Leita í fréttum mbl.is

Þolandi eða gerandi?

Gott Össur, kallaðu sendiherrann á þinn fund og lestu yfir breska andskotans fyrrverandi heimsveldinu.

Ég er algjörlega gáttuð á Gordoni Brúna sem gengur um ljúgandi eins og enginn sé morgundagurinn.

Ég gef mér að minnsta kosti að hann sé að skrökva sig bláan í framan.

Látum karlinn svara til saka.

Aðeins ein (eða tvær) spurning í lokinn kæri Gordon (Össur þú spyrð hennar fyrir mig)?

Vaknaðir þú upp einn morguninn í október og hugsaðir meðan þú starðir á fésið á þér í speglinum:

"Þetta er tíminn til að taka litla Ísland í afturendann?"

Eða eigum við þetta skilið vegna gjörða sukkbarónanna?

Á ég að vera þolandi eða gerandi.  Plís, gera mér það ljóst.

Ég engist hérna.


mbl.is Boðar sendiherra á sinn fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Vona að þú fáir svar sem fyrst !  Svo maður geti farið að taka afstöðu, til þessara furðulegu ummmæla Hr. Brúns. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.5.2009 kl. 13:07

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Úbbs!!!, var bara að bæta upp "emmin" sem vantaði hjá þér um daginn, ég skellti þeim þarna í ummælin hjá Brúna herranum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.5.2009 kl. 13:09

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jenný við eru gerendur eða öllu heldur bankastjórar Landsbankans og stjórnvöld. Þetta lið kom IceSafe ruglinu á koppinn. Skil vel að Bretum sé ekki skemmt.

Finnur Bárðarson, 8.5.2009 kl. 15:50

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Það er nokkuð á hreinu að þolendur eru íslenskur almenningur -og breskur, að hluta a.m.k.

Gerendur eru íslensk útrásarmenni, (vil ekki lengur láta víkingana forfeður okkar, snúa sér við í haugunum af skömm), ásamt þeim stjórnmálaöflum, sem veittu þeim "svigrúmið" til að svindla, stela og blóðmjólka bankana, sem þeir fengu "gefins" í nafni "frelsisins".

Ekkert af þessu veitir Brown heimild til að rugla með staðreyndir á þingi né annars staðar, eins og þeir Darling eru margoft búnir að gera.

Gott hjá Össuri að tala við Gordon með tveimur hrútshornum !

Hildur Helga Sigurðardóttir, 8.5.2009 kl. 16:29

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já og við erum klappstýrurnar, klappstýrur geta ráðið ýmsu með því að fylgjast með og klappa fyrir því sem vel er gert.  Láta vita bæði af því sem gert er vel og illa.  Þannig getum við verið á tánum og haft okkar áhrif.  Það verður að segjast eins og er, að hvað sem má segja um þessa ríkisstjórn þá eru eyrun á henni ekki fullar af ormum af því að hlusta á grasrótina eins og eyrun á Davíð.  Þau kunna ennþá að leggja eyrun að því sem við pöpullinn segir.   Látum þau ekki týna því niður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.5.2009 kl. 16:34

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Búa ekki allir þessir IceSafe gaurar í London. Ættu að vera hæg heimatökin fyrir Breta. Taka allt af þeim og leysa þar með IceSafe sukkið í eitt skipti fyrir öll.

Finnur Bárðarson, 8.5.2009 kl. 17:06

7 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Hef áður lýst þeirri skoðun, að Össur glataði tækifæri lífs síns, á fundinum þarna um daginn, þegar hann var að nudda sér upp við Obama.  Auðvitað átti hann að ganga á Brown, fyrir framan sjónvarpsvélar og með Obama í baksýn!

Betra hefði verið að Jóhanna hefði farið á fundinn, með vísifingurinn og brýrnar og látið dónann heyra það.

Diplómatík er furðuleg tík, en menn verða að fara að sýna klærnar og kjaftinn.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 8.5.2009 kl. 17:12

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ábyggilega ágætt að vera dipló (...þekki það bara ekki).. en svo koma stundir þar sem mörkin á milli þess að vera dipló og eins og barinn hundur eru örfín.

Það móment var æpandi augljóst þegar Össur lét tækifærið til að sýna Brown klærnar renna sér úr greipum

Heiða B. Heiðars, 8.5.2009 kl. 17:30

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, var að blogga um þetta aftur.

Gordon er á heilanum á mér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.5.2009 kl. 17:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.