Leita í fréttum mbl.is

Þar sem góða og gáfaða fólkið er

Sjálfstæðisflokkurinn hrynur í Reykjavík norður samkvæmt nýrri könnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir RÚV og Mogga. (Könnun gerð nú um páskana).

Fylgið er 22% en árið 2007 fékk flokkurinn 36% atkvæða.

Ég er ekki hissa og auðvitað þykir mér ekki leiðinlegt að þetta skuli gerast.

En það er eins gott að slaka hvergi á fyrr en kjörstöðum er lokað á kjördag og muna að þetta er bara könnun ekki atkvæði úr kassa.

En ég var svona að velta því fyrir mér í byrjun þingsins í dag, þegar Bjarni Benediktsson kom í ræðustól og hreinlega gargaði á Steingrím J. í óundirbúnum fyrirspurnartíma, að það væri um tvennt að ræða hvað væri að gera hann svona snakillan.

A. Að hann væri svona frústreraður yfir ástandi Sjálfstæðisflokksins vegna styrkjamálsins að hann beindi reiðinni bara að Steingrími þessu krútti sko.

B. Að hann væri að glefsa í Steingrím til að draga fjöður yfir óviðunandi ástandi í flokknum og þarna væri svo kölluð yfirbreiðsla fundin.

Svo benti einhver mér á að það virtist eins og honum væri att fram, að hann stæði ekki fyrir þessu sjálfur.

Að hann væri ekki á eigin vegum. 

Ég veit ekkert um það.

En Sjálfstæðismenn eru í þófinu um stjórnarskrána bara "buisness as usual" og Björn Bjarnason ætlar að tala eins og hann mögulega getur til að koma í veg fyrir að almenningur fái að fara með puttana í stjórnarskrána.

Rétt hjá honum.

Hinn andlitslausi massi er beinlínis stórhættulegur og svo er hann ódannaður, illa menntaður og gott ef ekki óhreinn líka.

Fyrir nú utan þá staðreynd að almenningur vinnur á daginn og grillar á kvöldin og getur ekki staðið í svona veseni til viðbótar.

Um að gera að halda stjórnarskrárbreytingum á Alþingi.

Þar sem góða og gáfaða fólkið er.


mbl.is Samfylking stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guði sé lof fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn geti þó hindrað þessa rugludalla í að eyðileggja stjórnarskrána.

Bara vinstrimenn gætu látið sér detta í hug að flýja erfiðar ákvarðanir og "leggja í dóm kjósenda" í stað þess að vinna vinnuna sína.

Annars segir mér svo hugur að þeir sem styðja VG hvað harðast séu hvorki vinnandi né sérlega greindir. Alla vega eru það ekki skattgreiðendur sem styðja VG (því VG vill jú skattleggja allt sem hreyfist til að moka ofan í iðjuleysingjahítina), og reynsla heimsbyggðarinnar af hinum skefjalausa kommúnisma sem VG boðar er eymd þegnanna í áratugi.

Jenný, þú myndir eflaust hafa það gott á Kúbu, iðjuleysingjar þar hafa það alveg ágætt. VG ætlar að taka af hinum duglegu og afhenda hinum lötu - þú slærð nú ekki hendinni á móti því, er það nokkuð?

Einar (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 16:53

2 identicon

Þessi IP-Einar fer í mig líkt og aðrir nafnlausir ipparar. En... það er lausn á þessu. Gefðu okkur netfangið hans, þeir þagna við það.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 16:59

3 identicon

þessi aðför sjálfsstæðisflokksins að lýðræði minnir á kúbu.reyndar held ég að (styrkirnir) þekkist ekki þar.einkennilegt að sjá stuðningsmenn sjálfstæðisflokksins á svona bloggi.hélt að þeir væru allir komnir á blogg um enska boltann

páll heiðar (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 17:02

4 identicon

Einar "hinir duglegu"eru það krimmarnir sem farið er að kalla "the untouchables"?og "hinir lötu"hljóta þá að vera við sem eigum að borga mistök sjálfstæðisflokksins...

zappa (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 17:03

5 Smámynd: Rögnvaldur Þór Óskarsson

Það er háttur ungbarna að garga og vera með frekjustæla þegar þeim líður illa. Bjarna líður greinilega mjög illa, er með hávaða og læti til að fólk taki nú örugglega eftir honum.

Annars hef ég það bara nokkuð gott.

Rögnvaldur Þór Óskarsson, 14.4.2009 kl. 17:22

6 identicon

Það er nákvæmlega þessi hroki sem birtist í þessu svari þínu Einar sem segir allt sem segja þarf.  Ég hef kosið sjálfstæðisflokkinn frá því að ég fékk kosningarétt.  Ég trúði á frelsið og drifkraftinn en jafnframt þjóðfélag sem héldi utan um fólkið sitt.  Hjálpaði þeim sem þurfa á því að halda.  Nú er trú mín kulnuð.  Sjálfstæðisflokkurinn sem ég trúði að kæmi landinu okkar til betri vegar reyndust græðgisöfl sem vildu allt gleypa og allt eiga.  Ekki til í að deila neinu með nánunganum.  Alltaf til peningar til að henda í hítina en engir til að hjálpa þeim sem virkilega áttu bágt.  Ég er búin að fá nóg, upp í háls.  Mér er illt hvernig að komið hefur verið fram við duglega þjóð.  Mér er illt af öllu stritinu sem maður hefur látið yfir sig ganga í góðri trú að fólk væri gott og heiðarlegt.  Nei allir manns stritpeningar eru nú afhentir fólki sem fór illa með þá.  Mig langar að sjá gott þjóðfélag þar sem meðlimir þess láta náungakærleikinn tala.  Mig langar að sjá þjóðfélag sem er duglegt og lætur verkin tala.  Þar sem allir geti haft það bærilegt.  Við lifum ekki lengi á þessarri jörð. Hvað viljum við láta eftir okkur.  Góðmennsku, dugnað, kærleika eða kynslóð sem þekkir ekkert nema græðgi og plott.  Ég veit allavega hvað ég vil mínum afkomendum.  Hvað hins vegar ég á að kjósa er erfið ákvörðun. En X-D verður það ekki.

Jóhanna Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 17:30

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einar: Dona, dona, farðu ekki að grenja og elskaðu lýðræðið.

Farðu svo og lestu þér svolítið til um vinstri helming hins pólitíska litrófs og sjá: þar munu margir vera iðjusamir.  Auli.

Jóhanna: Þú ert í stöðu sem margir finna sig í þessa dagana.

Zappa: Jabb við letiblóðin eigum að borga.  Það verður ekki farið til Kúbu í ár.  Fjandinn.

Rögnvaldur: Þér að segja þá vorkenni ég honum smá, af því hann kemur inn í þetta ástand sem má segja að sé ekki honum að kenna.

Gísli: Hér er netfangið hans.  Nú er um að gera að senda manninum sumarkveðjur.

einarjohannesson@yahoo.com

Páll Heiðar: Nú er kominn í þá grímuskjálfti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.4.2009 kl. 18:15

8 Smámynd: Ibba Sig.

Einar: Gaman að fræða þig á því að hlutfall kjósenda með háskólamenntun er langhæst hjá VG. Það er nú öll heimskan.

Ibba Sig., 14.4.2009 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.