Leita í fréttum mbl.is

Látum ekki liggja á milli hluta

Látum liggja á milli hluta hversu siðlaust það er að koma eignum sínum í skjól með því að skrá þær á eiginkonurnar.

Siðlaust og aumingjalegt.

En látum ekki liggja á milli hluta að komast til botns í öllu því sem þessir vesalingar hafa gert þegar þeir gerðu sér grein fyrir að skipið var að sökkva og þeir hófu aðgerðir til að bjarga Armaníklæddu rassgatinu á sjálfum sér.

Látum ekki liggja á milli hluta að rannsaka jakkafötin frá A-Ö.

Jafnvel þó það kosti.

Þó ekki væri til annars en að læra um mannlegt eðli og til að fyrirbyggja að hörmungarnar sem við tökumst nú á við, fólkið í landinu, geti aldrei endurtekið sig.

Aldrei nokkurn tímann.


mbl.is Fleiri bankamenn skráðu eignir á ættingja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei við skulum einmitt ekki láta þetta liggja milli hluta, heldur hjálpa þeim við að setja þetta allt saman upp á borðið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2009 kl. 11:15

2 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Nei...upp með allt...tæma vasana...sannleikann...ekkert nema sannleikann....engir afslættir gefnir takk....

Bergljót Hreinsdóttir, 30.1.2009 kl. 11:48

3 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sælar, þetta er hræðilegt ástand sem ríkir hér á landi, það er eins og við þegnarnir séum aukaatriði.  Hér hafa menn eyðilagt grunnstoðir þjóðfélagsins.  Mér finnst eins og um landráð sé að ræða.  Hvað gera samfélög við landráðamenn?

Hafiði góðan dag.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 30.1.2009 kl. 12:04

4 identicon

Nohhh, kemur ekki inn manneskjan sem vildi fá FBI í málið... ekki veit ég hvort Obama sé viljugur til að breyta þannig hlutverki FBI með öllu en við sjáum til.

En Jeffós, ég vil standa fyrir átaki til að koma mönnum úr teinóttu í röndótt á vegum ríkis.

Vignir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 12:44

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég styð það... þetta með úr teinóttu í röndótt!

Hrönn Sigurðardóttir, 30.1.2009 kl. 12:49

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vignir: FBI?  HA?? 

Drengur þetta gengur ekki allt út á föt júnó, þetta er síros sjitt.

Hrönn: Þið eruð bæði of upptekin af teinóttu og þverröndóttu.  Djísús.

Múha.

Takk öll sem hafið talað af ábyrgð, festu, einurð og lagni.

Jájá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2009 kl. 14:07

7 identicon

Sástu bloggið hennar Ásthildar um ráðherrann sem kom á Þorrablót??

Ingibjörg Þ. Þorleifsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 14:20

8 identicon

Ásgerður Jóna vildi á bloggi sínu fá FBI í að rannsaka mál hér. En til þess þyrftum við að sjálfsögðu að verða ein stjarnan í fána USA.

Vignir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 14:40

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ingibjörg: Já, makalaust.

Vignir: Ókei, hélt að ég hefði í svefni verið að þrugla um þetta, en nei hjá mér hefði það defentlí verið KGB.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2009 kl. 15:02

10 identicon

Eða LSD á góðum degi, svona á hippaárunum alla vega!

vignir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 15:03

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

V: Varð aldrei svo fræg að prófa það, en prófaði flest annað sem á vegi mínum varð á þeim árum, sko hið kemíska á veginum ásamt því ræktaða offkors.

Að öðru leyti var ég eins og heilög Jóhanna (af Örk eða Alþingi, bara að velja).  Heilagleikinn stóð aftan úr mér eins og blóðbuna, ég er að segja þér það maður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2009 kl. 15:13

12 identicon

Ef þú værir eins og heilög Jóhanna af Alþíngi þá værirðu fyrir sushy-ið

btw, hún er frábær

Vignir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.