Leita í fréttum mbl.is

Helvítis fokking fokk

Það má svo sem yppa öxlum eins og utanríkisráðherra gerði í Kastljósi í gær og halda því fram að stjórnmálasambandsslit skili engu.

Þá er ég að tala um stjórnmálaslit við morðingjamaskínuna Ísrael.

Utanríkisráðherra talaði um að það gegndi öðru máli ef alþjóðasamfélagið gripi til slíkra aðgerða.

Ég er að sjálfsögðu ekki sammála.  Finnst þetta léleg afsökun til að gera ekki neitt.

Það vekur alltaf gífurlega athygli þegar þjóð slítur stjórnmálasambandi við aðra.

Auðvitað vegna þess að það úrræði er bara nýtt sem algjör þrautarlending.

Ef fjöldamorð á börnum og almennum borgurum gefur okkur ekki ástæðu til að grípa til sterkra viðbragða, þá veit ég ekki hvað gæti orðið ástæða til stjórnmálasambandsslita.

Mér finnst hver einasta þjóð sem horfir á útrýmingu á Palestínumönnum án þess að gera nokkuð vera sek um alvarlegt siðleysi.

En Íslendingum er ekki oft nóg boðið í alþjóðasamhengi.

Ekki þó á okkur séu sett hryðjuverkalög og við sett á lista með Al Queda og öðrum glæpamönnum.

Ég eins og fleiri á orðið ekki lýsingarorð til að koma til skila líðan minni á svo mörgu sem fer fram á hinu svo kallaða "Nýja Íslandi" sem utanríkisráðherra vill meina að sé ekki enn orðið til.  Reyndar er ég sammála henni, það hillir ekki einu sinni undir það.

Ég tala vart við nokkurn mann þessa dagana sem lýsir ástandinu öðruvísi með hinum fleygu orðum áramótaskaupsins:

HELVÍTIS FOKKING FOKK!

Meira að segja Bingi skrifar færslu með þessari fyrirsögn.

Það er þá best að ég safnist í hópinn.

Helvítis fokking fokk.

Viðtalið við ISG


mbl.is Ísrael svarar skeytum Líbana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er auðvitað sammála þér Jenný en ISG getur ekki einhliða slitið stjórnmálasambandi. Norðurlönd bíða í raun eftir nýjum forseta í Bandaríkjunum. Vond bið.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 09:26

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Helvítis fokking fokk

Jónína Dúadóttir, 8.1.2009 kl. 09:46

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

HFF

Hólmdís Hjartardóttir, 8.1.2009 kl. 09:58

4 identicon

Hérna er mjög góð fréttaskýring af ástandinu þarna.  Fréttaflutningur á Íslandi hefur verið mjög einhliða af þessu máli og það er nauðsynlegt að þetta komi líka fram.

 http://www.amx.is/frettaskyringar/1919

Þórir (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 10:07

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér fannst Ingibjörg Sólrún standa sig afar illa í Kastljósinu í gær.  Ég held að hún ætti að fara í frí og eftirláta öðrum að díla við ástandið.  En sennilega treystir hún engum fyrir valdinu.  Það er akkílesarhæll margra að halda að þeir sjálfir séu ómissandi.  Hún er alveg að missa kúlið.  Og þegar hún spurði Helga hvort hún ætti að fara pikka út ein og til að bera ábyrgð, fékk ég alveg nóg.  Þetta er engum að kenna, enginn á að bera ábyrgð.  Og þau ætla að slímsitja hvort sem Ekki- þjóðin vill eða ekki. 

En ég hef þá trú að nú fari að fjölga í mótmælum.  Hryðjuverk heilbrigðisráðherra kemur illa við fólk, og svo er ástandið að versna meir og meir og ekkert sýnilegt verið að gera.  Þau sanka vandræðunum að höfði sér foringjarnir uns þau ráða ekki neitt við neitt. 

Hér á Ísafirði stefnir í öflug mótmæli á torginu á laugardaginn.  Síðast var bara byrjunin, nú verður þetta betur undirbúið og ræður haldnar.  Ætli mótmælin breiðist svo ekki út um landið.  Við erum seinþreytt til vandræða, en fólk er farið að finna þetta allt á eigin skinni, og þá brestur stíflan. 

Já ég tek undir þetta Helvítis fokking fokk!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2009 kl. 10:32

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Helvítis fokking fokk indeed!

Rut Sumarliðadóttir, 8.1.2009 kl. 11:36

7 Smámynd: halkatla

Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað "vinur" Ísraels og þegn/leiksoppur USA, og ISG er ekki nógu þorin til að geta dílað við það. En SJS og ÖJ höfðu rétt fyrir sér um Hamas og þetta allan tímann. Ísrael er dautt fyrir mér, ég vona að við slítum öllum samskiptum milli landanna. Hjúkk samt að við erum ekki í öryggisráðinu núna - úff, þá hefðum við skriðið fyrir Ísrael og þeim, það hefði orðið sjónarspil vegna þess hve miklir fáráðlingar fulltrúarnir okkar eru... Fólk hér hefur áratugum saman bara kosið til yfirvalds eitthvað helvítis fokking fokk, mun það einhverntímann læra?

halkatla, 8.1.2009 kl. 12:13

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það duttu allar dauðar lýs úr hausnum á mér í gær þegar ég horfði á viðtali'ð við Ingibjörgu Sólrúnu. Hún ætlar ekki eitt fet nálægt réttlæti eða því að framfylgja lögum í þessu æandi og yppir bara öxlum og varpar fram fáránlegum mótrökum við alvarlegum og aðkallandi spurningum. Hafi einhver verið í vafa um að aðalmál valdhafa er að halda völdum og spillingaröflunum á sínum stað..ætti sá hinn sami að vita betur núna. Ábyrgðin verður aldrei öxluð af þessu liði..ALDREI..og núna verðum við að bera þau út hvert af öðru. Við höfum ekkert val fólk. Ekkert!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.1.2009 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband