Leita í fréttum mbl.is

Ekki segja af þér Gunnar minn

Gunnar Birgisson ætlar að taka Sjálfstæðisflokksaðferðina á viðbrögðin við svörtu skýrslu endurskoðendafyrirtækisins Deloitte.

Hann ætlar sko ekki að segja af sér.

Enda ekkert gert.

Þeir í bókhaldinu eru bara ekki klárari en þetta.

Gott Gunnar.

Fólk eins og þú viðheldur minni fólks varðandi vinnubrögðin í Sjálfstæðisflokki.

Þar segir maður ekki af sér.

No matter what.


mbl.is Gunnar segir lög ekki brotin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Samfylkingin má bara skammast sín fyrir að vera svona vond við aumingja Gunnar.

Helga Magnúsdóttir, 9.6.2009 kl. 20:04

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Greyið!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 9.6.2009 kl. 20:31

3 identicon

Alltaf að vera góður við afkvæmin, jafnvel þótt þau verði afætur á manni.

j.a. (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 21:11

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Af hverju lætur fólk svona við karlgreyið... skamma hann fyrir að vera góður við dóttur sína...Eigum við ekki að vera góð við börnin okkar ?

Jónína Dúadóttir, 9.6.2009 kl. 21:27

5 identicon

Alltaf sama Samfylkingarkjaftæðið látið Gunnar í friði.

sæi (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 21:47

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Auðvitað á hann ekki að segja af sér!  Því samkvæmt því sem Gunnar í  Krossinum sagði á fundi Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi þá væru þessar aðfarir að Gunnari I. Birgissyni sending frá þeim í "neðra".  Og það ættu allir að muna, að maður ætti fyrst og fremst að hugsa vel um fjölskylduna og þá sem standa manni næst. 

Ég veit ekki hvort Geiri gullfingur tók líka til máls,  það var allavega ekki sýnt sjónvarpinu.  

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 9.6.2009 kl. 21:56

7 Smámynd: Eygló

Ja, hvur andskotinn, - Gunnar í Krossinum?!

Eygló, 9.6.2009 kl. 22:04

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hann er greinilega lagður í einelti hann Gunnar blessunin!! 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.6.2009 kl. 01:12

9 Smámynd: Eygló

Vitfirringarnir þrír frá AusturbænumGunnar bæjarstjóri, Geiri gullputti og Gunnar Krossi?

Eygló, 10.6.2009 kl. 01:31

10 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Hvaða læti eru þetta? Gunnar borgarstjóri er stoð síns samfélags og má gera það sem honum sýnist. Getur hann að því gert þó það séu eintómir bjálfar í bókhaldinu? Hann upplýsti líka að dóttir hans gæti alls ekki lifað á smáaurunum úr sjóði Kópavogsbæjar. Svo klúðraði afmælisnefndin öllu sem hægt var að klúðra. Ef aðför aumingjanna sem hafa ráðist að þessu æruverðuga sómamenni tekst, verður aldrei framar gott að búa í Kópavogi.

Sigurður Sveinsson, 10.6.2009 kl. 06:14

11 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Það datt út úr mér ´hér í gær við húsbandið: ,,Alveg er ég viss um að karlinn á eitthvað líka í Goldfinger"  svo hlóum við bæði, en segir ekki einhvers staðar ,, Oft ratast kjöftugum og sv. videre.

Neip ekki segja af sér, hefur ekki gert neitt rangt.  Hva bara aðein að létta undir með familíunni hver gerir það ekki svona á þessum síðustu og verstu. 

Ía Jóhannsdóttir, 10.6.2009 kl. 08:05

12 identicon

Gunnar Birgisson er ,, bara typiskur " Sjálfstæðisflokksmaður: Siðblindur, siðlaus frekjuhundur, sem líka var í svipuðum málum og hann er í núna varðandi fjölskyldu og ættarfyrirtækið Klæðningu, sem sukkaði með peninga Kópavogsbúa. Dóttir Gunnars og tengdasonur kunna greinilega vel á kallinn og láta taumlausa græðgi ráða för.

Stefán (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 08:34

13 Smámynd: Valur Kristinsson

No matter what happens Jenny Anna.

Valur Kristinsson, 10.6.2009 kl. 10:21

14 Smámynd: Garún

Hann er staðfastur þessi álfur í kópavogi.  Ég hef sagt það áður og segi það núna again!  Ég skil ekki politík!!!!!!!   Ég væri svo svakalega rekin fyrir þetta að það hálfa væri nóg.  En svo virðist vera sem að fólk sem starfar í politík sé á vernduðum vinnustað, þar sem siðleysi eða lack of it er þjálfað uppí heimsstandard.  Ég skil ekki neitt og er bara farin útí garð að moka holu.  Ég skil holur! 

Garún, 10.6.2009 kl. 11:03

15 Smámynd: Laufey B Waage

Líst vel á að kallinn sitji sem fastast. Til þess eru vítin að varast þau. Sumir þurfa alltaf að láta minna sig á.

Laufey B Waage, 10.6.2009 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 2985732

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.