Leita í fréttum mbl.is

Með óbilandi trú og stórlega misboðið

hauspokinn

Mig hefur oft langað til að vera haldin óbilandi trú á sjálfri mér.

Ekki það að ég sé ekki ágætlega glöð með mig eftir að ég varð edrú og svona, er sífellt að koma mér skemmtilega á óvart.

Nei, ég er að tala um svona óbilandi trú á sjálfri mér sem næði út yfir gröf og dauða.

Að ég myndi hreinlega trúa því inn að merg og beini að ég hefði alltaf rétt fyrir mér.

Með þessu þarf svo að hafa dass af mikilmennskubrjálæði, forstokkun og hortugheitum sem myndi gera það að verkum að maður legðist í bréfaskriftir ef einhver vogaði sér að að deila ekki hrifningarvímunni með manni.  Að manni væri stórlega misboðið.

Ég var að hugsa um svona týpu eins og Eirík þaulsitjandi seðalabankastjóra sem hefur skrifað kvörtunarbréf að þessu sinni og hinum slímsetumanninum Davíð,  svona almennt og yfirleitt.

Þessi fullkomna vissa um að hafa ekkert gert annað en það sem rétt er.

Þrátt fyrir að víða um heim hafi mætar manneskjur reist ágreining við þá trúu manns.

En kannski er það ágætt að vera bara með fyrirvara á sjálfum sér og eigin ágæti.

Sko, hefði ég verið í Seðlabankanum þegar allt fór til fjandans - úff hvað ég hefði læðst út úr bankanum 7. október, með hauspoka even.

Jabb. Ég held að ég þakki bara fyrir að vera eins og ég er.

Í bili að minnsta kosti.


mbl.is Furðar sig á vinnubrögðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hefði sennilega deilt með þér hauspokanum.

Villi Asgeirsson, 24.2.2009 kl. 16:52

2 identicon

Já, það þykir ekki góður siður að kasta steinum úr glerhúsi.

Burt með spillingaröflin og vanhæfa flokksgæðinga!

Kolla (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 17:11

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ef ég frétti af því að 80 % Íslendinga krefðist þess að ég Finnur Bárðarson, hætti störfum á mínum vinnustað, ef 5000 manna hópur safnaðist saman á Austurvelli og krefðist að ég hætti og ef menn berðu búsáhöld fyrir utan vinnustað minn og þar að auki að minn æðsti yfirmaður bæði mig að fara. Ég held bara að ég myndi laumast út með hauspoka, en maður er líka bara vesalings gunga.

Finnur Bárðarson, 24.2.2009 kl. 17:18

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Finnur gunga ... suss, maður situr bara sem fastast þegar maður heitir Davíð Oddsson. Lætur kannski litla karlinn í skrifstofunni við hliðina skrifa bréf og híar svo á skrílinn. Mikið djö ... myndi ég njóta þess! Sem betur fer er ég ekki Davíð Oddsson.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 24.2.2009 kl. 17:44

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Getur verið að þessir menn séu í raun með brotna sjálfsmynd en það sé búið að líma þá fasta í stólana sína með tonnataki?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.2.2009 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 2985630

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband