Leita í fréttum mbl.is

Jia-you Maó formaður

Húsband (spenntur): Hvernig fór leikurinn í morgun?

Ég: (kúl eins og agúrka): Við unnum sá ég á blogginu.

Hb: Ha, unnum við, váváá, veiveivei, ég meina það, algjör gapandi brilljans.  Ertu ekki glöð?

Ég: Ha, jújú, en það var ekki verið að leysa hungurvandamál heimsins, rólegur á gleðilátunum.

Hb: Gerir þú þér enga grein fyrir hvað þetta er mikið afrek, við erum komin í úrslitabaráttuna??

Ég: Jú ég heyri það og sé bæði á þér og bloggheimum.  Þið eruð í skýjunum yfir strákunum "ykkar".

Hb: Hvernig er hægt að verða ósnortinn?  Og Þorgerður Katrín á leiðinni út aftur bara allt að gerast (hér læddist kvikindislegt glott yfir ásjónu eiginmanns, hann veit hvað ég er viðkvæm fyrir ferðalögum ráðamanna til Kína).

Ég (kuldalega): Villtu ekki slást í för með henni bara.

Hb: Þú ert algjört gleðispillir.  Þetta er stórkostlegt fyrir Ísland.

Ég: Jia-you Þorgerður Katrín, Jia-you þú elskan og Jia-you Mao formaður.

Hb. Ha???

Ég var búin að lesa Moggann ekki hann. 

1-0 fyrir mér.

Úje


mbl.is Jia-you Is-land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Signý

HAHAHAHAHA! Greyið maðurinn... Hann á ekki breik...

Signý, 20.8.2008 kl. 23:10

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Brjánn Guðjónsson, 20.8.2008 kl. 23:11

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

þetta átti sko að vera Maó. kannski hann sé bara orðinn að hringi, þríhyrningi og ferningi eftir öll árin í gröfinni

Brjánn Guðjónsson, 20.8.2008 kl. 23:13

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jia-you Jenny Anna

Sigrún Jónsdóttir, 20.8.2008 kl. 23:19

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Signý: Þessi maður tekur mig svo illilega stundum í orðaskylmingum að ég skríð næstum undir borð.  Eilífar skylmingar aldrei leiðinlegt. Þess vegna elska ég manninn.  Hann er með munninn fyrir neðan nefið.  Að þessu sinni vann ég.  Muhahahaha,

Brjánn: Ég var síst að skilja í hvaða ferhyrningur þetta væri.  hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.8.2008 kl. 23:19

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sigrún: Sömuleiðis.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.8.2008 kl. 23:20

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Jenný mín...kínamenn eru á horni Skólavörðustígs og Óðinsgötu það er hægt að fá tíma með skömmum fyrir vara allt til 11 á kvöldin, síminn er að ég held 5527305. Kannski við hittumst þar um helgina....það væri frábærtjá meðan ég man...þeir taka bara pening, engin kort.

Þorgerður fer til kína en þú ferð og hittir kínamenn....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 20.8.2008 kl. 23:31

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrafnhildur: Jia-you darling.

Ég hringi.  Takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.8.2008 kl. 23:32

9 Smámynd: Linda litla

Já eru þetta ekki strákarnir "okkar" þegar allt gengur vel ??? En ekki ef að það gengur illa.

Knús..

Linda litla, 20.8.2008 kl. 23:41

10 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

  Jia-you Jenný Anna !!!!!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 21.8.2008 kl. 00:25

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hrikaleg hló ég af myndinni hans Brjáns af Maó!

Annars er húsbandið þitt snillingur.

Edda Agnarsdóttir, 21.8.2008 kl. 00:26

12 Smámynd: Tína

Úfffffffff ég er nú bara spennt að fá ykkur hjónin í búðina til mín!!!! Held ég að það verði stuð.

Knús á þig elskulegust og haltu endilega áfram að vera þú. Enda ertu frábær með eindæmum.

Tína, 21.8.2008 kl. 06:18

13 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehhe ég fékk svona yfirholningu með kvöldmatnum í gær.  Veistu við erum komin í úrslit, það er bara allt brjálað í handboltaheiminum á Íslandi, Þorg. Katrín ætlar út og Dorrit kyssir alla.  Jia- you so what!

Mér gæti ekki staðið meir á sama og ekki ætla ég að hoppa hæð mína ef þeir fá bronsið eða veifa fána hér um allar sveitir.

Annars er bara kominn góður og nýr dagur held ég.

Ía Jóhannsdóttir, 21.8.2008 kl. 06:50

14 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góðan daginn heillin, hver er staðan í handboltaheiminum í dag

Jónína Dúadóttir, 21.8.2008 kl. 07:19

15 Smámynd: Huld S. Ringsted

Haha ekkert ósvipaðar samræður eiga sér stað á mínu heimili........handbolti hvað??

Huld S. Ringsted, 21.8.2008 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 2985732

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband