Leita í fréttum mbl.is

DD át kökuna mína!

 Chocolate_Mousse_Cake__strawberries

Í gær var hér fullt af skemmtilegu fólki.

Það var mikið hlegið og svo voru sumir sem gúffuðu í sig innflutningsgjöfinni sem HÚN kom með fyrir okkur húsband.  Hugsið ykkur móralinn.  Alveg: Ég ætla að gefa vinkonu minni þessa girnilegu frönsku súkkulaðiköku af því mig langar ógeðslega í hana og hef ekkert borðað í allan dag.

Ég er ekki að spauga.  Svona vini á ég. Hvað hef ég gert til að verðskulda þetta hvíta hyski?  DJÓK, ég á bestu vini í heimi.  Já þetta var hún DD.

Jabb.

Og hér var Jenný Una Eriksdóttir ásamt bróður sínum honum Hrafni Óla sem skríður um allt á maganum eins og ormur og ryksugar allt upp af gólfinu.  Dúllubarn!

Jenný Una varð hér eftir og ætlaði að sofa hjá okkur en eftir kvöldmatinn tók hún skyndilega þá ákvörðun að sofa heima.  Það var auðsótt mál og Hljómsveitin keyrði prinsessuna heim.

Þegar hún var á leið út kallaði sú þriggja ára yfir öxlina á sér:

Amma, villtu hringja í FORELDRANA mína og láta vita að ég kemur heim!

Halló, hvað ertu gömul barn guðs og lifandi?

Næst heldur hún ábyggilega fyrirlestur fyrir mig um nýjungar í skammtafræðinni.

Í gær var hún svo að bisa við að teikna eitthvað og hún var ekki ánægð með afraksturinn.

Ég get ekki gert´etta, þett´er VONLAUST!

Jájá við hér við hirðina verðum að vera gætin í tali þegar sumir eru viðstaddir.  Whistling

Allir út að hlaupa á meðan ætla ég að reykja mér til vansa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Æðisleg kaka og unaðslegt barn. Jenný Una er örugglega með alskemmtilegustu börnum sem ég hef "kynnst" og svo er hún líka svona íðilfögur.

Helga Magnúsdóttir, 28.9.2008 kl. 19:34

2 Smámynd: Karl Tómasson

Já kæra bloggvinkona, ekkert er dýrmætara en góðir vinir og ekki efast ég um að þú átt þá marga.

Litla ömmustelpan er bara ákveðin og hreinskiptin, rétt eins og amman. Þannig er það nú bara.

Það er ekkert alltaf toppurinn á tilverunni að vera hjá ömmu en samt svolítið oft.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 28.9.2008 kl. 19:35

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Ekki amalegt að vera skutlað heim af heilli hljómsveit.

Var´etta nokkuð Dúa Dásamlega sem gúffaði kökuna?

Þröstur Unnar, 28.9.2008 kl. 19:36

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 28.9.2008 kl. 19:37

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hmmmprffff Dúa hefur ekki ENN komið með köku til mín! Samt eru átta ár síðan ég flutti!!

Er það nú vinir sem ég á.......  

Hrönn Sigurðardóttir, 28.9.2008 kl. 19:52

6 Smámynd: Ragnheiður

Erða nú vinir sem ég er ! Kom ekki einusinni með köku til að éta sjálf !!

Sowwy....gast nú látið mig vita að ferðum DD..ég hefði kannski getað troðist í boðið

Ragnheiður , 28.9.2008 kl. 20:05

7 Smámynd: Ragnheiður

AF ferðum, ekki að

Ragnheiður , 28.9.2008 kl. 20:05

8 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 20:43

9 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús á þig elskulegust og góða nóttina

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.9.2008 kl. 21:20

10 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Jenný  ég er komin í hlaupaskóna....njóttu rettunnar

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 28.9.2008 kl. 21:22

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krumma: Run away.  Múha.

Dúa: Þú ást helminginn af innflutningsgjöfinni, það hefur verið fært til bókar.  DD þýddi Dúa Djöfullega í þessu tilfelli en ég þorði ekki að skrifa það, það eru nefnilega sumir í bloggheimum sem hafa ekki okkar stórkostlega og fínlega húmor.

Jenný er á kúk, piss og prump aldrinum.

Horsí: Ég læt þig vita næst, þe ef ég næ því.

Hrönn: Hvernig væri að baka eins og tvær rabbabarapæjur og koma í heimsókn? Sko eina fyrir mig, þig, Hljómsveitina og hina níu sem búa í húsinu, hina fyrir Dúu

Takk öll fyrir skemmtileg komment.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2008 kl. 21:30

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góð hugmynd Jenný!

Dúa! Það er rétt - ég var búin að gleyma því....

Hrönn Sigurðardóttir, 28.9.2008 kl. 21:34

13 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Haha

Þið eruð svo frábær öll.

Einar Örn Einarsson, 28.9.2008 kl. 21:44

14 Smámynd: Huld S. Ringsted

Má ég ekki bara reykja þér til samlætis?? nenni ekki út að hlaupa

Huld S. Ringsted, 28.9.2008 kl. 22:15

15 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gáfað barn í skemmtilegri fjölskyldu. 

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 28.9.2008 kl. 22:27

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Alltaf svo gaman í þínum bekk.

Guðríður Haraldsdóttir, 28.9.2008 kl. 22:46

17 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ætla rétt að vona að þú hafir hringt í foreldra eins og barn bað um. Ég hélt að seinna Dé-ið stæði fyrir drullusokkur en hafði ekki hugmynd um fyrra Dé-ið

Jóna Á. Gísladóttir, 28.9.2008 kl. 23:54

18 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jenný Una alltaf góð og Jenný Anna á góða vini

Sigrún Jónsdóttir, 29.9.2008 kl. 00:39

19 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

 +

Birna Guðmundsdóttir, 29.9.2008 kl. 01:24

20 identicon

Mmmmmm ... mig langar í ÞESSA köku - mikið!!!  Svo máttu skila til hennar Jennýjar Unu að hún sé yfirnáttúrulega mikið krútt

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 01:40

21 Smámynd: Hulla Dan

Hulla Dan, 29.9.2008 kl. 07:52

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna: Þetta er ekki alveg kakan sko en hún var nokkurn veginn svona og eftir mylsnunni að dæma (sem ég náði að roffa til mín) þá var hún unaðslega góð.

Jóna: Ofkors hringdi ég í mömmuna og lét vita en hitt foreldrið er enn í útlöndum í að taka upp plötu.

Takk stelpur fyrir frábær komment.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.9.2008 kl. 08:39

23 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér fannst kóksíróið bara mjög gott og hugsaði bara þess meira um dýrðarkökuna á leiðinni heim í blínum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.9.2008 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband