Leita í fréttum mbl.is

Draugaleg rödd

 easterbunny

Sorglegt hvað fólk heldur misvel upp á páska en mikið skelfing er ég glöð að vopnaævintýrið endaði slysalaust.

Borgarar eiga ekki að eiga skotvopn.  Einfalt mál.

En súkkulaðihátíðin á kærleiks er búin að vera yndisleg.

Hér er nafna mín komin til gistingar og mamma hennar kom með hana og hjálpaði mér (lesist þreif ein nánast alla íbúðina).

(Í gær reddaði frumburðurinn helgarinnkaupunum með móður sinni mállausri, dætur mínar eru bestar).

Jenný Unu brá yfir drungalegu raddleysi ömmunnar.

Henni leist satt best að segja ekki á blikuna.

Amma, ég er ekki viss að ég ætli að gista há ykkur.

Amman: Ha, af hverju ekki?

Jenný: Þú er mjög draugaleg í röddinni.

Amman: En ég er samt alveg sama amman.

Jenný (ákveðin): Nei, þúertaekki.

Aðeins seinna:

Amma, þú ert að lagast í röddinni þinni mjög hratt.

Ég ætla að gista há ykkur afa.

Lífið er unaður.

Ég er farin að koma upp einu og einu hljóði.

Vó, hvað það gleður.

Njótið súkkulaðihátíðarinnar í botn.

Það ætla ég að gera.


mbl.is Þurfti að kalla á sérsveitina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið nöfnur eruð yndislegar

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 17:06

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Gleðilega súkkulaðipáskahátíð!

Ía Jóhannsdóttir, 12.4.2009 kl. 17:28

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 12.4.2009 kl. 17:49

4 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Auðvitað er ekki æskilegt að borgarar eigi skotvopn eins og þarna sannaðist.

Hilmar Gunnlaugsson, 13.4.2009 kl. 00:30

5 identicon

til hamingju með NÝJA RÖDD. Vonandi bitnar það þó ekki á fækkandi pistlum

páll heiðar (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 00:33

6 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Fyrirgefið hérna....Ég les greinilega ekki nógu oft blogg. Hvað ertu að sega ertu búin að vera raddlaus síðustu daga? Hefurðu bara ekkert getað........Ekki tala ég það oft við þig að ég gæti þekkt hana út á götu.

En ég man afar vel að þú varst ekki raddlaus á vogi.

Náðu þessu helv... úr þér.

S. Lúther Gestsson, 13.4.2009 kl. 01:17

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hún nafna þín hefur náttúrulega veri hrædd um að hún þyrfti að kalla á sérsveitina til aðstoðar draugalegri raddsetningu "ömmunnar".  En hvað ég skil hana. 

Var það ekki einmitt áhyggjufullur "aðstandandi" sem kallaði sérsveitina til, sökum þess að nágranninn var einn heima og nennti ekki á fyllerí eða í partý, vildi bara sofa.

Gleðilega páska.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.4.2009 kl. 02:23

8 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Konu dettur í hug sagan um Rauðhettu, ömmuna, úlfinn og co.

"Amma, af hverju ertu..." osfrv.

Það er þetta með langsóttu tengingarnar...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 13.4.2009 kl. 02:35

9 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 gott ad thú ert ad komast yfir hljódmúrinn  

hafdu thad gott

María Guðmundsdóttir, 13.4.2009 kl. 06:54

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, takk fyrir komment.

Lúther: Fyrsta skiptið sem ég hef verið raddlaus það ég man.  Ekki auðvelt.

HH: Ekki svo langsótt tenging, mér datt þetta sjálfri í hug, nema við séum báðar svona langsóttar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.4.2009 kl. 08:32

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Menn verða náttúrlega að eiga byssur til að verja sig og heimili sitt! Drottinn blessi heimilið!

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.4.2009 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband