Leita í fréttum mbl.is

Jösses á galeiðu

Er það ekki merkilegt að Valtýr Sigurðsson skuli setja eiginn hag fram fyrir heildarhagsmuni heillar þjóðar?

Þegar bankahrunið verður gert upp fyrir dómsstólum má ekki leika nokkur vafi á því að ríkissaksónari sé hæfur.

Þetta er ekki spurning um persónu Valtýs, ónei, það er farið fram á þetta til að koma í veg fyrir þann möguleika að persónur og leikendur í hruninu sleppi ekki vegna mögulegs vanhæfis hans.

Ég skil ekki þetta séríslenska fyrirbrigði.

Að sitja sig bláan í framan.

Að hlekkja sig við skrifborðið.

Að láta draga sig út með valdi.

Þá er ég að vísa í suma bankastjóra.

Jösses á galeiðu.


mbl.is Ríkissaksóknarinn hyggst ekki víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Með því að neita að segja af sér, er Valtýr klárlega að tefja fyrir og eða að draga úr trúverðugleika rannsóknarinnar.

Valtýr verður einfaldlega að taka tillit til kröfu Evu, og ekki síður kröfu almennings.

hilmar jónsson, 12.6.2009 kl. 10:37

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Maðurinn telur sig bara ekki vanhæfan,því hann hyggst væntanlega ekki koma nálægt neinu er snertir son hans.Svo er ekkert sem segir, að sonurinn tengist einhverju misjöfnu eða umsýsla sem hann hefur komið nálægt.

Svo er það frá karllægu sjónarmiði að minnsta kosti, ekki auðvelt fyrir mannin að láta einvherja norska kellu, hversu merkileg hún annars telst, svipta mann að ósekju góðu og "feitu" starfi!

Eitthvað í þessa veru hugsar VS kansnki með sjálfum sér og er ekki skemmt!?

Magnús Geir Guðmundsson, 12.6.2009 kl. 10:42

3 identicon

Mér þætti merkilegra ef hann einn tæki uppá því að setja þjóðarhag fram yfir sína einkahagsmuni. Það virðist ekki hvarfla að nokkrum manni hér á Íslandi að líta svo á að þeir séu í þjónustu þjóðarinnar og að þeim beri að láta heildarhagsmuni ganga fyrir.  Ég hreinlega legg til að sá fyrsti sem gerir það verði sæmdur æðstu orðu landsins og hljóti nafnbótina þjóðhetja, honum/henni verði reist vegleg stytta og skrifuð vönduð bók sem tíundar öll afrek viðkomandi.

Dagný (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 12:44

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Valtýr hlýtur að segja af sér annað er ekki hægt.   Hann hlýtur að hugsa um þjóð sína. -   Og það hlýtur Baldur Guðlaugsson  líka að gera, þó að hann neiti því núna?   

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.6.2009 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband