Leita í fréttum mbl.is

Spegill - spegill

Spegillin sem náði yfir heilan vegg á skrifstofu Landsbankastjórans Sigurjóns Þ. Árnasonar, var reyklitaður og til þess fallinn að fegra þann sem skoðaði sig í honum með gagnrýnum augum.

Undraglerið var þeim töframætti gætt að það máði út áhyggjuhrukkur, mildaði munngeiflur og skerpti augnsvip þeirra sem spegluðu sig í honum.

Hann máði út leifar af gull- og svínakjötsáti svo tíðindum sætti um leið og hann sneið hjólbörufarma af aukakílóum þar sem þau voru að þvælast fyrir viðkomandi.

Á skrifstofunni fóru reglulega fram samtöl milli Sigurjóns og spegilsins eftir að hann hafði laugað augu sín ediki, klínt svertu á augnhárin og plokkað nefhárin vandlega.

Sigurjón horfðist þá snöfurmannlega og óhræddur í augu við spegilmynd sína.

Hann dáðist löngum stundum að því sem hann sá.

Hvernig hafði hann orðið svona guðum líkur í útliti?

Þessi maður geislaði af því valdi sem honum hafði verið falið.  Hann var leiðtogi.  Hann myndi enda á Bessastöðum að lágmarki.

Það var á einu svona spegilmómenti sem Sigurjón og Sigurjón spegill lánuðu sér fjörtíumillur með málamyndavöxtum.

Lögmaður félaganna Sigurður G. Guðjónsson, sem einnig hafði fengið sín móment í speglinum góða í skjóli nætur á skrifstofunni, sagði þeim að þetta yrði skráð sem misskilningur í bókhaldið.

Svo fór lögmaðurinn heim og skrifað harða gagnrýni á Evu Joly (líka í skjóli nætur eins og alkunna er orðið), og benti á að hún væri ekki djollí gúdd felló.

Sem er óneitanlega rétt hjá Sigga Gé.

Ég er algjörlega sammála Grjóna, Sigga og Spegilgrjóna.

Að gjalda varhug við Evu.

Svona kjéddlingarlufsur gera ekkert annað en skekkja (spegil)myndina.


mbl.is Sigurjón lánaði sjálfum sér fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góð að vanda

Sigrún Jónsdóttir, 14.6.2009 kl. 11:59

2 identicon

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 14.6.2009 kl. 12:01

3 identicon

Þarf að taka Sigurjón  með mér í átak því við erum  orðnir of digrir.Vildi  samt að eigna staða mín væri jafn digur.

Hörður (IP-tala skráð) 14.6.2009 kl. 12:05

4 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Jenný, þú ert svo mikið krútt að stundum langar mig að kreista þig arna!

Snilldarfærsla.

Kveðja af grandanum.

Einar Örn Einarsson, 14.6.2009 kl. 12:13

5 identicon

Snilld :-)  Þú hlýtur að hafa reynt fyrir þér á ritvellinum.  Alla vega ættir að gera það.

ASE (IP-tala skráð) 14.6.2009 kl. 12:20

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Þetta er með betri pistlum sem þú hefur látið frá Jenný :)

Óskar Þorkelsson, 14.6.2009 kl. 12:34

7 Smámynd: Ólöf de Bont

Góð færsla og frábær myndlíking. 

Ólöf de Bont, 14.6.2009 kl. 13:52

8 Smámynd: Ragnheiður

þessi fer í topp tíu hjá þér kjéddlíng...alveg sjúr á því sko

Ragnheiður , 14.6.2009 kl. 14:46

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Klárlega tía!!!

Heiða Þórðar, 14.6.2009 kl. 15:07

10 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

er hann ekki laus við velferðarspikið? var það ekki bara 2007 dæmi, sem hvarf við hrunið?

Brjánn Guðjónsson, 14.6.2009 kl. 15:19

11 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Pennafimi par excellence!

Jenný Stefanía Jensdóttir, 14.6.2009 kl. 15:26

12 identicon

Góð að vanda

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.6.2009 kl. 15:32

13 Smámynd: Eygló

Við lestur slíks pistils undrast ég ekki að þú sért (einn) mest lesni bloggari. Ausgezeignet.

Eygló, 14.6.2009 kl. 16:25

14 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þú ert sillingur Jenný Anna,  alveg geggjaður pistill!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2009 kl. 18:58

15 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þú ert snillingur Jenný Anna, alveg geggjaður pistill !

Þetta átti að standa í athugasemdinni hér fyrir ofan. Snillingurinn þínn!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2009 kl. 19:00

16 identicon

Tær snilld. Frábært.

Tryggvi Marteinsson (IP-tala skráð) 14.6.2009 kl. 19:29

17 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú færð tvær tíur fyrir þennan pistil 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.6.2009 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband