Leita í fréttum mbl.is

Ótímabær taugaveiklun

Það er rosaleg taugaveiklun í gangi sem gengur út á þann möguleika að menntamálaráðherra ráði Kolbrúnu Halldórsdóttur í starf Þjóðleikhússtjóra.

Eigum við ekki að bíða og sjá.

Það væri skynsamlegt að bíða með samsæriskenningarnar og hamaganginn þar til konan hefur sótt um og í framhaldi af því fengið stöðuna.

Ég gef mér sem kjósandi VG að við ráðningu Þjóðleikhússtjóra verði farið eftir faglegum verklagsreglum og sá umsækjandi sem hæfastur er verði ráðinn en ekki sá sem er með flokksskírteini upp á vasann.

Auðvitað á fólk heldur ekki að gjalda fyrir að vera í pólitík en ég held að það séu afskaplega margir hæfir einstaklingar sem muni sækja um þessa stöðu.

Okkur hefur verið lofað gegnsæi í vinnubrögðum á Nýja Íslandi.  Okkur hefur jafnframt verið lofað að tími kunningja- og flokkssystkinareddinga heyri til fortíðar.

Að pólitískum ráðningum verði sagt stríð á hendur.

Þess vegna hef ég ekki minnstu áhyggjur af þessu máli.

Ég trúi því einfaldlega þar til annað kemur í ljós að mitt fólk standi við stóru orðin.

Þess vegna kaus ég þá.

Og slakið þið síðan á elskurnar mínar.


mbl.is Kolbrún í Þjóðleikhúsið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er alveg slök  Treysti Katrínu fullkomlega

Sigrún Jónsdóttir, 11.5.2009 kl. 13:55

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Viðbrögðin við þessari "ekkifrétt" hlýtur að ráðast af því hvað framtíð menn óska Þjóðleikhúsinu.

Margt bendir til að það sem Kolbrún snertir eigi sér ekki líf. A.m.k. ef marka má "Líf" fyrir austan sem dó úr skelfingu eftir handaryfirlagningu Kolbrúnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.5.2009 kl. 14:07

3 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ég held að það dytti engum í hug að Katrín eða önnur úr forustu VG væru hæf til að meta Kollu. Þetta verður því nokkur prufa á hvort hægt sé að skapa hér ráðningarferli sem er gegnsætt og faglegt.

Héðinn Björnsson, 11.5.2009 kl. 14:33

4 Smámynd: Garún

Ég var svo taugaveikluð í morgun að ég réð Óskar nágranna minn í stöðu þjóðleikhússtjóra...Svo sorry, staðan er upptekin. 

Afsakið hvað ég er oft kjánaleg í svörum sambandi við pólitík, en málið er eins og Jenný bendir á, er að þetta er allt svo mikið drama, taugaveiklun, og svo mikið bull.  Og ein spurning hérna, er það eftirsótt starf að vera þjóðleikhússtjóri?  Ég bara spyr.  Hvaða hvaða. 

Garún, 11.5.2009 kl. 16:09

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég hugsa í ljósi undangenginnar umræðu að hún verði látin gjalda þess en ekki njóta að vera flokksbundin VG. Öll stóru orðin um einkavinavæðinguna og allt það gætu jafnvel orðið til þess að einhver sem er síður hæfur hljóti hnossið.

Helga Magnúsdóttir, 11.5.2009 kl. 16:14

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég leyfi mér að benda á lög um Þjóðleikhús sem segir að : Þjóðleikhússtjóri skuli ráðin til 5 ára, og þá skuli staðan auglýst. En kjósi sitjandi Þjóðleikhússtjóri að gegna embættinu í 5 ár í viðbót, þá gangi það eftir sjálfkrafa.

Þetta er nú ekki orðrétt úr lögum um Þjóðleikhús en eitthvað á þessa leið. Svo ef Frú Tinna Þórdís Gunnlaugsdóttir kýs að starfa áfram sem Þjóðleikhússtjóri þá er staðan hennar. 

Svo nú geta allir slakað á,  a. m. k. þar til ljóst er hver ákvörðun Tinnu verður.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.5.2009 kl. 16:54

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

En þetta var hreint alveg ótrúleg frétt, á rúv í kvölfréttatíma  í gær, þar sem fréttamaður gaf beinlínis í skyn að Kolbrún hefði verið ráðin sem Þjóðleikhússtjóri og því væri hún ekkert leið yfir að hætta þingmennsku.

   Þetta var afskaplega óviðeigandi þar sem engin veit hver ákvörðun Tinnu verður.  En það er eins og einhver hafi þarna viljað gera Kolbrúnu grikk.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.5.2009 kl. 17:00

8 Smámynd: Ragnheiður

Einhversstaðar las ég í dag að Tinna sækir um og ætlar að halda áfram, þannig að málið er þá leyst

Var fólk í alvöru að fara á límingunum yfir þessu?

Ragnheiður , 11.5.2009 kl. 17:17

9 identicon

Heyrði ekki fréttina sem Lilja Guðrún vísar til en sé þetta rétt að fréttamaður hafi gefið í skyn að Kolbrún væri svo gott sem búin að fá stöðuna þá er það enn eitt dæmið um það vanhæfa fólk sem vinnur þar.

Það þarf að hreinsa til víðar en í stjórn- og bankakerfi. 

Fjölmiðlunum líka. Það er nóg af hæfu fólki sem gæti tekið að sér að miðla fréttum en ekki búa þær til.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 18:05

10 identicon

Lilja Guðrún.

Það er lágmark að taka 2-3 sekúndur í að kanna heimildir áður en þú fullyrðir svona út í loftið. Það er ekkert í lögum um það að sitjandi þjóðleikhússtjóri hafi einhvern einkarétt á stöðunni:

"6. gr. Menntamálaráðherra skipar þjóðleikhússtjóra til fimm ára í senn, að fenginni umsögn þjóðleikhúsráðs. Skipaður skal maður með menntun á sviði lista og staðgóða þekkingu á starfi leikhúsa. Ætíð skal auglýsa embættið laust til umsóknar í lok hvers skipunartímabils.
Þjóðleikhússtjóri er stjórnandi leikhússins og markar listræna stefnu þess í samráði við þjóðleikhúsráð. Hann stýrir leikhúsinu samkvæmt samþykktri starfs- og fjárhagsáætlun og ber ábyrgð á rekstri þess, bæði listrænum og fjárhagslegum."

Gunnhildur (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 18:28

11 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég vona bara að Tinna verði ekki ráðin áfram!!

.....vona reyndar líka að Kolbrún fái ekki starfið. Væri bara einfaldlega of vafasamt miðað við aðstæður. Í þessu tilfelli finnst mér betra að hún líði fyrir að hafa verið ráðherra en græði á því

Heiða B. Heiðars, 11.5.2009 kl. 19:36

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Treystum orðum þeim sem sögð hafa verið.
Kveðja
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.5.2009 kl. 19:46

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir umræðurnar.

Það er faktískt þannig að staða Þjóðleikhússtjóra hefur verið auglýst.

Ég hallast á að Heiða hafi rétt fyrir sér, Kolbrún getur eiginlega ekki fengið þessa vinnu (EF hún sækir um hana) þó hún reynist hæfasti einstaklingurinn.  Þjóðfélagið er þannig stemmt eftir allt sem á undan er gengið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.5.2009 kl. 21:28

14 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Afsakaðu Jenný Anna, en ég verð að svara nefndri Gunnhildi, sem ásakar mig um að fara ekki rétt með, hér ofar á síðunni.  -

   Ég hélt að ég hefði tekið það skýrt fram að þetta væri ekki orðrétt upp úr lögum um Þjóðleikhús þar sem ég hafði þau ekki við hendina. 

    En ef Gunnhildur hefði lesið bara í 2 - 3 sekúndur í viðbót, hefði hún komið að þeirri málsgrein þar sem ég segi,  að þetta sé ekki orðrétt haft upp úr áðurnefndum lögum.  - Hafi ég farið vitlaust með þá biðst ég afsökunar á því, en svona túlkaði fyrrum menntamálaráðherra Björn Bjarnason lögin sem hann setti sjálfur á sínum tíma. Það hef ég hér í minnisbókinni minni. Með vinsemd og virðingu., Lilja Guðrún

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.5.2009 kl. 21:58

15 identicon

Lilja Guðrún.

Ég er ekki að "ásaka" þig um að fara ekki rétt með, ég er að benda á að þú hafir gert það og birta heimild þess til sönnunar.

Það er rétt að þú tókst það fram að þetta væri ekki orðrétt, en þú gleymdir að segja frá því að þetta væri líka efnislega kolrangt.

Ef þú getur kommentað á bloggsíður þá þarftu ekki að hafa lög um Þjóðleikhús "við hendina", þú getur einfaldlega flett þeim upp á netinu.

Gunnhildur (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.