Leita í fréttum mbl.is

Loksins!

Auðvitað mætti enginn í blysförina heim til Jóhönnu, en það mátti reyna.

Hvað um það og varðandi Jóhönnu.

Mér finnst löngu tímabært og teljast til töluverðra tíðinda að Breiðavíkurdrengirnir og önnur börn sem illa var farið með og voru á vegum hins opinbera, séu loksins beðin afsökunar.

Það gerði Jóhanna Sigurðardóttir glæsilega úr ræðustól Alþingis í dag.

Það furðulega er að Mogginn er eini miðilinn sem ekki hefur vikið að þessum merkilegu tímamótum einu orði.

Geir Haarde hafði ekki séð sér fært að biðja þolendurna afsökunar á sínum tíma og ég kem aldrei til með að skilja hvers vegna það stóð í honum og ríkisstjórn hans.

Breiðavíkurofbeldismálið og önnur viðlíka eru svartur blettur á íslenskri sögu.

Ill meðferð á börnum þreifst og blómstraði í skjóli ríkisins.

Allir og þá meina ég allir, á öllum stigum, litu í aðra átt, gerðu ekkert og brugðust með því saklausum börnum sem aldrei gátu borið hönd fyrir höfuð sér.

Nú bíð ég eftir að þeir sem eftir lifa eða aðstandendur þessara barna fái skaðabætur sem sómi er að.

Fyrr er málinu ekki lokið.


mbl.is Enginn mætti í blysförina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er mikilvægt að Jóhanna fylgi málinu eftir en ánægður er með afsökunarbeiðnina!

Hilmar Gunnlaugsson, 12.3.2009 kl. 18:33

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég verð nú bara að leggja orð í belg.

mér fannst þetta gott move hjá JS.

en þar fyrir utan, þá finnst mér manneskjan (JS) vera flottasti forsætisráðherrann síðan ég fór að fylgjast með pólitík. þá erum við að tala um síðan ca 1980.

loXins fáum við einlæga og heiðarlega manneskju í stólinn. Hún fær mitt atkvæði, það er á hreinu.

Brjánn Guðjónsson, 12.3.2009 kl. 20:46

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ertu að meina þetta? Hefur enginn skrattast til að biðja Breiðavíkurdrengina afsökunar fyrir hönd íslenskra stjórnvalda fyrr en nú??

Hrönn Sigurðardóttir, 12.3.2009 kl. 22:22

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Nú skulum við hugsa okkur hvar við værum stödd í dag ef við hefðum ekki átt þess kost að mynda hér vinstri stjórn eftir hörmungartímabilið frá septemberlokum til áramóta! Hugsum bara til baka og rifjum upp alla lygina, blekkingarnar og ráðaleysið sem stjórnvöld buðu okkur upp á þegar mest lá við að finna til öryggis. Og það er mitt mat að þrátt fyrir að íhaldsdrullusokkarnir á Alþingi hafi reynt að tefja fyrir flestum góðum málum þá hafi 80 daga stjórn Jóhönnu og Steingríms unnið ótrúlegt þrekvirki.

Ég var ekki vinstri maður en ég treysti vinstri flokkunum einum til að byggja þetta samfélag upp eftir hörmungar markaðshyggjunnar.

Þeir eiga að heita okkur framhaldi á samstarfi að loknum kosningum.

Árni Gunnarsson, 12.3.2009 kl. 23:49

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég þekki nokkra af þessum Breiðavíkurdrengjum og eina Breiðavíkurstúlku.  Ég segi fyrir þeirra hönd loksins.   Ég heyrði nýlega að 1.1 milljón væri í boði fyrir Breiðavíkurbörnin.  Ekki veit ég hvort það sé satt. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.3.2009 kl. 01:03

6 Smámynd: Eygló

Jóhanna sýnir það sem Geir bara kann ekki eða getur ekki; verið eðlilegur og einlægur. Hann virðist ekki hafa þann sjálfstyrk sem Jóhanna hefur; að geta beðið afsökunar og/eða viðurkennt mistök (hvað þá mistök sem áttu sér stað fyrir hans tíma)

Hann vill bíða eftir niðurstöðum rannsóknar!!!  Það væri líka sóun á afsökunarbeiðni, ef svo ekkert fyndist!  Æi, greyið Geir, og allir hinir. Kannski erfið æska? 

Eygló, 13.3.2009 kl. 01:45

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þessi langþráða afsökunarbeiðni til Breiðavíkurdrengja, -stúlkna og annarra, sem máttu þola svipað ranglæti í æsku, vafðist ekkert fyrir núverandi forsætisráðherra.  Hefði heldur ekki átt að vera neitt vandamál fyrir forvera hennar, jafn sjálfsögð og þessi táknræna yfirlýsing var.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 13.3.2009 kl. 02:24

8 Smámynd: Eygló

Manneskjuvísitalan hækkaði um einhver stig við fréttina um að fólk hafi EKKI mætt í blysför! Allir heilagir, ég sá þetta fyrir mér einsog verið væri að sækja Jóhönnu af Örk, með kyndla til að kveikja í bálkestinum til að brenna hana.  Eða til að sækja ætlaða norn.

Takk kæru landar, okkur er þá ekki alls varnað.

Eygló, 13.3.2009 kl. 03:05

9 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Innilega sammála.  Hlustaði á afsökunarbeiðnina og heillaðist af því hve Jóhönnu tókst á einlægan hátt að bera hana upp,  fyrir hönd okkar allra í raun og veru.

Þegar Geir sér þetta, þá hugsar hann kannski í tíunda sinn:

Maybe I should have! 

Jenný Stefanía Jensdóttir, 13.3.2009 kl. 07:08

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Auðvitað mætti enginn !

Jónína Dúadóttir, 13.3.2009 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.