Leita í fréttum mbl.is

..og ég drakk

Á RÚV segja þeir frá því að óvirkir alkar séu að falla þessa dagana vegna kreppunnar.

Vogur fullur.

Vogur er alltaf fullur - af fólki á ég við svo ég sé ekki alveg hvar þessi breyting á að koma fram.

Reyndar var mér sagt í meðferð oftar en einu sinni að allar sveiflur bæði upp og niður séu okkur ölkum hættulegar.

Ég drakk;

af því það rigndi, af því sólin skein, af því ég var blönk, af því ég átti peninga, af því ég var í fríi, af því ég komst ekki í frí til að drekka til að geta haldið upp á að vera í fríi.

Ég var svöng og ég drakk.

Ég var södd og ég drakk.

Ég gat ekki sofið og ég drakk.

Ég svaf of mikið og ég drakk.

Ég var leið og ég drakk.

Ég var glöð og ég drakk.

Ég drakk þangað til að ég drakk ekki lengur.

Myndi einhver segja að ég hafi verið í þörf fyrir meðferð?

Hm....?

Kreppunni slær auðvitað alls staðar niður.

Sorglegt.

Óvirkir alkar að falla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Ég er af fátæku kynslóðinni og hef ekki með nokkru móti efni á að verða alki. 
Langar heldur ekkert að eiga pening og vera alki.
Held ég sé bara sátt við mig eins og ég er.

Knús á þig

Hulla Dan, 20.10.2008 kl. 19:20

2 Smámynd: Kreppumaður

Bíddu er þetta mitt blogg?  Sé bara orð eins og áfengi og kreppa.  Ég smita út frá mér eins og faraldur.

Kreppumaður, 20.10.2008 kl. 19:22

3 Smámynd: Magnús Jónsson

Jenný: þú ferð á kostum þegar þú vilt það við hafa, góð færsla hjá þér .

Magnús Jónsson, 20.10.2008 kl. 19:54

4 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Alkinn dettur ekki um stærstu þúfurnar heldur þær minnstu.Alkinn fer ekki að fala fyrr en allt er yfirstaðið og farið að rannsaka málið þá fer ýmislegt að koma upp og þá getur allt farið af stað og alkinn dettur íða

Guðjón H Finnbogason, 20.10.2008 kl. 19:57

5 identicon

Alltaf tilefni til að drekka, alveg þangað til að það er það ekki lengur

Ofurskutlukveðja,

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 20:46

6 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Þetta er alveg frábærlega skrifað hjá þér, elsku Jenný, og auðvitað alveg eins og alkinn hugsar. Allt verður að góðri ástæðu til að drekka.

Og það er rétt hjá þér að Vogur er alltaf fullur og nokkurra mánaða biðlistar líka, þótt auðvitað hafi þeir alltaf einhver bráðapláss til taks. Ég vann þarna í ca 15 mánuði og ég man aldrei eftir því að rúm hafi staðið autt í húsinu þann tíma.

Vonandi stöndum við nú öll af okkur storminn samt, bæði óvirkir, virkir og aðrir.

Knús á þig

Lilja G. Bolladóttir, 20.10.2008 kl. 20:49

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

 Jenný mín þú ert yndislegég er mikið fyrir knús svo að ég sendi þér hlýjan faðm af ást og hlýju

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.10.2008 kl. 21:35

8 Smámynd: Villi Asgeirsson

Drank till I was thirsty again, eins og Sheryl Kráka söng um árið.

Villi Asgeirsson, 20.10.2008 kl. 22:03

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Skil þig!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 20.10.2008 kl. 22:06

10 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Stórt knússkemmtilega, duglega kona.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 20.10.2008 kl. 22:32

11 Smámynd: Kreppumaður

Er það svona sem er talað í saumaklúbbum - knús - hjarta - knús á þig- faðmlag á þig kerling...?  Guð hvað ég er heppinn að vera karlmaður, okkar saumaklúbbar eru að drekka bjór og horfa á fótbolta og FAÐMAST þegar það er skorað...  

Kreppumaður, 20.10.2008 kl. 22:37

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Eureka!! þarna er komin ástæðan fyrir gegndarlausri drykkju hjá mér undanfarnar helgar. Og enn ein framundan. Heldurðu ekki barasta að karlinn sé að verða fimmtugur á laugardaginn.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.10.2008 kl. 23:17

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég trúi þinni upptalningu á ástæðum fyrir drykkjunni, en ég skil vel SÁÁ menn nýti hvert tækifæri, sem getur stutt þá í óskum eftir hærri fjárframlögum.......og kreppan getur vel verið ein af ástæðum aukinnar drykkju

Sigrún Jónsdóttir, 20.10.2008 kl. 23:40

14 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Þetta er snilldar játning hjá J.A.B., og segir allt sem segja þarf um hegðun alkans,

Þessi athugasemd hjá Sigrúnu er ekki alveg smekkleg og í bestafalli ósanngjörn

kv

Gunnar Þór Ólafsson, 20.10.2008 kl. 23:44

15 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gunnar Þór, ég var ekki að deila á SÁÁ....ég skil þá vel og styð þá.  Þeir þurfa sífellt að berjast fyrir fjármagni... og í kreppunni mun frjálsum fjárframlögum fækka, þannig að róðurinn mun verða þeim erfiður.

Sigrún Jónsdóttir, 21.10.2008 kl. 00:14

16 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég hef fengið fólk, á barinn til mín sem kom í leigubíl frá Vogi og datt íða.  Svo eru náttúrulega allir hinir sem halda bindindið og koma bara í kaffi til okkar.  Þeir fá stuðning frá hinum viðskiptavinunum.  Ég hef neitað að selja vín til fastakúnna sem kom beint af Vogi, sagði við hann ef þú ætlar að detta íða gerir þú það annarsstaðar   Svo gef ég ekki fólki sem hætt er að reykja síkarettur   Maður verður alltaf að reyna, að hjálpa fólki.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.10.2008 kl. 01:09

17 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Djö... er þetta flottur pistill. -

Held að þarna hafir þú akkúrat hitt naglann á höfuðið.   

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 21.10.2008 kl. 01:46

18 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Flottur texti og innihaldið enn betra.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 21.10.2008 kl. 08:20

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir innlegg.

Jóna: Hringdu í mig veisluboltinn þinn.

Kreppumaður: Ég er að skrifa fyrir þína hönd.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2008 kl. 08:22

20 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Mary Gauthier skrifaði og söng, I Drink:

He'd get home at 5:30, fix his drink
And sit down in his chair
Pick a fight with mama
Complain about us kids getting in his hair
At night he'd sit alone and smoke
I'd see his frown behind his lighter's flame
Now that same frown's in my mirror
I got my daddy's blood inside my veins

Fish swim
Birds fly
Daddies yell
Mamas cry
Old men
Sit and think
I drink

Chicken TV dinner
6 minutes on defrost, 3 on high
A beer to wash it down with
Then another, a little whiskey on the side
It's not so bad alone here
It don't bother me that every night's the same
I don't need another lover
Hanging 'round, trying to make me change

Fish swim
Birds fly
Lovers leave
By and by
Old men
Sit and think
I drink

I know what I am
But I don't give a damn

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 22.10.2008 kl. 04:49

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sveinbjörn: Hrein snilld.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.10.2008 kl. 07:03

22 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

já - og lagið má reyndar heyra á blogginu mínu.  Það er gaman að sjá þig á ritflugi (á blogginu) Gangi þér vel.

http://possi.blog.is/blog/possi/

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 22.10.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband