Leita í fréttum mbl.is

Gamlar syndir

Kannski er í lagi að veiða hval.

Ég veit það ekki, en ég er ekkert afskaplega spennt fyrir málinu, held bara að það kosti okkur helling í péerri að gera það.

Svo er alveg bráðfyndið að lesa sum blogg vegna þess að fundist hefur gömul mynd af Steingrími J. að skera hval.  Fólk lætur eins og það hafi fundið sönnunargögn í morðmáli.

Steingrímur er sekur, hann myrti hval.

Ég vann einu sinni hálfan mánuð í frystihúsi þegar ég var 14 ára hjá Júpíter og Mars.

Var að snyrta karfa og pakka honum inn.  Lyktin var ógeðsleg en félagsskapurinn skemmtilegur og við unnum fram á nótt.

Ég var rekin af því ég fór að leika mér með vatnsslöngu og sprautaði á hálfbrjálaðan verkstjóra sem hafði engan húmor fyrir því að fá vatn úr kraftslöngu framan í sig.

Reyndar hélt ég að hann myndi drepa mig.

Það sem ég er að segja ykkur hérna börnin mín sæt og góð er að ég borða ekki karfa en er sek um að hafa skorið í hann, pikkað úr honum hringorma og farið ómannúðlegum höndum um þessa matvöru sem seld var til Rússlands.

Ég hef karfadráp á samviskunni en ég er algjörlega með verndun fiskistofnanna við landið.

Sjálfstæðisþingmenn halda því allir fram sem einn að það hafi verið hárrétt ákvörðun hjá fyrrverandi Einari K. Guðfinnssyni að leyfa hvalveiðar þegar hann var starfandi sjávarútvegsráðherra.

Allir vita hins vegar að þetta var gert til að koma væntanlegum sjávarútvegsráðherra illa, nokkurs konar hefndarráðstöfun á lokasprettinum.

Nú þarf Steingrímur fyrrverandi hvalaskurðarmaður að taka á málinu og allir eru óðir í að fá að myrða hval í samlede verker.

Hvar er markaðurinn fyrir kjötið ef einhver getur sagt mér það?

En ég hef engar áhyggjur af stóra hvalamálinu, ég held nefnilega að Steingrímur leysi þetta mál þannig að allir geti vel við unað.

Sumir munu segja; mikil er trú þín kona.

Og við því segi ég; hvað er að, hafið þið eitthvað á móti bjartsýni?

Ég veit að hann gerir sitt besta og það er nógu gott fyrir mig.


mbl.is Vond stjórnsýsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hvernig er hægt að hafa eitthvað á móti bjartsýni ?

Jónína Dúadóttir, 6.2.2009 kl. 08:42

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Kona, þín mikla trú á okkur nafna er ~zteinblind~.

Steingrímur Helgason, 6.2.2009 kl. 08:50

3 identicon

Jenný heldur þú að Steingrímur J eigi eftir að bjarga öllu því sem bjarga verður fyrir íslensku þjóðina. Mér finnst þú stundum tala eins og þessi maður sé "Dýrlingur" og ef hann getur það ekki getur engin það. Það verður gaman að fylgjast með þegar þú sérð að hann er eins og allir aðrir sem fá völd. Fer fjótlega að gera það sem auðmenn vilja.

Þórður Möller (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 09:14

4 Smámynd:

Já hann Steingrímur Joð gerir örugglega það besta úr þessu - engin hætta á öðru

, 6.2.2009 kl. 09:50

5 Smámynd: Anna

Mer finnst hvalurinn æðislegur. Og Japanar eru óðir í hann enga eta þeirr allt sem kjafti kemur. En við þurfum kannski að fara eta hann meir í kreppunni. því fólk á lítinn pening.

Hafið þið reynt að steikja hvalkjöt eins og steik m m m

Steingrímur, ja hann mun ekki láta neinn vaða yfir sig. Hann er sá eini sem vill uppræta spillingu.........ég segir bara gangi honum vel. Bara flott mál.

Anna , 6.2.2009 kl. 10:24

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þórður: Þú fullyrðir út í bláinn.  Ég held ekki að Steingrímur J. bjargi öllu.  Ég hef gagnrýnt hann blákalt hér á þessari síðu og ég hef ENGA manneskju í dýrðlingatölu.

En er ég feginn að VG situr við völd?

Já, ertu með betri tillögu.  Sjálfstæðisflokkinn áfram að skemma og eyðileggja?

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.2.2009 kl. 11:42

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég var líka rekin úr fiskvinnslu á sínum tíma fyrir að neita að vinna kasúldin karfa, sem átti að fara til manneldis....í Rússlandi.  Var samt tekin í sátt aftur þar sem fiskmatsmaður kom og lét henda 3ja daga unnum afurðum í gúanó

Ég hef engar áhyggjur af þessu hvalveiðimáli...

Sigrún Jónsdóttir, 6.2.2009 kl. 11:44

8 identicon

reyndar stóð han ofaná hval á myndinni, 3 kvekendum meira að segja, hann var ekki að skera eitt eða neitt. Var vörubílstjóri kappinn, er það glæpur?

Skil að lesblindir geti gert þessi mistök, Steingrímur skutlaði hvölum, skutlaði ekki hvali.

Hefði búist við þessum skilmisingi frá Heimski L Fjeldskeð en ekki þér.

VIgnir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.