Leita í fréttum mbl.is

Þeir geysast fram gúbbarnir í flokknum eina

Heiða vinkona mín er greinilega að hugsa á svipuðum nótum og ég.

Pétur Blöndal ætlar að gefa kost á sér í prófkjöri fyrir FLOKKINN!

Skrýtið, ég heyrði hann nefnilega tala á Alþingi um hversu ömurlega vanþakklát starf þingmannsdjobbið væri, þegar verið var að ræða eftirlaunaafnámið í fyrradag.

Hann talaði um allt umtalið á bloggsíðum.

Um umtalið úti í bæ.

Djöfuls skítadjobb fannst honum þó hann segði það ekki nákvæmlega svona.

Sama sinnis er Kristinn H. Gunnarsson, óánægjuþingmaður í Frjálslynda.

Þar sem ég hef legið yfir þinginu eftir stjórnarskiptin þá hef ég fylgst með KHG og hann er alltaf ósammála.

Hann þarf örugglega að leita eins og brjálæðingur á hverjum morgni eftir nýjum flötum á hverju máli sem tekið er fyrir í þinginu til að finna eitthvað til að setja út á.

Ég hafði samúð með Kristni þegar þeir voru að veitast að honum í Frjálslynda en nú býð ég eftir að hann tilkynni að hann gefi ekki kost á sér meir.

Af því þetta er ömurlegt starf, illa launað og vanþakklátt.

Annars ætti KHG að fara í Sjálfstæðisflokkinn eins og hinn órólegi þingmaður Frjálslyndra, Jón Magnússon gerði í gær.

Mér sýnist KHG vera smávegis á sjálfstæðissíðuna.

Jájá, eins og mér finnst og rétt er (Hildur Helga, ég sagði þér að ég myndi nota þennan).

Later!


mbl.is Pétur Blöndal sækist eftir 2. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Í fullri alvöru þá held ég að geimverur hafi tekið Kristinn H. vin minn og plantað róbót í staðinn, þeir geyma hann einhversstaðar afsíðis   En margir eiga erfitt með að upplifa breytta búsáhaldatíma.  Það ætti ef til vill að setja á stofn endurhæfingardeild fyrir aflóga þingmenn og ráðherra, mér sýnist ekki veita af á þessum síðustu og verstu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2009 kl. 20:07

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þú meinar að Kristinn H eigi að hætta þessu flokkarölti og labba sig bara beint inn í Sjálfstæðisflokkinn, þar er nú fyrir stóri bróðir hans, og fyrrum alþingismaðurinn,  núverandi bæjarstjórinn Gunnar Birgisson, svo hann er þá líka kominn heim eins og Jón.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.2.2009 kl. 20:59

3 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Knús á þig.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 19.2.2009 kl. 21:12

4 Smámynd: Byltingarforinginn

Það er þó jákvætt að sjálfstæðisflokkurinn skuli sækja í sig veðrið og taka yfir á ný eftir kosningar... þið sem hafið barið náttgögnin ykkar á Austurvelli eruð auðvitað ekki fær um að sjá að það er "flokknum eina" að þakka að ekki fór ver.

Haldið nú endilega áfram að lemja koppana ykkar, kerlingar!

Byltingarforinginn, 19.2.2009 kl. 23:12

5 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Ásthildur, þetta er þekkt fyrirbæri úr Íslenskum þjóðsögum og var kallað umskiptingur. Annars hefur þessi Kristinn alltaf blasað við okkur Reykvíkingum.

Þóra Guðmundsdóttir, 19.2.2009 kl. 23:14

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ahhhh, það er notalegt að kúka....hmm...varstu að segja eitthvað?

Brjánn Guðjónsson, 19.2.2009 kl. 23:33

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Jenný, Mín er ánægjan    Er þó að huxa um að fá lén á frasann, þannig að aðeins aðilar mér þóknanlegir fái að nota hann.   Þú er alveg safe, enda meðal stofnfélaga í Einsogmérfinnstogrétterfélaginu.  (Ástandið í samfélaginu kallar á einræðistilburði... "Hinir geta bara étið kökur")

Svo finnst mér með ólíkindum hvað hann Jón blessaður Magnússon er búinn að vera lengi á leiðinni heim til sín. 

Kristinn H. er síðan búinn að fara þvílíkar fjallabaksleiðir að það er mesta furða að maðurinn skuli ennþá vera í heilu lagi.   Ef hann hefði skemmtilegri skoðanir væri alveg hægt að hafa samúð með flokkaflakkinu.  Hef hins vegar aldrei alveg náð því hvaða sannfæringu hann er að fylgja þegar hann skiptir um flokk -eða sokk...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.2.2009 kl. 00:55

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahaha, HH.  HFF.  Nú talar maður í skamstöfunum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.2.2009 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband