Leita í fréttum mbl.is

Að elska sig á Fésbók

 sjálfsdýrkandinn

Ég er ekki á Fésbók.  Ég hef ekki einu sinni skoðað umhverfið þar vegna þess að ég held að þetta sé meira fyrir ungt fólk, annars veit ég ekki afturenda um það.

Eitt er að minnsta kosti á hreinu,  100 milljónir manna eru með prófíl inni á bókinni.

Margar vinkonur mínar og dætur.  Nánast hver einasti kjaftur sem maður þekkir.

En ég þekki enga sjálfsdýrkendur persónulega.  Ekki svona alvöru að minnsta kosti.

Þekki reyndar fólk sem heldur reglulegar sjálfshátíðir en það er bara krúttlegt.  Fólk sem tryllist úr gleði og hamingju þegar það hittir sjálft sig fyrir.

Sko einfaldasta leiðin til að þekkja úr sjálfsdýrkendurna fram að þessu hefur verið að fylgjast með þeim horfa í spegil.  Þeir verða alltaf yfirkomnir af ást og aðdáun á eigin persónu og enda með því fara í heví sleik við sjálfan sig.

Jájá.

Hinir eiginlegu narsissistar eru hins vegar margir á Fésinu samkvæmt þessari rannsókn.

Þeir birta fjölda fegrandi mynda af sjálfum sér, smá kynferðislegar og svona.

Þeir eiga ógeðslega mikið af vinum og nú dettur mér í hug einn lögfræðingur, karlkyns sem er með óteljandi vini á bókinn.  Svo er mér sagt og nei, ég nefni engin nöfn.

Í viðtengingu segir orðrétt:

"Rannsóknin var gerð við Háskólann í Georgíu. Í ljós kom, að auðvelt var að bera kennsl á sjálfsdýrkendur meðal félaga á Facebook. Það voru þeir sem töldu flesta vinina og birtu opinskáustu myndirnar (oft kynferðislegar).

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar nota sjálfsdýrkendur samskiptavefi til að auka sjálfstraust sitt og hækka stöðu sína. Þeir þrífast best þegar öðrum fellur vel við þá strax við fyrstu kynni, og markmið þeirra er að virðast hafa leiðtogahæfileika, vera spennandi og kynferðislega aðlaðandi. Sjálfsdýrkendur telja sig einstaka."

Og:

"Almennt eru þeir lítið gefnir fyrir að mynda hlý, langvarandi og náin tengsl. Þeim er meira í mun að virðast svalir, vinsælir og dómínerandi,“ sagði Buffardi."

Nú verð ég eiginlega að skrá mig á bókina.  Ég er nefnilega að drepast úr forvitni.  Mig langar að máta liðið þarna inni við upptalninguna hér að ofan.

Úje, þetta er nú eitthvað bitastætt.  Maður getur ekki velt sér upp úr fjármálafarsanum 24/7.

Þetta er svokölluð pása í fréttum dagsins.  Ég er komin upp til að anda.

Ég kem að vörmu.

Er farin að pikka út sjálfsdýrkendur.

Ég - um mig - frá mér - til mín.

Narsissistinn.


mbl.is Sjálfsdýrkendur þrífast á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ægir

Jú ætli þetta eigi ekki við um fleiri enn fésbókargreyinn...

Ægir , 29.9.2008 kl. 15:04

2 identicon

Prófaðu að skipta út orðinu "Facebook" fyrir "Moggablogg" í fréttinni. Eflaust sami hluturinn.

Stonie (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 15:07

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Sko. Ég sá þig þarna á flakki um daginn.

Hvað varð af þér?

Þröstur Unnar, 29.9.2008 kl. 15:08

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vissi að ég væri að gefa færi á mér.

Ælofitt.

Úje.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.9.2008 kl. 15:28

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hlakka til að sjá þig á feisinu!

Ég er ekki sjálfsdýrkandi - því er ver og miður... ég hef meira af húmor fyrir sjálfri mér heldur en nokkurn tíman egói ( kannski meira af innra egói en ytra.. ).....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 29.9.2008 kl. 15:38

6 identicon

issi pissi pelamál.við verðum bara hér á moggabloggi enda ekki sjálfsdýrkendur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 16:02

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ó hvernig stendur á því að ég er þar?  Ég hef aldrei skráð mig.

Það hefur þá verið fyrir tveimur árum eða svo, sko áður en ég fór í meðferð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.9.2008 kl. 16:11

8 Smámynd: M

Ég er á FB með smá sýniþörf en alltaf í fötum Á fáa vini en er ekkert að safna uppí einhverja tölu til að þykjast vinsæl. Ég leita þig kannski uppi ef þú gerist virk

M, 29.9.2008 kl. 16:21

9 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er á feisbúkk, á 135 vini...ógó vinsæl að eigin hófsama mati, húsband á þó fleiri 140, við erum í keppni sko ! Set þó ekki neinar myndir inn þar sem ég er svo hógvær og af hjarta lítilát ! Skelltu þér bara á feisbúkk, það er ágætis afþreyging frá heimi sem versnandi fer og tímaþjófur dauðans, binn ðer sjáðu til !

Sunna Dóra Möller, 29.9.2008 kl. 16:30

10 identicon

Feisbúkk rúlar, fullt af liði þar sem maður hefur ekki séð í langan tíma. Ég er fullklædd á einu myndinni sem er af mér þar, mun setja nektarmyndirnar inn þegar ég er búin í átakinu og adda bara mínum allra, allra nánustu vinum. Ekki get ég gert að því þótt þeir séu margir. Ha?

Ibba Sig. (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 16:54

11 Smámynd: Gulli litli

Nú ætla ég að loka fésbókinni minni!

Gulli litli, 29.9.2008 kl. 17:12

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ætlarðu þá að fara að birta af þér nektarmyndir?

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.9.2008 kl. 17:17

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

..fara í sleik við sjálfa sig í speglinum..hahaha. Það sem þér dettur í hug kona. Ég er á fésbók og kann ekkert á það systemo. Kann ekki að setja þar inn mynd af mér hvað þá meir og myndi ekki heldur gera það þó ég ætti hana...nektarmyndina sko. En hana á ég að sjálfsögðu ekki.

samt skemmtilegt að þarna í gegn hef ég tengst vinum í útlöndum sem eg hafði misst af..

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.9.2008 kl. 20:36

14 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Heyrðu, ég held að ég hafi séð þig einmitt og sent þér vinasamþykki um daginn, þú ert nú meiri klókarrefurinn Jenný Anna!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 29.9.2008 kl. 22:01

15 Smámynd: Ragnheiður

Það er ekki orð að marka þessa konu

Ragnheiður , 29.9.2008 kl. 22:50

16 Smámynd: Steingrímur Helgason

Fézbók jamm, fyrir okkur únga fólkið jú, nektarmyndir, egó ...

Intreztíng....

Steingrímur Helgason, 29.9.2008 kl. 23:37

17 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 30.9.2008 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985712

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.