Leita í fréttum mbl.is

Kjaftæði

Æi, það er nánast krúttlegt allt þetta tal um nýja kynslóð í Sjálfstæðisflokknum.

Nýr formaður hamrar á þessu og ég er viss um að þetta verður marg endurtekið í kosningabaráttunni.

Nýja fólkið.

Nýja kynslóðin.

Bjarni er afleggjari af Birni Bjarnasyni.

(Ég hjó sérstaklega eftir því í fréttum í gær að hann sá ekkert athugavert við ræðu DO, fannst hún fínt innlegg í umræðuna.  Hélt einhver að tímar "göngum hreint til verks" væru upp runnir í Sjálfstæðisflokknum.  Þar eru menn sammála, nánast alltaf).

Þorgerður Katrín (þó ágæt sé) er ekkert ný.  Halló, hún var með alla leið í fyrri ríkisstjórn.

Svo segir hann að sjálfstæðismenn hafi svarað kalli um breytingar.

Og jaríjaríjarí.

Kjaftæði.

 


mbl.is Nýrri kynslóð treyst til verks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvæmlega. Það varð ekki nokkur breyting á nokkru á þessum auma íhaldsfundi. Engeyjarættin og Kolkarabbinn munu áfram ráða þarna ríkjum sem aldrei fyrr. Salurinn veltist um af hlátri þegar gamli úfni, skapilli einræðisherrann hraunaði yfir Vilhjálm Egilsson og endurskoðunarnefnd flokksins og gaf honum svo gott klapp að launum. Geir  fékk loksins ofur kjark til að gagnrýna Dabba, sem líka hefur manna mest hraunað yfir hann síðustu mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn er raunar tvær fylkingar og fylking Davíðs og Bjarna Ben sigraði, en fylking Geirs og Kristjáns Þórs varð undir. Að mínu mati var þarna saman komið veruleikafyrrtasta fólk landsins, fólk sem gleymir jafnfljótt og gullfiskar í glerbúri.  

Stefán (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 09:44

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessi skot sem ég sá frá landsfundinum var eins og Fellini bíómynd.  Algjörlega geggjað.

Og ræðustólinn með erninum.  Minnir mig á eitthvað skal ég segja þér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.3.2009 kl. 10:09

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Endurnýjun er ekki til staðar í Sjálfstæðisflokknum.  Og mér skilst að viðbrögðin við "Ræðunni" hafi veri verri en ræðan sjálf og var þá mikið sagt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2009 kl. 10:17

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Ásthildur, Davíð kom mér ekki svo mjög á óvart, en að fólk skyldi hylla hann og standa á klappinu og hlátrinum segir manni ýmislegt um fólkið í flokknum.

Hálf óhugnanlegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.3.2009 kl. 10:22

5 identicon

Ef þetta er endurnýjun er ég frá mars. Og ræðan já hef bara heyrt bort af henni.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 10:23

6 Smámynd: Alli

Sæl Jenný.

Ég held reyndar að "Örninn" á ræðustólnum eigi að vera fálki.  En það skiptir reyndar ekki máli, Hrægammur væri betur við hæfi og hefði sómt sér vel í forgrunni ræðu Davíðs.

Alli, 30.3.2009 kl. 10:28

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Þessi magnaða endurnýjun ætlar að klára dæmið.

Það vantar bara herslumuninn: Þjóðargjaldþrot.

hilmar jónsson, 30.3.2009 kl. 10:52

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þess má svo geta, að meint kynslóðaskipti geta nú vart talist nema að hálfu, ÞK aðeins rúmlega fjórum árum eldri en Bjarni, verður 44 seint á þessu ári, en hann varð 39 í jan. Þau teljast því af sömu kynslóð.Sex ár á hann að baki sem þingmaður, hún allavega tíu held ég.Menn geta því vissulega deilt um nýjabrumið!

Magnús Geir Guðmundsson, 30.3.2009 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.