Leita í fréttum mbl.is

Betra að vera auðtrúa en lyginn

Ég sá á einhverjum miðli að verið var að gera grín að Mogganum fyrir trúgirni vegna fölsku fréttarinnar um ísbjörninn.

Blekkingin sem Mogginn var beittur er rakin í viðtengdri frétt.

Ég er kannski skrýtin en mér finnst alltaf krúttlegt þegar fólk er auðtrúa.

Það segir mér að að viðkomandi trúir enn á manneskjuna, hið góða í henni.

Reyndar var ítrekað gengið eftir sannleiksgildi ísbjarnarfréttarinnar.

En burtséð frá þessu þá eru þetta fullorðnir menn sem voru svona sniðugir, Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður á Akureyri og Páll L. Sigurjónsson, hótelstjóri á Hótel KEA voru hvatamenn að blekkingunum. Þeir og hinir Oddfellowgæjarnir á Akureyri.  Halló, ég hef alltaf haft illan bifur á svona karlaklúbbum.

Fullorðnir menn á djamminu að gera at er ekkert fyndið að mínu mati, bara kjánalegt.

Frekar dómgreindar- og ábyrgðarlaust.

Þetta er svona kalla-gufubaðs-klóra sér í pungnum- hlæja stórkarlalega-ropa og drekka ákavíti í botn án þess að blikna-fara í sjómann-kjéddlingarnar eru fífl- húmor.

Missir að minnsta kosti marks hjá mér.

Vonandi eru þeir með dúndrandi móral og megi hann endast þeim í nokkra daga mér að meinalausu.


mbl.is Ísbjörninn blekking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

he he karlmenn eru kjánalegir í augum allra kvenna hvort sem er.. mér fannst þetta drepfyndið !

Óskar Þorkelsson, 9.5.2009 kl. 18:45

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Mér líka.

Víðir Benediktsson, 9.5.2009 kl. 18:49

3 Smámynd: Sjóveikur

mér fynnst alltaf sorglegt þegar konur eru ekki ánægðar (fullnægðar)

www.icelandicfury.com  hneegggg,hneggggg,hnegggggg

það jafnast ekkert á við hressa gaura sem eru svona kalla-gufubaðs-klóra sér í pungnum- hlæja stórkarlalega-ropa og drekka ákavíti í botn án þess að blikna-fara í sjómann-- húmor.

Hressandi Byltingar Kveðjur, sjoveikur

Sjóveikur, 9.5.2009 kl. 20:38

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef ég þekki þessa vini mína rétt er engin hætta á að þeir fái móral.

Víðir Benediktsson, 9.5.2009 kl. 21:10

5 Smámynd: HP Foss

Þeir eru kjánalegir í mínum augum. Fiflalegir.

HP Foss, 9.5.2009 kl. 22:56

6 identicon

mjög fyndið grín hjá þessum mönnum þarna fyrir norðan, en samt dapurt ef menn hafa ekki húmor fyrir þessu.  Það vill nú bara þannig til að það er til svo mikið af fólki sem er gjösamlega laust við allan húmor. Kveðja Stebbi.

stebbi (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband