Leita í fréttum mbl.is

Kreppuskógur

 kreppuskógur

Auðvitað er skelfilegt að bílaframleiðendur fari á hausinn og fullt af fólki missi þar með vinnuna.

En eru þessi gengdarlausu bílakaup fólks ekki út úr kortinu og það nauðsynlegt að koma þessu á eðlilegt plan?

Það er regla frekar en undantekning að það sé bíll á mann á heimilum víða um heim og hér auðvitað líka.

Bílar menga, gleypa bensín, hamla för (umferðarteppur sko) og fólk spikfitnar undir stýri.  Smá dramatík hérna og ööööörlitlar ýkjur en þið vitið hvað ég meina.

Ég er ekki með bílpróf (nei missti það ekki, tók það og endurnýjaði ekki, er stórhættuleg í umferðinni) og hef á tímabilum notað strætó.  Mér fannst það flott ef frá eru taldar tímatöflur sem eru búnar til af einhverjum sem notar EKKI strætó.

Mér er næst að halda að hugbreytandi efni hafi verið með í för í tímatöfludeildinni hjá Strætó á stundum.

Þessu þarf að kippa í liðinn.

Nú eigum við að gangast upp í því að vera sparsöm, umhverfisvæn og kollektív.

Látum kreppuskóginn verða minni eitt.

Halló, þetta átti ekki að verða nein prédikun.

En svo "varðaði" það bara.

Excuse.


mbl.is Mikil óvissa í bílaiðnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl.

Aldrei gott að fólk missi vinnuna, satt er það.

Varðandi bílanotkun og bílaeign, þá finnst mér líftími bifreiða vera að styttast, eða réttara, við erum hvött til þess að vera sífellt að endurnýja bílana okkar. Til hvers ?

Fyrir nokrum árum sagði talsmaður söluhæsta bílaumboðsins, að tíu ára gamall bíll væri búinn með sinn líftíma. Ekki ætla ég að kaupa bíl frá því umboði.

Hugsa sér, næstdýrasta fjárfesting fjölskyldunnar (fasteign er dýrust) endist bara í 10 ár. Og kostar milljónir í innkaupum ný ! Hverslags rusl er verið að selja fólki ?  Eða...  er verið að plata okkur ?

Á mínu heimili eru margir bílar, fleiri en heimilisfólk, engin bílana er yngri en 11 ára. Meðaltalsaldur bílana er  tæp 25 ár.

Með því að nota bíl af skynsemi, fara vel með hann og veita honum nauðsynlegt viðhald, endist hann lengur. 

Minni sóun á verðmætum, meiri frítími, meir ánægja. Meiri vinna fyrir fólk við að framleiða hluti á varahluta- og eftirmarkaði.

Það er hægt að lifa þægilegum lífsstíl og vera skynsamur á sama tíma.

Kveðja,

Heimir H. Karlsson.

Heimir H. Karlsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.