Leita í fréttum mbl.is

Flutningar gera manni hluti

Jájá, ég stend í flutningum og það upp fyrir haus.

Þetta stefnir í lengstu og fyrirhafnamestu flutninga í sögunni ef undan eru skildir fólksflutningarnir til Ameríku um árið.  

Auðvitað er allt í efsta stigi hjá mér.

Duglegast, mest, best, erfiðast og langbágtastast hjá  mér svo ég taki nú bara dæmi um fallegar stigbreytingar.

En ég verð eitthvað lítið við í þessari undramaskínu sem ég blogga á frá og með kvöldinu og fram á þriðjudag, en auðvitað eitthvað.

En ég kíki við og hendi inn færslu eftir getu frá nýjum höfuðstöðvum kærleiksheimilisins hér í borg.

Ég elska ykkur í ræmur, tætlur og renninga.

Líka ykkur sem mér er í nöp við en þeir eru margir.  DJÓK!

Sé ykkur lifandi eftir örskamma stund.

Tölvu verður kippt úr sambandi kl. 20,53 að staðartíma.

Flutningar gera manni hluti.

Það verður tíundað seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi þér vel

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 12:18

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Það besta við það að flytja er að maður lagar til í hinum ýmsu skúmaskotum og hendir helling af óþarfa nick nack drasli.

Gangi þér vel mín kæra. 

Ía Jóhannsdóttir, 14.9.2008 kl. 12:30

3 Smámynd: M

Gangi þér vel

M, 14.9.2008 kl. 12:55

4 Smámynd: Gulli litli

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur...

Gulli litli, 14.9.2008 kl. 12:59

5 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Gangi þér vel Jenný mín, flutningar eru jú púl og dýrir. Bendi þér á að kaupa Launamiðann í næstu sjoppu við nýja heimilið. Bið að heilsa

Eva Benjamínsdóttir, 14.9.2008 kl. 13:06

6 Smámynd: Helga Dóra

Úff, stend í þessu sjálf... Óþolandi annskoti..... En gangi þér vel....

Sérstaklega að lifa af tímann þangað til talvan fer í samband aftur...  Sá tími reyndist mér afar erfiður....

Helga Dóra, 14.9.2008 kl. 13:55

7 Smámynd: Helga skjol

Hehe þekki þetta þar sem ég er nýbúin að standa í þessu líka, en þar sem ég er svoddan tölvufíkill þá notaðist ég við netpunginn þangað til að netið kom inn hjá mér og það tók bara eina litla viku takk fyrir, gangi þér vel í flutningum

Helga skjol, 14.9.2008 kl. 14:31

8 Smámynd: Hugarfluga

Ertu farin úr Breiðholtinu? Láttu bara ekki pakka þér niður í öllum hamaganginum, Jenný mín.

Hugarfluga, 14.9.2008 kl. 14:51

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gangi þér vel

Jónína Dúadóttir, 14.9.2008 kl. 15:20

10 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Gangi þér vel Jenný mín,ekki veitir af, en það er sko ekki eitt það skemmtilegasta sem maður gerir  Þú ert vonandi ekki að flytja úr holtinu góða

Katrín Ósk Adamsdóttir, 14.9.2008 kl. 15:36

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég flutti síðast fyrir 23 árum og ákvað þá að næstu flutningar yrðu í kirkjugarðinn. Gangi þér vel með þína flutninga.

Helga Magnúsdóttir, 14.9.2008 kl. 15:53

12 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Helga klók... ætlar ekki að flytja aftur fyrr en svo er komið að hún þurfi ekki að lyfta litlafingri sjálf...   

Annars hittir Gulli litli naglann á höfuðið: "Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur."

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 16:19

13 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já thad góda vid flutninga er ad madur hendir alltaf helling af drasli sem madur er búin ad lura á i mørg ár jafnvel  

Gangi thér vel med thetta allt saman

María Guðmundsdóttir, 14.9.2008 kl. 16:32

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Gangi þér vel að flytja, hunang! Það eru komin tvö og hálft ár síðan ég flutti í himnaríki og enn hata ég pappakassa. Ef ég fæ sent úr Einarsbúð þá bið ég sendilinn að bíða á meðan ég tæmi kassann og taka hann svo með sér aftur. Argggg, hata pappakassa ...

Hlakka til að sjá næstu færslu og þá frá nýja heimilinu ... á meðan húsbandið tekur upp úr kössunum. Aldrei of illa farið með góðan mann, mundi það. Múahahahahhaha

Guðríður Haraldsdóttir, 14.9.2008 kl. 16:42

15 Smámynd: Dísa Dóra

Gangi þér vel skvís

Dísa Dóra, 14.9.2008 kl. 17:08

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Spennandi.  Ertu að koma niður fyrir snjólínu?

Sigrún Jónsdóttir, 14.9.2008 kl. 17:14

17 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Komin inn - tölvan hefur verið í láni.

Gangi þér vel eskan.

Edda Agnarsdóttir, 14.9.2008 kl. 18:33

18 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Þetta er eitt það leiðinlegasta sem maður þarf að gera, þ.e. að flytja, en á sama tíma líka eitt það besta sem maður gerir, því þá fær maður fresh start á nýjum stað, veit að allt er hreint og allt er raðað fínt í skápana..... allavega fyrstu mánuðina.

Gangi þér vel með allt saman. Verðuru þá ekki lengur Breiðhyltingur???

Lilja G. Bolladóttir, 14.9.2008 kl. 19:06

19 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gangi þér vel.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.9.2008 kl. 19:28

20 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég hef lengstaf talið mig vera með geðprúðara fólki en flutningar Jenný min, úff eru eitt það versta sem ég veit.  Þegar ég stend í flutningum er ég óþolandi, hárin á mér rísa af minnsta tilefni eins og á ketti þegar hann reiðist. 

Marta B Helgadóttir, 14.9.2008 kl. 21:15

21 Smámynd: Marta B Helgadóttir

...þú átt alla mína samkennd, gangi þér vel vildi ég sagt hafa

Marta B Helgadóttir, 14.9.2008 kl. 21:16

22 Smámynd: Brynja skordal

Gangi þér/ykkur rosalega vel og hlakka til að heyra hvar þið ætlið að setjast að með ykkar heimili

Brynja skordal, 14.9.2008 kl. 21:41

23 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Oh látið ekki svona!! Það er svo skemmtilegt að flytja! Tækifæri til að fara í gegnum dótið sitt, henda sumu og verða væmin yfir öðru.
Skemmtilegast af öllu er svo að koma dótinu sínu fyrir á nýja staðnum!

Ég elska að flytja! Er svo nýjungargjörn :)

Heiða B. Heiðars, 14.9.2008 kl. 21:45

24 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hey!! Ég vissi þetta!! Manstu hvað ég sagði við þig um daginn?? 

Hrönn Sigurðardóttir, 14.9.2008 kl. 22:16

25 Smámynd: Linda litla

Úfff.... þoli ekki flutninga, ég er 36 ára og er búin að flytja oftar en 36 sinnum.

Gangi þér vel að pakka niður, vonandi færðu hjálp við það.

Linda litla, 14.9.2008 kl. 22:22

26 Smámynd: Karl Tómasson

Það er ekki langt síðan að það þótti ekki gott afspurnar að skipta oft um vinnu. Í dag er það ekkert tiltökumál, það þarf ekki endilega að vera slæmt fólk. Harðduglegasta fólk skiptir jafnvel oft um vinnu, langar bara að breyta til.

Að flytja oft hefur nú löngum þótt dularfullt. Siggi og Magga eru alltaf að flytja, þau festa hvergi rætur, alltaf sama óreiðan á þeim.

Það tekur bara einn dag að flytja og satt að segja hef ég lúmskt gaman af því að innrétta og koma upp nýju heimili, það er líka ágætis tiltekkt í því.

Bestu kveðjur elskulega Jenný Anna og megi þér og þínum lýða sem allra best á nýja staðnum ykkar. Það er ekki gatan sem skiptir máli eða hverfið heldur lífið og tilveran innan veggja heimilisins.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 14.9.2008 kl. 23:46

27 Smámynd: Steingrímur Helgason

ok, þá hef ég heila tvo daga í að skrifa andfemínyzdabeljubloggerí á meðan.

Jíbbíækei...

Steingrímur Helgason, 15.9.2008 kl. 00:35

28 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Gangi þér vel.....!

Sunna Dóra Möller, 15.9.2008 kl. 08:21

29 Smámynd: Laufey B Waage

Oh ég er svo spennt að vita hvar nýja heimilið verður. Giska á 105 eða Þingholtin.

Laufey B Waage, 15.9.2008 kl. 10:05

30 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ji minn þetta er bara skollið á!!!!

Jóna Á. Gísladóttir, 15.9.2008 kl. 10:50

31 identicon

Var að koma til landsins og fyrstu fréttir af minni kærustu bloggvinkonu eru ekkert minna en flutningar!!!   Ég er að deyja úr forvitni.  Gangi þér vel elsku dúllan mín! Bestust  Blogga sjálf um ferðir mínar til útlanda von bráðar ef þú skyldi r vera forvitin, sem þú ert auðvitað - að eðlisfari - rétt eins og undirrituð, enda er það líka þannig sem maður vit-kast 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 12:00

32 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

"Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur." Endurtek þau fleygu flutningsorð.

Rut Sumarliðadóttir, 15.9.2008 kl. 12:00

33 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Gangi þér vel

Anna Margrét Bragadóttir, 15.9.2008 kl. 12:23

34 Smámynd: Adda bloggar

 gangi þér ofsalega vel.

ps....ég er vinur!

Adda bloggar, 15.9.2008 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 2985630

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.