Leita í fréttum mbl.is

Ég er alki og nikótínfíkill

 

ulpa

Ég er alki, ég get dílað við það.  Ég vinn í að vera edrú og ég höndla það prýðilega.  Mér hefur sjaldan liðið betur ef ég á að vera skammarlega hreinskilin. 

Ég er nikótínfíkill og ég get ekki dílað við það.  Ég vinn ekki í að hætta en það má segja mér til nokkurra málsbóta að ég hef minnkað það um meira en helming eftir að ég flutti hér niður í Teigahverfi og fer út til að reykja.

Ég er ekki hrifin af úlpum, hef meira að segja skrifað um það heitar færslur en þær voru skrifaðar fyrir kreppu.  Á þeim tíma sem maður gat leyft sér að vera með lúxusvandamál með dassi af attitjúdi.

Og enn er ég að ganga í gegnum úlpuhaturstímabil.  Hvað get ég sagt, veðráttan gerir mér hluti.

Ég verð nefnilega að klæðast einni forljótri og þræl hlýrri við mína nikótíniðkun úti í garranum.

Í úlpu missir kona kvenleikan og í mínu tilfelli gerast fleiri og stórkostlegri útlitsbreytingar á mér en mér er unnt að þola til langframa.

Sjáið fyrir ykkur kúlu.  Sjáið svo fyrir ykkur konu.

Já, rétt skilið ég verð kúlukona.

Þess vegna hef ég tekið ákvörðun.

Ég verð búin að drepa í fyrir jól.

Það er ekki hægt að vera hipp og kúl í vatteraðri úlpu með skinnkant á hettu.

Bara alls ekki.

Það er heldur ekki hægt að beina fingri ásakandi að t.d. eiginmanni og skamma hann fyrir umgengni eða eitthvað.

Því viðkomandi eiginmaður hristist bara af hlátri og segir; ekki reyna að vera ábúðarfull í þessum klæðnaði.  Það missir algjörlega marks.

Mark my words, ég verð hætt að reykja fyrir jól.

Cry me a river


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

You need a huge hug.

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 23.11.2008 kl. 21:34

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sko sem einn fíkill við annann.

Ég reykti á við meðal kolatogara í mjög mörg ár, nokkuð fleiri en ég vil muna.

Mér tókst að losna við fíknina eftir að ég dópaði .

Dópið er eitthvað nýtt stöff, sem læknar vísa á.  Ekki Ziban heldur eitthvað annað.

Maður dópar nokkru fyrr en máður drepur í.  SVo ákveður maður hvenær maður á að drepa í.  Mér tókst að drepa í efti að hafa þurft að beita mig hörðu ða halda út þar til DAGURINN rann upp.

Hef verið reyklaus síðan 10 des í fyrra, með einni undantekningu.

Sko nebblega, sko, ég var í sumarhúsa hverfinu mínu, pínu í glasi, svona 5 bjórar.  Var boðið að hluta á góðan Blues, Big Moma Thronton, Slow hand, Janis og mmmmmmmmmmm margir aðrir.

ég sagði nei við Jónum en reykti nokkrar löglegar.

Ekki alveg niðurbrotin en samt pínu ánægðu r að hafa ekki troðið í eina feita.

Fáðu þér Dópið og losnaðu við landbúnaðarafurðir fátækra bænda í SAmeríku.

miðbæjaríhaldið

getur nú hlustað á urrandi Blues án tóbaks,  Jibbí

Sendir mjúkar kveðjur sem strýkur vanga þinn í hluttekningu.

Það er EKKI bara verið að segja bless við tóbaksvöndla, það er verið að fara í skilnað við VIN til áratuga.

Þetta fatta þeir ekki sem ekki eru fíklar í allt sem gott er, Rumba, Jass, Rock og fl, sem inniheldur hreyfingu mjaðma og fl búkhluta

Bjarni Kjartansson, 23.11.2008 kl. 21:37

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Karlinn minn er búinn að sækja um að komast aftur á Reykjalund og það getur tekið tímann sinn að fá svoleiðis umsókn í gegn. En við erum búin að ákveða að hætta að reykja þegar hann fer þangað. Hvort sem er bannað að reykja á Reykjalundi svo um að gera að nota tækifærið.

Helga Magnúsdóttir, 23.11.2008 kl. 21:42

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er búið að eyða skrilljónum í forvarnir og kvikindisskap og mannvonsku gagnvart reykingafólki án nokkurs árangurs og svo var lausnin alltaf fyrir framan okkur ... ljót úlpa!

Guðríður Haraldsdóttir, 23.11.2008 kl. 21:48

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fáðu þér bara fallega kápu!

Hrönn Sigurðardóttir, 23.11.2008 kl. 22:08

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Oh, hvað ég skil þig.  Í mínu tilfelli er það forljótt vínrautt prjónasjal, sem fer með mér hvert sem ég fer.....ef ske kynni að maður þurfi að fara út

Sigrún Jónsdóttir, 23.11.2008 kl. 22:18

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

.... I cry a river over yoooou.....
Er það ekki svona annars?

Taktu systir mína með þér í þetta... það er á engan hátt töff að reykja - það var það í den kannski en ekki núna Jenný mín, og alls ekki fyrir konur sem finnst ekki töff að vera í úlpu...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.11.2008 kl. 22:36

8 identicon

Þurrir alkar reykja sirka tvo þriðju af öllum sígarettum á Íslandi og drekka sjö tíundu allra kaffibolla ef eitthvað er að marka AA fundi og Vogara. Það sannar eiginlega sálfræðilegar kenningar um poly-addiction sem ég aðhyllist en það er smá útúrdúr ;)

Sumir segja Naltrexone vera lykilinn að framtíðarlausn á þessum vanda. Lyfið kæfir vímuáhrif heróíns og aðra ópíóða og rannsóknir virðast sýna að það virki gegn áfengis- og tóbaksfíkn. Þær niðurstöður munu þó enn vera nokkuð umdeildar þó mér skiljist að tekist hafi að endurframkalla þær.

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 22:41

9 identicon

Já, og svona btw, þá var statistíkin hér að ofan auðvitað bull gripið úr lausu lofti.

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 22:42

10 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Thú átt alveg eftir ad gera thetta leikandi. Hef trú á thér.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 23.11.2008 kl. 23:10

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þega ég hætti eftir yfir 20 ára reykingar með nauðsynlegum hléum á meðgöngu-og brjóstagjafatímabilum, þá ákvað ég dagsetningu og undirbjó mig með sólarhringsplástrum sterkasta í 3 vikur, svo næststerkasta, og svo minnst sterkasta, og eftir 9 vikur þá kveið ég því rosalega að hætta að nota plástur ég var svo sannfærð um að ég mundi falla.-  En nei - nú 18 árum síðar, get ég ekki skilið hvernig ég lét sígaretturnar gjörsamlega stjórna lífi mínu í öll þessi ár. -

En það sem meira er,  ég er búinn að græða fjórarmilljónirogáttahundruðþúsundkrónur,  sem ég notaði sem útborgun í íbúð. - Og utanlandsferð með fjölskylduna. - Því ég lagði reykingapeningana inn á bók.

Gangi þér vel Jenný Anna ég er alveg handviss um að þér tekst þetta. - Úþví mér tókst að hætta, þá tekst þér að hætta.-  Ég er nefnilega algjör nikótínfíkill.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.11.2008 kl. 23:34

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Nú fer ég að skilja af hverju svona fáir hafa tekið mark á mér í gegnum tíðina....

Prófið annars að fara ómálaðar í úlpu inn í tískubúð...

Þetta hefur samt lagast frá því að allt kvenkyns átti að vera dömulegt.

Greta Björg Úlfsdóttir, 23.11.2008 kl. 23:37

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Gleymdi að segja: Gangi þér vel!

Greta Björg Úlfsdóttir, 23.11.2008 kl. 23:38

14 identicon

Ég var buinn að vera edrú í um það bil 9 ár þegar ég gafst upp á tóbakinu (reykti tæpa 2 pakka á dag í um 25 ár það eru 11 ár nuna í feb.) ég tók á þessu með sömu meðölum og drykkjunni ég náði mínum botni og hreinlega gafst upp.

Gangi þér vel þetta verður leikur þegar þu ákveður þetta

Loki (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 23:42

15 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Ég elska konur í úlpum sem reykja,það er eitthvað svo sjarmerandi við það.

Konráð Ragnarsson, 23.11.2008 kl. 23:45

16 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk takk fyrir mig elsku Jenný mín  Sleepingog góða nóttina mín kæra

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.11.2008 kl. 00:27

17 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

You go girl... og laus við úlpuna geturðu farið að ota putta aftur.

Jóna Á. Gísladóttir, 24.11.2008 kl. 00:43

18 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Gangi þér vel Jenný, ég veit að þú getur þetta. Ég hef sjálf verið reyklaus síðan í maí, ég var reyndar geðveik í 2 mánuði  en mig hefur ekki langað í síðan...mig langar að ráðleggja þér að tala við Valgeir Skagfjörð, hann er með frábær námskeið þar sem löngunin er hreinlega tekin frá fólki, ekki ósvipað og í meðferð...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 24.11.2008 kl. 01:04

19 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Kraftur í þér.  Hef fulla trú á því að þú getir þetta, enda er þetta ein ljótasta úlpa sem ég hef séð.  Ef þín er svo enn ljótari þá er málið bara á einn veg - henda úlpunni og rettunni. 

Get því miður ekki sagt neinar hetjusögur af mér.  Reyndi zyban og fór á taugum.  Reyndi campix og það drap ekki hjá mér löngunina sem skyldi. Svo en er ég í fjötrum nikótínfíknarinnar. Úlpan mín er ekki nógu ljót og ég er vön því að ganga í úlpum af því að ég er soddan kuldakreista.

Ég er samt fullviss að ég finn mína úlpu á endanum.

Goooooood luck - þú hefur það sem þarf.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 24.11.2008 kl. 01:14

20 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

Gangi þér vel þetta er hægt.

Gunnar Gunnarsson, 24.11.2008 kl. 01:25

21 Smámynd: María Guðmundsdóttir

gott hjá thér, gangi thér vel..en thetta er andskoti erfitt..prófadi i sumar og féll harkalega svo marbletturinn sést en á rakkatinu....en thú rumpar thessu af..gengur nottlega EKKI ad vera i svona ljótri úlpu vid thessa idkun

hafdu góda viku Jenný

María Guðmundsdóttir, 24.11.2008 kl. 06:12

22 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jæja já góðan daginn.  Sko mín undirbúningsvinna fór næstum öll í hundana í gær vegna þess að andsk.... pakkinn var of nálægt mér.

  Ég skil alveg þetta úlpudæmi, svona líður mér þegar ég heimsæki dóttur mína á Íslandi. Bara eins og fífl, standandi í norðangarra í dúnúlpu með hettu eins og umrenningur.

Hér reyki ég inni en bara á vissum stöðum.  Hósta upp lifur og lungum á hinum stöðunum. 

Gott að lesa innlitin hér að ofan þau berja í mann kjarkinn. 

Er farin að telja niður dagana og fæ hroll bara við tilhugsunina um reyklausan dag. 

Best að fara að lofta hér út. 

Ía Jóhannsdóttir, 24.11.2008 kl. 09:03

23 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég vil sko fá að reykja mínar sígarettur í friði uppí rúmi undir sæng þar sem er hlýtt og notó, engin úlpa sko! .. um leið og ég teygi mig í snakkið sem ég dýfi í majonesídýfuna og bleksvartan kaffibolla númer 10...  ...  p.s. áttu ekki pels?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.11.2008 kl. 09:30

24 identicon

Ég á konu sem fer létt með að vera kynþokkafull í úlpu!

Pjétur G (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 11:06

25 Smámynd: Laufey B Waage

Ég er sannfærð um að þér tekst það sem þú ætlar þér.

Ég þekki einn sem var búinn að reyna oft að hætta, en tókst það loksins þegar hann notaði lyfið Champix. Það svínvirkar víst. 

Laufey B Waage, 24.11.2008 kl. 12:02

26 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gangi þér vel að ná tökum á nikótínfíkninni. (Ég er hins vegar alveg viss um að þú ert viðbjóðslega sæt kúla en farðu ekki lengra með það.)

Steingerður Steinarsdóttir, 24.11.2008 kl. 12:10

27 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir ofboðslega skemmtileg innlegg og allar ráðleggingarnar.

Ég neyðist greinilega til að hætta ósómanum, ég get ekki verið minni manneskja en þið öll.

Pjétur G:  Þú ert dúlla.

Annars er ég í kasti, þið eruð ógeðslega fyndin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.11.2008 kl. 12:27

28 identicon

Ég var föðmuð í gær.Svo var sagt við mig,ummmmmmmm góð lykt af þér.Ekki þessi þunga reykingarstybba sem fylgdi þér einu sinni. Gangi þér vel að drepa í úlpukúlukonaMæli með því að fólk hætti að reykja,

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 12:47

29 identicon

Djö...líst mér á þig!!

Alva Kristín Ævarsdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 2985630

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.