Leita í fréttum mbl.is

Hámark lágkúrunnar

Satt best að segja þá er ég löngu hætt að horfa á Ísland í dag.  Ég hreinlega gafst upp. 

Svo ég segi það beint út; ég fékk orðið grænar bólur við að sjá Séð og heyrt parið birtast á skjánum með andskotans nærmyndirnar og annað ámóta yfirborðskennt efni.

En svo las ég Heiðu vinkonu mína áðan.  Hún var að blogga um nærmynd sem hafði verið sýnd í kvöld af Björgólfi Thor.

Henni var ekki skemmt.

Þetta varð ég að sjá. 

Ég byggði mig upp andlega og lét vaða í þáttinn.

Fyrirgefið, en er verið að gera tilraun til að gera fólk brjálað úr reiði?

Eða aulahrolli.

Björgólfur Thor er svo mikið krútt, segja vinir hans.  Hann fer á skíði, er stundum alveg blankur á matsölustöðum eins og vinirnir og svo fer hann með börnin sín í dýragarð um leið og hann stjórnar símafundum.

Svooooo mikið krútt.

Hvað er að þeim þarna á Stöð 2?

Hafa þeir tekið leynilega ákvörðun um að eyða sjálfum sér með lélegu efni?

Hrista hreinlega af sér áhorfendur með ofbeldi, svei mér þá.

Ég er að minnsta kosti glöð yfir einu, eða varð um leið og ég var búin að hrista af mér aulahrollinn og reiðina (þetta er einn af mönnunum sem eru búnir að skuldbinda okkur Íslendinga nokkrar kynslóðir fram í tímann, lifir ljúfa lífinu í London og er enn á fokkings Forbes listanum, þó hann hafi færst eitthvað neðar), þá gladdist ég smá.

Ég horfi ekki lengur á þá þarna á stöðinni.

Ég þarf ekki að liggja í krampakenndum aulahrolli með óbragð í munninum frekar en ég vil.

Ég mun ekki misbjóða mér aftur.

Hér er upphafningin af peningamógúlnum Björgólfi Thor sem fór og skildi þjóðina eftir með reikninginn.

En er dásamaður eins og Jesús í kirkjunni hjá þeim á tyggjókúlustöðinni.

Og nú segi ég:

Fyrirgefið á meðan ég æli OG kasta mér í vegg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þvílíkt taktleysi að maður á ekki orð... ég er með andateppu af bræði!

Heiða B. Heiðars, 31.3.2009 kl. 23:52

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er svo sammála þér með Ísland í dag  Úff.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.3.2009 kl. 23:59

3 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Það er dálítið síðan að ég hætti að horfa á þessa stöð. Þakka þér fyrir að minna mig á að það hafi verið rétt ákvörðun.

Páll Vilhjálmsson, 1.4.2009 kl. 00:20

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Neikvæðni er þetta !

Ágætur þarfur þáttur & svo eru þau líka svo sæt saman & vel klædd.

'Settið' er líka einstaklega vel hannað & dregur fram í þessu fallega fólki helstu séreinkenni þess, dona útlitzlega.

Kví þarftu alltaf að vera mótdræg okkur fallega fólkinu ?

Ha ?

Steingrímur Helgason, 1.4.2009 kl. 00:25

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er einhvern vegin alveg í stíl við Heiðu um leið og ég flissa heimskulega að Steingrími!

Hrönn Sigurðardóttir, 1.4.2009 kl. 07:29

6 identicon

Eins og talað út úr mínum munni. Ég hef gert nokkrar heiðarlegar tilraunir að undanförnu til að horfa á þennan handónýta og væmna þátt, Ísland í Dag á Stöð 2. Allt getur nánast flokkast undir drasl þarna, val á efni, efnistök og stjórnendur. Aftur á móti er Ísland í Bítið á Bylgjunni til mikillar fyrirmyndar og þar er mikið fagfólk á ferð. Kastljósið í Sjónvarpinu er líka til mikillar fyrirmyndar að mínu mati. Þar eru líka spyrjendur og stjórnendur á heimsmælikvarða.   

Stefán (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 08:23

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég reyni ekki einu sinni að ergja mig yfir að horfa á sona, nægileg nálgun er að lesa um það hér

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2009 kl. 08:51

8 Smámynd: Laufey B Waage

Tek undir með Ásthildi.

Annars væri ég endalaust að æla og kasta mér í vegg.

Laufey B Waage, 1.4.2009 kl. 10:09

9 identicon

Ég er alveg sannfærð um að bráðum birtist sjónvarpsstjórinn og biðjist velvirðingar á þessum mistökum að hafa óvart birt gamlan þátt frá árinu 2007.  Getur bara ekki verið nein önnur skýring á þessari kolklikkuðu tímaskekkju.  Ekki nema að hefðu birt þetta í dag sem aprílgabb!  Segi eins og þú "Fyrirgefið á meðan æli OG kasta mér í vegg".

Annars kallaði einhver þetta Ísland í gær!  Sennilega ekki hægt að orða það betur ;-)   

ASE (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 11:40

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hey... ég þori nánast að dansa tangó standandi á haus upp á að þetta var keypt þarna inn ;)

Heiða B. Heiðars, 1.4.2009 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband