Leita í fréttum mbl.is

"Jákvæðir fordómar" - Frussssssssss

nafnspjald 

Ég á það til að umgangast mitt ástkæra af töluverðu virðingarleysi þegar þannig liggur á mér.

En halló, ég er ekki blaðamaður á Mogganum!

Sko, hafið þið nokkurn tímann heyrt um andlátstilkynningar þar sem dagar hins látna teljast taldir?

Sóandsó Sóandsóson verður jarðsettur í Sóandsókirkju.  Dagar hans eru taldir.

Gætu alveg eins sagt, talningu á dögum Sóandsó er lokið.  Þeir voru; 34324234 margir.

Frusssssssssssssssss

En..

Ég var að pæla í nafninu mín.  Já mig vantar eitthvað að lesa.

Hef of mikinn tíma.

Ég átti nánast engar nöfnur þegar ég var barn.  Eina og eina bara, þær hétu þá yfirleitt Jensína.

En núna eru breyttir tímar, ég á nöfnur víða.

Og vitið þið hvað?

Ég er með jákvæða fordóma út í nöfnur mínar. (Ég veit að fordómar geta auðvitað ekki verið jákvæðir, en þið vitið hvað ég meina).

Mér finnst að allar Jennýjar hljóti að vera ofsalega klárar og skemmtilegar.

Framúrskarandi manneskjur alla leið.

Hef ekki enn rekist á neina Jennýju sem eyðileggur þessa tálsýn mína.

En hvað segir þetta um mig?

Við skulum ekki ræða það einu sinni.

Mikilmennskubrjálæði hvað?

En hugsið ykkur að heita Sigríður Jónsdóttir og vera með "jákvæða fordóma" gagnvart nöfnum sínum.

Mér segir svo hugur um að það gæti endað illa.

Jájá, bönin mín í fjöllunum.


mbl.is Dagar Lífar taldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég þekki bara eina Jenný á blogginu og hún er gargandi snilld.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 15:43

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þá fer nú fyrst í verra þegar farið verður að jarðsetja fólk, hvers dagar eru EKKI taldir.

Er þetta annars ekki bara enn ein uppdiktuð andlátstilkynningin frá Litla Hrauni ?   Fylgdi  bankareikningsnr. með ?

Þakkaðu svo bara fyrir að eiga ekki -næstum því- alnöfnu framarlega í Framsókn, eins og sumir.

Þá hefðir þú aldrei komist á "heiðurslistann" 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 29.4.2009 kl. 16:00

3 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Og hvernig tengist þess færsla þín fréttinni um hreindýrskálfinn, Jenný Anna?

Emil Örn Kristjánsson, 29.4.2009 kl. 16:01

4 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Ó, afsakaðu, ég átta mig á því núna... frekar naumt að vísu, en samt.

Emil Örn Kristjánsson, 29.4.2009 kl. 16:03

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Guð blessi minningu Lífar Emil minn.

Ókei, ég kyngi þessu með töldu dagana.

Arg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.4.2009 kl. 16:13

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

HH: Segðu.  Vesen að það skuli ekki vera til forrík Jenný Anna Baldursdóttir, hverrar dagar muni taldir og ég þá fá óheftan aðgang að fjármagni.

God rest her soal.

Ragna: Takk, takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.4.2009 kl. 16:14

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 æ thú ert sko alveg ágæt, lyftir mér alltaf upp ad koma hér og lesa, takk fyrir thad

María Guðmundsdóttir, 29.4.2009 kl. 17:57

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég þekki persónulega tvær með þessu nafni og þær eru frábærar

Jónína Dúadóttir, 29.4.2009 kl. 18:30

9 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Neita því ekki, að ég tek þennan pistil oggulítið

persónulega.  Segi bara Dittó og eigðu góðan dag.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 29.4.2009 kl. 18:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband