honum fyndist um að Gunnar væri að dæla peningum bæjarins í dóttur sína, því miður, það hefði verið áhugavert að heyra þessa sömu íbúa svara því.

Margrét Birna Auðunsdóttir, 17.6.2009 kl. 00:40

9 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Jenný Anna, þú ert óborganleg, já og Kári líka!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 17.6.2009 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband