Leita í fréttum mbl.is

Hverjir eru landráðamennirnir?

Ég er bandbrímandibrjáluð út af Icesave málinu, eins og vel flestir, að ég hygg.

En Egill Helgason hefur til síns máls og það allnokkuð á blogginu sínu um Icesave.

Við getum einfaldlega ekki neitað að borga nema með þeim afleiðingum að verða ein og vinalaus.

Salvör Gissurardóttir kallar Steingrím J. landráðamann.

Væntanlega fyrir að reyna að semja okkur út úr þessu messi.

Vá, sú er ekki að skafa utan af því.

Það var svona fyrirkomulag í gangi þegar böðullinn hengdi bakarann í stað smiðsins.

Það var þetta sem byssumaðurinn flaskaði á þegar hann skaut vesalings sendiboðann.

Ég myndi aldrei kalla hina eiginlegu sökudólga landráðamenn, eins og t.d. Davíð Oddsson, Geir Haarde og Valgerði Sverrisdóttur, sem var bankamálaráðherra þegar bankarnir voru afhentir um árið og leikurinn með fjöreggið hófst.

Ég kalla þau ekki landráðamenn þó þau séu það sennilega og fleiri með þeim.Devil

Það er af því að ég er svo vel upp alin.Halo

Aular.

Þessi færsla fer í flokkinn "Landsbankadeildin", er hún ekki fyrir það annars?

 

Hvarflar ekki að kjafti hér að kalla spillingarhyskið sem hefur gert okkur gjaldþrota og skemmtir sér nú á snekkjum heimsins, bölvaða Quistlinga?

Ha?


mbl.is Icesave-samningur gerður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Frímann: Hjartanlega sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.6.2009 kl. 17:41

2 Smámynd: Sævar Helgason

Í raun og veru eiga þessir tveir flokkar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur að leggja sig niður. Skömm þeirra varir meðan land byggist.

Þeir eru búnir að rústa efnahag Íslands til áratuga.  Ekki kalla ég neinn landráðamann.

Þessir menn vissu ekki hvað þeir voru að gera . Þeir eru miklu frekar fávitar.

Sá sem fremstur fór og skipaði sjálfan sig Seðlabankastjóra var talinn afar fávís meðal kollega sinna í hinum upplýsta fjármálaheimi. því fór sem fór... en við borgum.

Sævar Helgason, 6.6.2009 kl. 17:55

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, það veina ýmsir núna og segja að annað verði að gera en nú er gert, held þeir viti, eða vilji ekki vita hvað þarf að gera. Auðvitað varð að taka á þessu máli ekki seinna en í gær. Kær kveðja til þín Jenný mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.6.2009 kl. 18:34

4 identicon

Nú, þegar skeina þarf manninum sem skipaði sig seðlabankastjóra, grenjar hann mest.

sr (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 19:16

5 Smámynd: Einar Indriðason

Jenný... til að gleðja þig, jú, ég nefndi Quislinga hjá Láru Hönnu.....

Einar Indriðason, 6.6.2009 kl. 19:27

6 identicon

Ég er sammála þér Jenny og ykkur hinum um hverjum það er að kenna að Íslendingar eru komnir í þessa stöðu og að þeir eigi að hafa hægt um sig þ.e. hreinlega að skammast sín!

En ég vona svo sannarlega að ríkisstjórnin hafi athugað alla möguleika áður en skrifað var undir þetta samkomulag.

650 milljarðar eru eingir smápeningar. Mér reiknast til að það séu yfir tvær milljónir á hvert einasta mannsbarn.

Ég veit ekki hvað alþjóðalög segja, hvort það sé hægt að gera skattborgara lands ábyrga fyrir þeim skuldum sem einkafyrirtæki hafa stofnað til.

Og á ekki eftir að koma meira? Er ekki sagt að skuldir útrásarvíkinganna séu samanlagt 11 sinnum þjóðarframleiðslan?

Þjóðarframleiðsla Íslands las ég að hefði verið 1000 milljarðar króna árið 2006.

Ef það er rétt þá skuldar hver einasti Íslendingur 35 milljónir!

Ég er hræddur um að ég yrði æði skjálfhentur ef ég ætti að skrifa undir 11 þúsund milljarða skuldaviðurkenningu fyrir hönd þjóðarinnar...

Jón Bragi Sigurdsson (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 19:31

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Svar við fyrirsögn: Sjálfstæðisflokkur og og Framsókn þar með taldir allir Bjöggar þessa lands

Finnur Bárðarson, 6.6.2009 kl. 19:44

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég er reyndar öskuill, það eru allir búnir að svíkjast undan merkjum og ég er hætt að trúa.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.6.2009 kl. 21:07

9 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Það er full ástæða til að vera reiður - ekkert okkar bað um að vera í þessum sporum. Sjálf er ég fjúkandi reið innra með mér. En gleymum ekki hverjir komu okkur í þessi spor.

Ég er hinsvegar algjörlega ósammála þeim sem bölva Ice-save samningnum. Algjörlega. Og það hefur ekkert að gera með þann eðliseiginleika minn að synda móti straumnum. Nei - nú er það bara heilbrigð skynsemi og raunhæft mat.

http://olinathorv.blog.is/blog/olinathorv/entry/891723/

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 6.6.2009 kl. 22:00

10 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Bæði þú Jenný og Egill talið eins og það sé gefinn hlutur að við getum borgað þetta lán.Því miður eru það aðeins fullyrðingar.Hvað skeður ef við getum ekki borgað.Þáverðum við væntanlega að taka annað lán eða selja þær auðlindir og fyrirtæki sem íslenska ríkið á eins og til að mynda Landsvirkjun aðgang að fiskimiðum, orkunýtingarréttog allt sem hægt verður að verðleggja.Það er ekkert annað en óskhyggja að við getum borgað, jafnvel þótt þjóðin þræli á hungurmörkum.Þetta eru landráð.Það er eins og þetta draumórafólk sem stjórnar landinu hefi ekki áttað sig á því að þaðvoru erlend lán sem settu landið á hausinn.Þetta er hryllingur.

Sigurgeir Jónsson, 6.6.2009 kl. 22:15

11 identicon

Komið þið sæl !

Jón Frímann ! Glæpaverk; Sjálfstæðis- og Framsóknarflokka, réttlæta ekkert, hlutdeild Samfylkingarinnar, í óhæfuverkum, gagnvart landi okkar - fólki og fénaði.

Fordæðan; Jóhanna Sigurðardóttir, er að kalla hörmungar miklar, yfir okkur, og skal þess hefnt grimmilega - fari allt hér á versta veg.

Ég sá; á eftir 2 (á 30 tugs aldri) frændfjölskyldum mínum, hverfa af landi brott, sökum óhæfuverka hvítflibbahyskisins, Jón Frímann, í líðandi viku.

Hvað; skyldi þú kunna, til, að endurkoma þessa fólks - auk fjölda annarra, mætti skapleg verða, á komandi misserum ?

Á 6. áratug síðustu aldar; gafst þó yngra fólki kostur á, með Nýbýla stefnunni, að hefja búskap, í sveit - líka sem, að smábáta útgerð jókst, víðs vegar um land !!!!!

Hvar; sjást slík úrræði bjóðast, í dag ?

Ætli; Jón Bjarnason; þurfi ekki, að spyrja skriffinna sína nokkurs, áður en tekið yrði, til slíkra SKYNSAMLEGRA kosta ?

Með; andskoti snubbóttum kvaðjum - hinum beztu þó, til Jennýar Önnu /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 22:42

12 identicon

Fólk verður að fara að vakna upp, það hefur sjaldan verið jafn lífsnauðsynlegt og einmitt nú. Og þetta er alls engin hystería. Það er augljóst að Bretar og ESB löndin vilja láta okkur borga svona háa upphæð eingönu til þess að þeir geti hirt auðlindir okkar þegar það kemur í ljós sem mun gera að við getum ekki staðið við undirritaðan samning.
Það er algjört glapræði að loka augunum fyrir því augljósa.
Og það er vitað mál að þegar auðlindirnar fara í hendurnar á erlendum auðhringjum þá fer ekki bara allt fjármagn úr landi heldur öll framleiðsla líka. Svona hefur verið gert í öllum þeim löndum sem IMF hefur komið nálægt. Við megum EKKI láta þetta gerast. Við bara megum það ekki. !!!

Björg F (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 00:34

13 Smámynd: hilmar  jónsson

Sævar H, orðar þetta afskaplega vel. Litlu við það að bæta.

hilmar jónsson, 7.6.2009 kl. 01:30

14 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er orðlaus, eina sem ég get sagt er:  Hvernig dettur fólki í hug að ráðast svona heiftarlega á Jóhönnu og Steingrím, þegar þau eru að hamast við að vinna vinnuna sína sem að þau voru kosin til,  og bjarga því sem bjargað verður. 

   Hverslags heift er þetta t.d. í bloggaranum Salvöru, að kalla Steingrím J. landráðamann,  hún ætti nú að vita betur.  Ef svo væri ekki mundi ég segja svona skrif stafa af fáfræði eða heimsku.

 Ekki voru það þau Jóhanna og Steingrímur sem komu okkur í þennan vanda sem Ísland er í, í dag!!!

Ónei, það voru aðgerðir ríkisstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðismanna í ofsatrú á framtaki frjálshyggjunnar,  sem komu landinu okkar á hausinn, og gerðu Seðlabankann gjaldþrota.   Svo og Seðlabankastjórinn fyrrverandi.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 7.6.2009 kl. 02:11

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ísland var mergsogið og það var ekki óviljaverk. Þvert á móti var um þrautskipulagða  áætlun að ræða. Útrásarvíkingarnir (5. valdið) keyptu öll völd í landinu. Fjölmiðlarnir kostuðu sitt en stjórnmálamennirnir hvort sem þeir voru í ríkisstjórn eða borgarstjórn kostuðu miklu minna.

Maðurinn sem keypti Moggann og bogaði prófkjörsbaráttu borgarstjórnans "frænku sinnar", sem nú er þingmaður, fékk allt sem hann vildi í borginni. Um mitt ár 2008 drógu ráðherrar Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks heldur ekki af sér að hlaða lofi á bankana. 

Ketill marskálkur skrifaði undir uppgjafasamningana við Breta og segist hafa unnið varnarsigur.   Kampavín?  Nei takk sama og þegið.

Sigurður Þórðarson, 7.6.2009 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband