Leita í fréttum mbl.is

Smá Óli - meiri framsóknarmennska

Ég heyrði upptöku af samtali þýska blaðamannsins við ÓRG á RÚV í gær.

Óli sagði ekki að Íslendingar ætluðu ekki að borga.

Alls ekki.

Hvað um það, hann er tjáningarglaður forsetinn.

Kannski ætti hann að leyfa Dorrit að sjá um PR-ið.

En að öðru og alvarlegra máli.

Ég held að Seðlabankafrumvarpið komist ekki í gegn fyrir kosningar.

Ég held að Framsóknarflokkurinn ætli sér að bregða fæti fyrir frumvarpið.

Þrátt fyrir meikóver í aldri og nýju fólki virðist allt vera við það sama hjá bændaflokknum.

Framsókn er á bullandi mikilvægisfylleríi, stjórnin lifir eða deyr með þeirra vilja.

Þeir eru innstungan í öndunarvélinni.

Nú setja þeir fyrir sig menntunarkröfur sem gera á til nýja Seðlabankastjórans.

Það er of þröngt skilgreint að hann skuli vera með meistarapróf í hagfræði.

Japl, jamm og fuður.

Látum okkur sjá...

Það má bæta við prófi á mjólkurvélar,

nú eða viðskiptafræði..

eða þá lögfræði..

þá erum við kominn hringinn.

Og afdankaðir Framsóknarmenn geta fengið djobbið.

Ég mun fylgjast vel með.

Látið ekki blekkjast af nýjum umbúðum gott fólk - ef það er það eina sem hefur breyst og gamli valdaflokkurinn hangir hinum megin við hornið og sætir færis.

Þ.e ef sú er rauninn.  En við skulum láta þau njóta vafans örlítið lengur.


mbl.is Skapstóri forsetinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég sá einmitt þingflokksformanninn þeirra tjá sig um þetta í fréttunum í gær og hugsaði;  nýja framsókn hvað?????

Sigrún Jónsdóttir, 11.2.2009 kl. 10:31

2 Smámynd: Ragnar Borgþórs

Þetta er það sem við eigum eftir að sjá um ókomna framtíð, mis gáfaða stjórnmálamenn sem hafa það eitt að markmiði að sitja sem lengst á þingi og í ráðum.

Ragnar Borgþórs, 11.2.2009 kl. 10:36

3 Smámynd: Agnar Bragi

Þetta er ekkert annað en rasismi hvernig þú talar um fólk sem aðhyllist Framsókn... skammastu þín !

Agnar Bragi, 11.2.2009 kl. 10:40

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Agnar Bragi: Villtu gjöra svo vel að passa á þér þverrifuna.

Ekki misnota orðið rasisti í pólitískri umræðu. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.2.2009 kl. 10:42

5 Smámynd: Sigurður Hrellir

Framsóknarflokknum er ekki við bjargandi, hvorki með tilkomu Sigmundar Davíðs, Guðmundar Steingrímssonar eða fleiri skilgetnum eða óskilgetnum afkvæmum Framsóknarmanna. Svei!!

Sigurður Hrellir, 11.2.2009 kl. 11:07

6 identicon

Það sem framsóknarmenn eiga við er að meistaranám í hagfræði sé of þröng skilgreining. Það er margs konar annað nám í fjármálum sem ætti að koma til álita. Þetta mætti t.d. laga með því að nefna meistaragráða í hagfræði eða sambærilegt.

Frumvarpið var unnið í miklum flýti, þannig að það eru nokkrir vankantar sem þarf að sníða í meðförum viðskiptanefndar. Það er nú allur stormurinn og tengist ekki því að stöðva frumvarp.

kveðja,

Einar

Einar Skúlason (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 11:10

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einar: Ókei, kannski, en ég bíð spennt eftir að sjá hvernig þeir haga vinnubrögðum í efnahags- og viðskiptanefnd, þar sem þeir kröfðust þess að fá frumvarpið þangað.

Þið hin: Ég vil trúa að Framsókn meini eitthvað með hamskiptunum en þeir verða auðvitað að sýna það í verki.

Siv var nú ekki beinlínis hlýleg þegar hún hótaði sjávarútvegsráðinu með þinginu ef hann hleypti ekki gerræðisákvörðun um hvalveiðar EKG í gegn.

Mér fannst ekki mikill samvinnutónn í henni þar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.2.2009 kl. 11:42

8 identicon

Frumvarpið um Seðlabankann fór í viðskiptanefnd enda fór annað frumvarp um Seðlabankann einnig þangað fyrir ekki svo löngu síðan og byrjað að fá umsagnir um það o.s.frv. Hefði verið undarlegt að senda næsta frumvarp um Seðlabankann í efnahags- og skattanefnd eins og hugmyndin var.

Það er ekkert nýtt að það sé meirihluti á þingi fyrir hvalveiðum. Kemur ekkert á óvart. Þar eru t.d. samfylkingarþingmenn á meðal stuðningsmanna.

Allt þetta snýst auðvitað um meira þingræði, líkt og hefur verið rætt svo mikið síðustu vikur og mánuði. Ríkisstjórnin getur ekki ætlast til þess að málum sé lokið áður en þau koma til meðferðar þings. Það snýst ekki um Framsókn, snýst bara um stjórnskipulagið.

Einar Skúlason (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 15:42

9 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ég viðraði þann möguleika pent á dögunum, að Framsókn myndi fella stjórnina innan tíðar -nógur væri víst þrýstingurinn á þá að gera það.

(Og dagleg tækifæri/átyllur: Seðló-frumvarp; Hvalveiðar; Stóriðja...)

Segi "pent", þar sem ég var að vona að það væri bara mín eigin aðsóknarkennd, sem blési mér þessu í brjóst.   Heittrúuð Sjálfstæðiskona var líka búin að segja við mig, að til þessa myndi aldrei koma, "því ef Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur legðust á eitt um að rústa 80 daga stjórninni, yrðu báðir flokkar ærulausir um aldur og ævi".

Þar er kannski ekki úr háum söðli að detta.   Eða hvað ?

Og svo var Ingibjörg Sólrún kölluð "valdapólitíkus"!

Hildur Helga Sigurðardóttir, 11.2.2009 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30