Leita í fréttum mbl.is

Hver hefur sinn djöful..

Hver hefur sinn djöful að draga.

Íslenska ríkisstjórnin situr uppi með sjálfa sig.

Íslenskir mótmælendur sitja uppi með jólasveininn og friðarhöfðingjann Ástþór Magnússon.

Sem reyndar lætur ófriðlega.

Hver sagði að lífið væri auðvelt?


mbl.is Lá við að fundurinn leystist upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Það er nóg af jólasveinum á Íslandi þó að yfirjólasveinninn Ástþór sem ég held að allir séu komnir með uppí kok af sé ekki að ybba gogg líka. Kv. Tótinn

Þórarinn M Friðgeirsson, 9.1.2009 kl. 12:10

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða helgi Jenný mín, er Dúa hætt enn einu sinni??

Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 12:50

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ég skil ekki aðgerðasinna og mótmælendur sem eru að væla yfir framkomu Ástþórs. Aðgerðir Ástþórs vekja alltaf athygli og hann er eini íslendingurinn sem er landsþekktur fyrir pólitískar aðgerðir sínar og þær hafa meira að segja náð að vekja athygli pressunnar erlendis.

Þrautseigla hans fer að jafnast á við Helga Hós.  Af þeim aðgerðarsinnum sem blogga eru t.d. blogg Ástþórs langvinsælast og um fáa blogga aðrir bloggarar jafnmikið.  Mótmæli Ástþórs eru svo kraftmikil að svona venjulegum mótmælendum er nóg boðið og þeir vilja ekki leyfa honum að vera með. Kannski er Ásþór að misskilja alla þessa athygli sem hann fær. Kannski tekur hann hana sem hvatningu til frekari dáða. Hann eins og fleiri, heldur kannski alla viðhlæjendur vini sína. Svo er greinlega ekki. Sumir eru greinilega að hlægja að honum frekar en með honum. Það skyldi þó ekki vera svo um fleiri svokallaðra aðgerðasinna?

Alla vega er árangur af mótmælum þeirra líkt og þeim þöglu og hálfþöglu hingað til nánast enginn. Enginn hefur vikið, Davíð stjórnar enn á bak við tjöldin úr sínum fílabeinsturni, krafan um kosningar er orðin að skiptimynt í Evrópubandalagsmálinu í höndum samfylkingarinnar og þeir sem komu landinu á kaldan klaka fjárhagslega, horfa glaðhlakkalegir  á almenning frjósa fastan á rassinum við skuldaklafann. Sjálfir eru þeir frjálsir sem fuglinn.

And life goes on.....

Svanur Gísli Þorkelsson, 9.1.2009 kl. 14:09

4 Smámynd: Gulli litli

Ég sem hélt að jólasveinar væru bara plat.

Gulli litli, 9.1.2009 kl. 15:14

5 Smámynd: Heidi Strand

Ásþór er ekki aðalmálið og látum hann ekki spila aðalhlutverk í okkar tilveru.
Ég óska jólasveininn góða ferð upp til fjalla og bið að heilsa heim.

Heidi Strand, 9.1.2009 kl. 16:03

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég tel Ástþór ekki vera aðalmálið en hann er á skjön við allt og alla.

Mér finnst jólasveinastöntið algjörlega glatað og til þess eins fallið að hleypa fundinum upp í vitleysu.

Ekki að það sé bannað sko, hann er bara á sjálfshátíð elsku karlinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.1.2009 kl. 16:17

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

sjálfshátíð? Er það eilíf árshátíð?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 19:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985735

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband