Leita í fréttum mbl.is

Ekkert flagg í Viðey

oregrund 

Íbúar Öregrund eru komnir á svartan lista hjá mér.

Eða væru, ef ég væri með einn slíkan.

Fánastangir kosta peninga finnst Öregrundaríbúunum.

Okei, þeir um það að sleppa íslenska flagginu af sparnaðarástæðum.

Öregrund er hola þar sem skráðir voru 1.552 íbúi árið 2005. 

Ég er með hugmynd.

Auga fyrir auga og allur sá pakki.

Við hættum að flagga sænska í Viðey þar til þeir hafa kippt þessu í liðinn.

Nú, er ekki flaggað sænskum í Viðey?

Skít sama, þeir í Öregrund vita ekki afturenda um það, bara senda þeim póst og tilkynna um flaggrefsinguna.

Ni är ute.  Heja, heja.

P.s. Uss, ekki segja, en mér gæti ekki staðið meira á sama hvort þeir flagga íslenska fánanum eða ekki.


mbl.is Slepptu íslenska fánanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehe ekki mér heldur! Hef heldur ekki hugmynd um hvort ég ætti, í hefndarskyni að sleppa að flagga norska, sænska eða danska fánanum. Til öryggis ákvað ég að hætta alfarið að flagga

Hrönn Sigurðardóttir, 29.5.2009 kl. 14:46

2 identicon

Það búa þarna varla þúsund manns yfir vetrartímann...mikil ekkifrétt..

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 15:10

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Gátu þeir ekki dröslað upp sjóræningjafána með hauskúpu ?

Finnur Bárðarson, 29.5.2009 kl. 15:19

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þeir hafa náttúrulega séð Draumalandið,  þar sem "Fánar" eru teknir niður og Alcoa fánar dregnir að hún í staðinn.

Sumir hafa móðgast meira en góðu hófi gegnir!  Ég meina var það ekki einmitt Alcoa sem með byggingu álversins áttu að bjarga Íslandi frá því að svelta heilu hungri, og færa okkur eilíft góðæri.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 29.5.2009 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985712

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband