Leita í fréttum mbl.is

Frá sjónarhóli konu

Ég settist við sjónvarpið með mínum ástkæra og var ákveðin í að horfa á handboltann.

Jafnvel þó að ég sé sannfærð um að þeir sem ég haldi með tapi.  Mér er sagt að svona hugsunarháttur sé meðvirkni á háu stigi.  Só?

Eftir fyrstu mínúturnar gat ég ekki meir, ég var friðlaus, vonir mínar vaknaðar af værum blundi.

Ég fór fram í eldhús og skrúfaði frá báðum krönum og byrjaði að þrífa.  Ég vildi ekki heyra hrópin í þulunum.

Við vaskinn hét ég á Paul Ramses, nokkur góðgerðarsamtök og Götusmiðjuna, bara ef við ynnum.

Svo þreif ég eldhúsið, hvern míkrósentimeter, á meðan fyrri hálfleikur rann í gegn.

Í hálfleik hætti ég mér fram úr eldhúsinu og spurði tíðinda.  Ég hentist inn aftur um leið og sá seinni hófst og hringdi í frumburð.  Hún er á fyrsta degi í sumarfríi.

Ég: Ertu að horfa.

Hún: Nei, ég get það ekki, þeir tapa ef ég horfi (jesús minn hún hefur tekið upp þennan eftir mér) og ég er að neyða mig til að horfa á sápu.

Og við möluðum og töluðum þangað til að húsband kallaði og sagði mér að við værum fimm mörk yfir og leikurinn væri að verða búinn eftir smá.

Ég: Er það öruggt?  Ég meina getur það tölfræðilega breyst?

Hb: Nei, kona og þú getur ekki haft áhrif á það þrátt fyrir að þú haldir að sól og máni, loft og lögur sé á þínum vegum.  Komdu.

Og ég settist fyrir framan sjónvarpið og horfði á síðustu mínúturnar og öskraði og gargaði og hoppaði og skoppaði.

Það er stundum gaman að fyllast þjóðernisstolti.

En það er beisíklí mér og frumburði að þakka að við unnum.

Við héldum okkur hlés.

En ég skulda hellings pening í áheit.  Maður verður að borga svoleiðis.

Hér er landsliðið í handbolta með kennslu í fagni.

Æfa sig fyrir sunnudaginn.

 


mbl.is Íslendingar í úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Óleyyyy óleyyy...

Ester Sveinbjarnardóttir, 22.8.2008 kl. 14:33

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Allir að samfagna öllum út um allan bæ, svona á þetta að vera (og líka út af Paul Ramses).

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.8.2008 kl. 14:44

3 Smámynd: Hulla Dan

Þetta var fagurt!!!
Og allir grétu, og ég grét.

Hulla Dan, 22.8.2008 kl. 14:44

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég brunaði til vinkonu minnar í hálfleik, svo við gætum öskrað saman, ekki alveg eins halló og að hoppa einn á öskrinu....nú verð ég að hafa sama háttinn á á sunnudag

Sigrún Jónsdóttir, 22.8.2008 kl. 15:02

5 Smámynd: M

Til hamingju

Vildi að ég fengi þessa þrifáráttu við leik. Ekki enn farin í haustverkin

M, 22.8.2008 kl. 15:10

6 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Rosalega var þetta flottur leikur, ég var alveg viss um styrk strákana frá upphafi, veit ekki af hverju, þeir eru garlakallar ef þeir vilja.

TIL HAMINGJU ÍSLAND

Eva Benjamínsdóttir, 22.8.2008 kl. 15:14

7 Smámynd: Dísa Dóra

Hey má ég ekki bjóða þér í heimsókn þegar leikurinn er á sunnudaginn??!!

Dísa Dóra, 22.8.2008 kl. 15:24

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Aldrei að vita DD nema að ég mæti með moppuna.

Eva: Þeir eru nú þegar komnir fram úr öllum væntingum.  Í mínum bókum eru þeir lögnu búnir að vinna.  Gullið verður bónus.  VEI

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2008 kl. 15:29

9 Smámynd: Brynja skordal

Var svo orkumikil eftir leikinn að ég réðist á ryksuguna og djöflaðist um allt og svo moppað á eftir skrítið kallinn flúði út ennnn ég beið samt eftir að leikurinn væri búinn tilitsöm alltaf hreint En veiiii Gullið já það verður sko Bónus

Brynja skordal, 22.8.2008 kl. 15:51

10 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

'Eg stökk nokkrum sinnum upp úr stólnum ein heima,smsaðist við sjómanninn og synina á meðan á leik stóð.

Það lág við að ég færi að væla með strákunum að leik loknum

Þetta er bara æðislegt  og glæsilegur árangur

'Afram ísland

Anna Margrét Bragadóttir, 22.8.2008 kl. 16:06

11 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Virðumst vera á sama báti vinkona en það var nú ekki hægt annað en að fylgjast með endalokunum

Ía Jóhannsdóttir, 22.8.2008 kl. 16:32

12 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Aumingja þú, Jenný, ég upplifði mínar bestu mínútur á meðan ég horfði á leikinn...... ég var í þvílíkri geðshræringu þegar leiknum lauk að ég er fegin að ég var ekki á Players eða öðrum fjölmennum stað....  

Lilja G. Bolladóttir, 23.8.2008 kl. 00:30

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er að taka okkur öll á tauginni og hvernig haldið þið að þetta verði á sunnudaginn.  GMG.

Hólmar: Ég lofa að horfa ekki ef þú leyfir mér að horfa á endursýninguna.  Díll?

Ég get ekki skemmt neitt með því ha?

Þið eruð frábær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.8.2008 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband